Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 36
hélt hann sjó eða gaf skipun um dálitla ferð áfram, hann breytti sífellt um stefnu eftir sjólagi. Honum varð litið út um stjórnborðsglugga, klukkan var ellefu mínútur gengin í tíu. Allt í einu birtist meir en sextíu feta risaalda á ógnarhraða, grængolandi var hún og eins og ókleif- ur veggur, engin tök voru á að komast undan henni. Hún skall á skipinu stjórn- borðsmegin, braut björgunarbátana, rúður tvístruðust og allt lauslegt í skip- inu fór af stað undan höggi þessarar risakrumlu. Allt þetta gerðist á innan við hálfri mínútu. Flying Enterprise lagðist á bakborða og rétti sig ekki aftur. John Crowder, einn vélstjóranna, sagði: „ ... skipið rétti sig aldrei og ljósin fjöruðu út.“ Reyndar sökk skipið æ dýpra og hallinn óx. Flying Enterprise barðist í öldurótinu eins og helsært dýr, sem hefur mætt ofjarli sínum og bíður enda- lokanna. Breska skipið Sherborne, sem var skammt frá, tilkynnti um fárviðri, ekkert skyggni, ölduhæð 30-40 fet og 13 sek. öldutíma. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir lét skipið ekki að stjórn, stýrið virtist farið. Í vélarúminu, sem var á stærð við meðal einbýlishús, en miklu hátimbr- aðra, fór allt úrskeiðis, sem farið gat. Innan skamms var mikið vatn kom- ið inn, bæði sjór eftir brotið og svo sprungu leiðslur, bæði tengdar gufukötlunum þremur og einnig olíu- og þrýstivökvaleiðslur. Auk þess var hallinn það mikill, að vélstjór- arnir þurftu að halda sér í hvaðeina, sem hendi var næst til að geta athafnað sig. Sjór komst í ljósavélarnar og notast varð við vara- vélar. Carlsen lét senda út neyðarskeytið XXX, ósk til nærstaddra skipa að vera við öllu búin. Hann sá fram á að flytja þyrfti alla farþega frá borði, kannski alla áhöfnina. Hvernig átti að framkvæma það, björg- unarbátarnir stjórnborðsmegin ónýtir og hallinn í bak það mikill og heldur vax- andi, að ekki kom til greina að reyna að nota bakborðsbátana. Farþegunum tíu var komið fyrir á efstu göngunum, þeir klæddir í björgunarvesti og reynt að hlúa að þeim þar eftir föngum. Um fimmleytið síðdegis voru fyrstu skipin komin á vettvang, fyrst gufuskipið Southland, þá flutningaskipið War Hawk og Sherborne. Skömmu síðar fór allt rafmagn af Fly- ing Enterprise, sem byltist nú hjálpar- vana og ljóslaust í öldurótinu. Að morgni laug- ardagsins 29. des- ember hafði lægt mjög, allt niður í fjögur vindstig og sólin gerði sitt besta til að brjótast í gegnum skýjahuluna, en sjólagið var enn mjög óreglulegt. Farþegarnir, sem höfðu hafst við á göngunum í um sextán tíma og án nokkurrar næringar annarrar en gosdrykkja og brauðs, því auvitað var ekki kostur á að vera með matseld, voru fluttir út á bátadekk, þar sem þeir voru bundir fastir, en Carlsen hafði ákveðið, að allir skyldu stökkva frá borði og reyna að ná björgunarbátunum frá nærstödd- um skipum. Farþegarnir tóku þessu með æðruleysi þrátt fyrir sjóveiki og ótta; þetta var eina leiðin til að komast af. Fimm skip voru á staðnum, auk fyrr- nefndra Westfal Larsen, sem dældi olíu í sjóinn til að reyna að lægja öldrunar og tundurspillirinn General A. W. Greely. Skipstjórinn á Greely, Nils Olsen, sem var Dani, Carlsen til óblandinnar ánægju, hafði verið nær tuttugu tíma á staðinn. Hann skrifaði í dagbókina: „ ... Enterprise hallaðist um sextíu til sjötíu gráður á bakborða og byltist hjálparvana í öldurótinu ... Það var augljóst að skipið gat ekki haldist á floti miklu lengur og skylli annað fárviðri á, hvolfdi því og það sykki.“ Það var frú Müller, sem stökk fyrst Herskip sveimar í kring. Dráttarbáturinn Turmoil mættur á staðinn. FJÖLMIÐLAR Það er ekki alveg víst, að á þessum árum hafi einn einstakur at- burður vakið eins mikla athygli og hetjudáð þeirra félaga, Carlsens og Dancy. Sagt var, að í sumum fjölmiðlum hefði Kóreustríðið orðið að víkja af forsíðunum. Um leið og fyrstu fréttir bárust, var frá þeim skýrt í útvarpi og blöðum, ekki þó alltaf af nákvæmni eða þekkingu. Íslensku blöðin og Ríkisútvarpið sögðu vel frá og íslenska þjóðin fylgdist með, bar sterkar taugar til þessarar dönsku hetju hafsins. Erlendir fjölmiðlar, þeir sem nær voru vettvangi og í sterkari tengslum við útgerð og ólgandi Atlantshafið, fóru stundum offari. Agnes Carlsen og dæturnar urðu fyrir svo óskaplegu áreiti, að þær urðu með, hjálp Isbrandtsens, útgerðarmanns, að fara í felur. Fávíslegar og nærgöngular spurningar dundu á þeim, sú alvitlausasta var, þegar franskur blaðamaður hringdi alla leið frá París og spurði hvort heimilishundurinn saknaði ekki húsbónda síns! Carlsen varðist ágangi fjölsmiðla af hógværð. „Ég óska ekki, að gera heiðarlega tilraun skipstjóra til að bjarga skipi sínu, að verslunarvöru“ sagði hann í móttöku í London. 36 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.