Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur BÓKATÍÐINDI Út er komin bókin „Saga Útvegsbænda- félags Vestmannaeyja 1920 – 2010“ en félagið var stofnað 20. október 1920 og er því nírætt um þessar mundir. Aðalhöfundur er Sig- urgeir Jónsson en auk hans sá Benedikt Gests- son, blaðamaður, um að taka allmörg viðtöl sem birtast í bókinni. Rakin er saga útgerðar í Vestmannaeyjum, frá upphafi vega og til okkar daga en hvað mest fjallað um síðustu öld og upphaf þessarar aldar. Bókin er tæpar 200 bls. í stóru broti og prýdd fjölda ljósmynda. Útgefandi er Útvegsbændafélag Vestmannaeyja sem jafnframt sér um sölu og dreifi ngu á bókinni. Er hægt að hafa samband við Hafdísi í síma 481-1330 og 696-7059 vegna þess en einnig verður bókin til sölu hjá Eymundsson og Oddinum í Vestmannaeyjum. – Kíkjum á Landhelgiskafl ann. Landhelgisveiðarnar á sjöunda áratugnum Landhelgismálum bátaflotans á sjöunda áratug aldarinnar mætti hvað helst líkja við farsa- kenndan gamanleik. Í raun var það grátbroslegt að heil atvinnugrein skyldi um nokkurra ára skeið byggjast upp á lögbrotum. Fram eftir öldinni höfðu Íslendingar horft á Breta og fiskimenn annarra þjóða moka upp fiski uppi í landsteinum á togurum sínum. Baráttan fyrir útfærslu landhelginnar féll ekki í góðan jarðveg hjá þeim fiskimönnum en fyrir íslenska fiskimenn jafngilti hún sjálfstæði landsins. Fyrst í stað voru það einkum stórir togarar sem af íslenskum skipum voru við togveiðar og sjálfsagt þótti að þeir virtu land- helgina. Framan af var stærð skipa í bátaflot- anum slík að ekki var viðlit að stunda togveiðar á þeim. En með stærri skipum og kraftmeiri jókst að bátarnir sneru sér að togveiðum, ekki síst þar sem mun færri þurfti í áhöfn við þann veiðiskap en t.d. við línu- og netaveiðar. Breytt hugarfar Smám saman breyttist hugarfarið til landhelg- innar. Togararnir notuðu stórvirk veiðarfæri, þunga hlera og bobbingatroll og því talið eðli- legt að þeir héldu sig á dýpra vatni við sínar veiðar. Aftur á móti voru veiðarfæri bátanna allt önnur, hlerarnir léttir og í stað bobbinga var nær alls staðar verið með fótreipistroll. Þá gátu bátarnir ekki stundað sömu veiðislóð og togar- arnir og þótti eðlilegt að þeir fengju heimildir til veiða innan landhelginnar. Svo fóru menn að skilja hvers vegna togar- arnir höfðu seilst til að veiða eins nærri landi og kostur var, fyrr á öldinni. Málið var nefnilega að mun meiri aflavon var innan þriggja mílnanna en utan þeirra og með tímanum kom að því að þessar veiðar voru lítt arðbærar nema skjótast öðru hverju inn fyrir og ná í gott hal. Hjá sum- um snerist þetta við, þannig að þeir skutust út fyrir línuna endrum og sinnum, svona rétt meðan varðskip sigldu hjá. Samkeppnin og metnaðurinn sögðu líka til sín, þeir sem veiddu innan landhelgi lönduðu margfalt meiri afla en hinir og sá sem ekki fiskaði á borð við hina átti ekki á góðu von. Ekki var að því spurt hvar fiskurinn hefði fengist, heldur hve mikill aflinn væri. Þess vegna tóku menn áhættuna. Smám saman breyttist hugsunarhátturinn og viðhorfið til landhelgisveiðanna, það sem áður hafði verið pukr- ast með, varð nú opinbert og þeir jafnvel ekki álitnir með réttu ráði sem héldu sig utan línu. Ekki þótti fréttnæmt þótt bátur væri staðinn að veiðum í landhelgi og þeir sem urðu fyrir slíku ypptu bara öxlum, rétt eins og um hvert annað óhapp væri að ræða, á borð við að slíta vír eða rífa illa. Þar sem lengi vel var ekki gengið ríkt eftir innheimtu sekta, ýtti það undir menn að halda áfram þessari iðju sinni. Menn litu á þetta ekki ósvipað og umferðarlögin, meðan ekki komst upp um þá, önduðu þeir rólegir og samviskan nagaði þá á engan hátt. Slöttungur í hali Auðvitað höfðu menn vara á sér og héldu sig utan línu ef hætta var á að varðskip væri í nánd. Fljótlega komu skipstjórar sér upp viðvörunar- kerfi til að láta vita