Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur
Helgi Krisjánsson, sölustjóri hjá
Naust Marine, segir hér frá tveim-
ur túrum er hann fór til Argentínu í
febrúar og ágúst síðastliðnum með
reynslu og íslenskt hugvit í farteskinu,
nefnilega hið magnaða togvindukerfi
sem fyritækið Naust Marine hefur
þróað. ATW Winch Control kallast það
og er sjálfvirkt togvindustjórnkerfi .
Árið 1981 fékk togarinn Ottó N. Þor-
láksson fyrstu útgáfu kerfi sins sem
hefur síðan verið í stöðugri þróun. Í
dag er kerfi ð að fi nna í um 80 togurum,
allt frá hinum minnstu til hinna stærstu
er veiða á veraldarhafi nu.
Fylgjum Helga til Argentínu.
Undirritaður hafði nokkru áður
skoðað skipið að ósk útgerðarinnar og
kom í framhaldinu með tillögur um end-
urbætur. Þetta var 95 metra langur
frystitogari, Echizen Maru, smíðaður í
Japan, líklega 1985 eða þar um bil. Um
borð var aðeins ein vinda sem sá um
allar hífingar, svona rétt eins og á gömlu
síðutogurunum.
Ég sá að þarna gátum við heldur bet-
ur látið til okkar taka, bæði til fækkunar
mannskaps og til að gera vinnuna mun
öruggari fyrir áhöfnina, og auðvitað til
að auka aflann á hvern togtíma. Í kjöl-
farið keyptu þeir togvindur með ATW
sjálfvirka togvindu stjórnkerfinu okkar
og 18 aðrar rafdrifnar vindur fyrir ýmsar
hífingar og meðhöndlun á trollinu, ásamt
netstýribúnaði frá Famtaki fyrir netvind-
urnar. Einnig keyptu þeir AutoGen kerfi
fyrir sjálfvirka álagsstjórnun á rafölum
um borð. Teikningar og niðursetning var
í höndum Navis ehf.
Þegar haldið var í fyrstu veiðiferðina
eftir breytingarnar var umsamið að ég
færi á sjóinn með þeim til að leiðbeina
áhöfninni um það hvernig best væri að
nota kerfið, þar sem áhöfnin á dekki
hafði ekki áður unnið með grandara-
vindur og slíkt. Skipstjórinn hafði held-
ur aldrei unnið með sjálfvirkt togvindu-
kerfi, líku ATW kerfinu.
Skipið er í eigu Pesantar S.A. í Argen-
tínu sem er ein fjölmargra greina hins
japanska stórfyrirtækis Nissui. Fyrir vik-
ið er fiskiskipstjórinn japanskur, líka
bátsmaðurinn og yfirvélstjórinn. Að öðru
leyti er hin 65 manna áhöfn frá Argen-
tínu og talar lítið annað en spænsku sem
er ekki uppáhaldsmálið mitt. Svo má
ekki gleyma því að japönsku yfirmenn-
irnir hafa sérkokk sem heldur þeim uppi
á alskonar Sushi réttum, sem framleiddir
eru úr þeim fiski sem þarna veiðist, og
maður verður að koma í munninn á sér
með prjónum. Alveg frábær matur, en
það var samt ágæt tilbreyting frá öllum
fiskinum að fá argentískt nautakjöt um
helgar sem var grillað úti á dekki – enda
sumar hjá þeim í febrúar.
Ég flaug nánast eins langt suður og
hægt er eða til Ushuaia, heimahafnar
skipsins, syðst í Argentínu. Og hvort sem
þið trúið því eða ekki þá er Ushuaia
mikill ferðamannastaður og markaðsett-
ur sem „Fin del Mundo“ eða Endi jarðar.
Þaðan er stutt á miðin eða á milli 5 til 10
klst sigling – og innan við sólarhrings
sigling til Suðurskautslandsins.
Á þeim slóðum þar sem við vorum er
lítið landgrunn svo að skipin mega fara
nokkuð nálægt landi, eða um það bil 4
sml. Það er líka ekki verra að geta skift
um veiðislóð og leitað skjóls þegar hann
rýkur upp. Þetta er skammt austan við
Hornhöfða og stormasamt eftir því og
stríðir hafstraumar. Þarna veiddum við
hoki, allt upp í 60 tonn í hali eftir aðeins
einnar klukkustundar tog. Eitthvað kom
líka upp af saborin en lesendur Víkings
verða að hjálpa mér með íslenska nafnið
á þeim fiski.
Hokinn er hausaður og frystur, mest
fyrir Suður-Ameríku markað, en eitthvað
var líka flakað af honum í fiskblokk til
Evrópu.
Seinni túrinn minn var á tannfisk, eða
Patagonian Toothfish en hann veiðist
Hann trúði okkur ekki
Heildar tannfi skkvóti Argentínu er aðeins um 2.500 tonn á ári og fengum við um 20% af þeim hlut á um það
bil 10 dögum. Myndin sýnir vel miðin sem um ræðir en þetta er vafalítið með erfi ðari veiðisvæðum veraldar.
„Á þessum slóðum er mikið um hval og sáum við nokkra búrhvali,“ segir Helgi, „sem virtust elta skipið, en
einnig mikið af smærri hvölum sem líktust helst háhyrningum.“
Echizen Maru er 95 metra langur frystitogari. Í upphafi var aðeins ein togvinda um borð. Þessu breyttu Helgi
og félagar hjá Naust Marine og settu í skipið fjórar grandaravindur, tvær netvindur og netstýringu, tvær
gilsvindur, fjórar bobbingavindur, tvær pokavindur, tvær úthalaravindur og tvær aukavindur.