Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 38
38 – Sjómannablaðið Víkingur með öryggislínu í hendinni. Henni var snarlega bjargað um borð í björgunarbát frá Southland. Brátt komu bátar frá hinum skipunum. Dóttirin, Leonora Müller, 19 ára, nú doktor í uppeldisfræði í Bandaríkjunum, fylgdi í spor móður- innar, en með henni stökk Brown, yfir- vélstjóri. Þá stukku farþegarnir hver af öðrum og fylgdi skipverji hverjum þeirra. Allir komust þeir heilir á húfi í björgunarbáta, en einn þeirra lést, full- orðinn farþegi, líklega af áreynslu og kulda. Þá munaði litlu með frú Ninu Dannheiser, en hún var þrekin kona, um 115 kg. Með henni stökk einn undirvél- stjóranna og þegar kom að björgunar- bátnum, reyndist það þrautin þyngri að koma henni um borð, því hún var orðin rænulítil af kulda og áreynslu og gat enga björg sér veitt. Þrátt fyrir mikið erfiði tókst ekki að koma henni upp í bátinn og því varð það til ráðs að binda hana við síðuna og sigla að Southland þar sem tókst að koma henni um borð. Hún náði sér alveg, en kjölturakkinn hennar, sem fékk pínulítið björgunar- belti hvarf í djúpið. Þá var komið að því að bjarga skipverjunum, sem enn voru um borð. Það reyndist auðveldara en með farþegana, þótt nokkir þeirra væru ekki syndir. Sjómennirnir, sem fóru í björgunar- bátunum, unnu stórkostlegt afrek. Í ill- viðri og vondum sjó fóru þeir ferð eftir ferð, lögðu sig í lífshættu til bjarga fimmtíu manna hópi af Flying Enter- prise. Í þessum nafnlausa hópi ber nafn Róberts Husband hæst. Hann fór frá skipi sínu, Greely, með níu menn, tvær ferðir og bjargaði alls sautján manns. Um klukkan þrjú síðdegis voru allir komnir frá borði nema Carlsen skip- stjóri. Hann neitaði að yfirgefa skip sitt og svo varð að vera. Á reki Þegar Carlsen var orðinn einn um borð í skipinu sendi hann Ísbrandtsen, útgerð- armanni skeyti: „Allir farþegar og áhöfn nú örugg STOP Verð um borð uns drátt- arbáturinn Ocana kemur, vinsamlegast láttu konu mína vita.“ Hann vissi, að hann var í miklli hættu; hann gat til dæmis lokast inni í einhverri af mörgum vistarverunum, orðið fyrir hurð, sem skelltist eða einhverju lauslegu, sem þeyttist um í veltingnum. Hann þurfti að geta náð sambandi við nærliggjandi skip, ef allt færi á versta veg og hann þyrfti að yfirgefa skipið í flýti. Loftskeytastöðin var gagnslaus, hann var reyndar sjálfur radíóamatör, en tækin hans, sem hann hafði notað undanfarna daga, voru orðin straumlaus og eina tækið var lítil talstöð, sem hann hafði keypt handa föður sín- um og hún reyndist ágætlega nothæf. Hann hafði samband við Greely, sem kom skeytum hans áfram. Þá var það dráttarbáturinn. Sam- kvæmt skeyti frá útgerðarmanninum var hann í um 700 sjómílna fjarlægð í slæmu veðri og hans varla von næstu dægrin. Þá varð hann að finna sér næturstað, þar sem færi sæmilega um hann og byði upp á örugga flóttaleið. Til þess valdi hann loftskeytaklefann, en þar var naglfastur sófi og vegna hallans á skipinu, þjónaði veggurinn hlutverki gólfs. Þarna tókst honum að búa um sig og sofa þolanlega alla nóttina. Hann var svangur þegar hann vaknaði sunnudagsmorguninn 30. desember og hann þurfti ekki að opna augun til þess að finna, að sjólagið hafði ekki batnað. Hann skreið niður í eldhúsið til að leita að matarbita, en þar var allt á tjá og tundri. Honum tókst að opna frysti- geymsluna, þrátt fyrir að handfangið væri í ökklahæð vegna hallans, en þar gaus út óþefur. Kælingin hafði farið af fyrir viku. Þó hafði hann stóra köku og stóra brúsa með tómatsafa upp úr krafs- inu. En matur er matur! Eftir að hafa fengið sér í svanginn, skifaði hann í skipsdagbókina, en hana hafði hann ekki snert frá því á aðfangadag. Dráttarbáturinn Oceaan, sem hann hafði vonast eftir, snéri við til að hjálpa systurskipi sínu Zwarte Zee (Svartahaf), sem hafði verið að aðstoða danskt flutn- ingaskip í nauðum á Biscayaflóa, en lenti sjálft í vanda og þurfti aðstoð. Þá lagði franskur dráttarbátur, Abeille 25, úr höfn í Calais í Frakklandi, en sneri fljótt við og ætlaði að bíða betra veðurs. Þá komst útgerðin í samband við eigendur dráttar- bátsins Turmoil, sem talinn var einn sá stærsti í heimi. Þar á bæ voru menn til- búnir til verka, en gallinn var bara sá, að Turmoil var á leið til Falmouth á Corn- wallskaga með olíuskipið Mactra, sem misst hafði skrúfuna undan Írlandi á annan dag jóla. Strax og þeir væru lausir, færu þeir af stað. Undir kvöld lægði vind dálítið. Þá heyrði Carlsen í fyrsta skipti í flugvél, en herflugvél flaug yfir og flugmaðurinn tók mynd af Carlsen, þar sem hann hékk á lunningunni og veifaði. Sú mynd hratt af stað miklu fjölmiðlafári, ekki aðeins á Englandi, heldur ekki síður í Bandaríkj- unum. Gamlársdag var Carlsen einn um borð í skipi sínu í haugasjó og veltingi, kald- ur, svangur og þreyttur. Þá var ungur stýrimaður, Kenneth Roger Dancy, í London, 27 ára, þrautreyndur sjómaður frá unglingsárunum, kvaddur til afleys- ingastarfa á dráttarbátnum Turmoil og hann yfirgaf áramótaveisluna, sem hann var í og hélt með næturlest til Falmouth. Hann kemur við sögu síðar. Rétt eftir miðnætti, á fyrstu mínútum hins nýja árs, 1952, vakti Greely Carlsen Þær voru fl eiri en ein myndirnar sem teknar voru af Carlsen hangandi utan á skipi sínu. DANCY STÝRIMAÐUR Carlsen skipstjóri ætlaði að bjarga skipi sínu, hann ætlaði sér ekki hetjunafnbót, hann var sjómaður. Þetta skildi Dancy stýrimaður öðrum betur, þegar hann sagði: „Nei, við vorum ekki hetjur. Við vorum tveir menn, sem vorum að reyna að fram- kvæma erfitt verk. Já, vissulega voru aðstæðurnar erfiðar, en hvað áttum við gera? Carlsen var að reyna að bjarga skipinu sínu og ég var stýrimaður á drátt- arbátnum, sem ætlaði að hjálpa honum að gera það. Það er allt og sumt.“

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.