ef varðskip var á leiðinni. Fyrst í stað byggðust þær viðvaranir upp á ein- földu kerfi í talstöðinni og tengdust afla sem upp var gefinn. Afli var gefinn upp í ákveðnum einingum, tveir pokar, einn poki, slöttungur og skaufi. Um nokkurt skeið hafði það aðeins eina merkingu ef bátur gaf upp að afli í síðasta hali hefði verið slöttungur. Þar með flýttu þeir sem voru í námunda við hann sér að hífa eða toga út fyrir. Það brást nefnilega ekki að skömmu síðar sigldi grátt skip meðfram strönd- inni. Auðvitað vissu varðskips- menn af þessu kerfi enda varla eðlilegt að hvert einasta skip við suðurströndina skyldi fá slöttung í hali sama daginn. Þurft hefði meira en meðalgrunnhygginn mann til að skilja ekki í hverju slöttungurinn fólst. Bjarnhéðinn Elíasson, skipstjóri á Elíasi Steinssyni, var ekki í nokkr- um vafa um hvenær „slöttungsvið- vörunin“ hefði endanlega verið eyðilögð. Hann var þá að toga við Ingólfshöfðann, að sjálfsögðu innan við línu. Guðmundur Guðlaugsson (Gvendur Eyja) var að toga nokkru vestar, kallaði allt í einu í Bjarn- héðin og sagði án nokkurra vífilengja: „Þetta var slöttungur, Bjarnhéðinn, og vertu fljótur að hífa.“ Þetta sagði Bjarnhéðinn að hefðu verið endalok kerfisins, með þessu hefði Gæslan endanlega fengið fullvissu um hvað í slöttungi fólst. Saga Útvegsbænda í Eyjum Komin er út hjá Bókaútgáfunni Hólum bókin, Af heimslóðum – brot af sögu Helgu og Árna Péturs í Miðtúni á Melrakka- sléttu og samfélagsins við Leirhöfn. Margir sjó- menn hafa fi skað og legið undir Rauðanúp og sumir siglt inn á Leirhöfnina og virt fyrir sér byggðina þar en hún er að verulegu leyti sögusvið bókarinnar. Eitt býlanna er Nýhöfn þar sem Kristinn Kristjánsson, vélsmiður og hugvitsmaður starfrækti járn- og vélaverkstæði frá byrjun 20 aldar og fram undir 1960. Fjöl- margir bátar komu til viðgerða í Nýhöfn og viðgerðirnar af öllum toga. Í bókinni rekur höfundur að nokkru sögu Kristins sem var afi hans í móðurætt og nokkrum þeim viðgerðum sem hann fékkst við. 1 „Gufuskip er á siglingu fyrir Öx- arfjörð – snýr stefni allt í einu og beinir því að Leirhafnartang- anum. Siglt er í náttmyrkrinu eins nærri landi og skipstjóri þorir og þá settur út léttabátur með átta menn. Taka þeir land í Byrgjafjöru skammt sunnan Stóru-stekkjarhæðar, axla byrði sína og halda heim í Nýhöfn. Þar er vakið upp og veitingar settar á borð. Kristinn í Nýhöfn fer á fætur og gengur til smiðju sinnar. Hann segir svo frá í endurminningum sínum: Þeir voru af gufuskipi og hafði forskrúfast hjá þeim krani, sá sem gaf gufu á vélina. Þeir sögðu skipið berast fyrir straumi og vindi og töldu sig illa stadda, ef veður breyttist. Ég sótti mér lampa, því dimmt var, setti koparstykkið í rennismiðju og skar upp skrúfurnar í því og lét þá snúa rennismiðjunni. Þá setti ég mótorinn í gang og renndi nýjan bolta, skar á hann tils- varandi skrúfur og fellti á gangsetningarhjólið. Var ég búinn að þessu um fótaferðartíma.“ 2 Eitt sinn var Kristinn staddur á Raufarhöfn að sumarlagi og kemur til hans skipstjóri á báti frá Þórshöfn og segir honum að það sé ónýt olíu- dælan hjá sér og spyr hvort Kristinn geti smíðað nýja. Þannig lýsir Kristinn þessu: „Ég fór niður í bátinn og var svo heppinn að hafa með mér málstokk. Dælan var úr kopar og sögðu þeir, að það væri feyra í henni, sem gæfi um. Ég rissaði upp dæl- una í vasabók mína og skrifaði alls staðar málið við. Ég gat rennt dæluna alla, skar skrúfur á stúta í rennismiðjunni og meira að segja smíðaði botn- rærnar, þéttikraga og stálstimpil. Ég held að þetta hafi verið með því vandasamasta, sem ég lagði út í og sólarsögur bárust um, hvað hún væri vel smíðuð. En sagan er ekki búin. Nokkrum dögum seinna strandaði báturinn og ónýttist. Var þessi fyrirhafnarsami smíðisgripur því aldrei notaður.“ Af heimaslóðum

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.