Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 43
HDS 10/20-4 M
30-200 bör
500-1000 ltr/klst
HDS 8/17-4 M
30-170 bör
400-800 ltr/klst
HDS 5/11 U/UX
110 bör
450 ltr/klst
1x230 volt
Gufudælur
Aflmiklir vinnuþjarkar
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skipstjórnarmenn
í Félagi skipstjórnarmanna
Fundir milli hátíða
Akureyri 27. desember kl. 14.00: Strikið, 4. hæð Skipagötu 14.
Reykjavík 30. desember kl. 14.00: Grand Hotel Reykjavík ,Háteigi 4. hæð
Jólakveðja,
Stjórnin
komu skilaboð um að þyrlan hefði orðið
að snúa við vegna veðurs er hún var í
um 7 mínútna fjarlægð frá skipunum.
Nú vissu allir, að dagar Flying Enterprise
væru taldir. Neðan úr skipinu heyrðust
háværir hvellir eins sprengingar er
hurðir og skilrúm létu undan þungan-
um.
„Kominn tími til að fara“ sagði
Carlsen við Dancy og þeir skriðu með
erfiðismunum út á reykháfinn. Skipverj-
arnir á hjálparskipinum fylgdust með og
vissu, af sjómannsreynslu sinni, að
tvenns konar hætta steðjaði að mönn-
um, þegar þeir stykkju, brak úr skipinu,
sem nú flaut um allan sjó og sogið, sem
myndaðist við sökkvandi skip.
Stundarfjórðungi yfir klukkan þrjú
stóðu þeir á reykháfnum og Carlsen
stakk upp á, að þeir stykkju samtímis, en
það vildi Dancy ekki, skipstjórinn yfir-
gæfi skip sitt síðastur. Dancy stökk, lenti
á röngu róli, ofan í öldudal, fór á kaf, en
gat bjargað sér. Carlsen var heppnari og
innan skamms syntu þeir saman í átt að
dráttarbátnum. Tveim mínútum fyrir
hálf fjögur voru þeir komnir um borð,
heilu og höldnu. „Ég vildi að ég hefði tíu
svona stýrimenn með mér“ sagði Carl-
sen. Þeir fengu þurr föt, te og romm og
Carlsen sofnaði strax. Turmoil og Will-
ard Keith fylgdust með dauðastríði
Flying Enterprise, sem seig í hafið; 10
mínútum eftir klukkan fjögur var skipið
sokkið. Skipin, bæði fylgdarskipin og
önnur nærstödd, þeyttu flautur sínar, á
dekki stóðu þögulir sjómenn og drúptu
höfði eins og við jarðarför. Nærri tveggja
vikna hetjulegri baráttu Carlsens skip-
stjóra var lokið. Hann hafði misst skip
sitt, en unnið einstakt afrek.
Heimildaskrá:
Frank Delany: Simple Courage,
New York 2006
Um sollinn sæ, Reykjavík 1958
Morgunblaðið
Tíminn
Þjóðviljinn
Af vefnum:
http://www.dr.dk/kroniken/1950erne/idoler_
idealer/mod_kaptajn.asp
http://www.berlingske.dk/kultur/mere-end-et-
skib
http://en.wikipedia.org/wiki/SS_Flying_Enter-
prise
http://www.prakash.dk/carlsens_doc.html
http://perdurabo10.tripod.com/ships/id87.html
http://www.teesships.freeuk.com/1129flying.htm
Sjómannablaðið Víkingur – 43