Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 47
Sjómannablaðið Víkingur – 47 austar og talsvert dýpra en hokinn. Tannfiskurinn er stór fiskur, um 8-12 kg – stærstur um 15 kg – og gefur afar vel af sér. Japanir og Kínverjar eru brjálaðir í hann og borga 30 dollara fyrir kílóið af hausuðum og sporðskornum fiski sem þeir nota í alskonar sushi-rétti. Engu var þó hent; úr hausnum komu kinnar, gellur og hnakkastykki en afgangurinn fór í mjöl. Og þetta fékk ég í hvert mál á meðan túrnum stóð, sushi og aftur sushi, og er síðan orðinn forfallinn sushi-karl. Enda fátt sem fer betur í maga en hrár fiskur, nýveiddur. Aðdragandinn að þessari seinni ferð minni var sá að japanski skipstjórinn neitaði að trúa því að ATW sjálfvirka vindukerfið okkar réði við aðstæðurnar þarna. Skiljanlega, segi ég. Fiskurinn er á 1000 metra dýpi, í miklum straumi sem liggur þvert á togstefnuna, togað er í miklum halla og á vondum botni þar sem mikið er um festur. Sjaldan næst því að toga lengur í einu en 90 mínútur en afli komst í allt að 35 tonn í einu hali. Og ég held að logn sé varla til á þess- um slóðum, stífur vindur eða rok var að minnsta kosti ríkjandi veðurlag á meðan ég var þarna. Tortryggni skipstjórans var því skiljanleg. En það eru engar ýkjur að eftir tvö fyrstu togin var skipperinn bú- inn að skipta alveg um skoðun á ATW kerfinu. Þegar verst var sáum við um 25 metra mismun á lengd togvíra, þótt við værum á beinu togi og trollið var um 100 metrum grynnra í landgrunns kant- inum en sjálft skipið, þar sem trollið kastaðist undan straumnum upp í kant- inn. Kerfið virkaði mjög vel á togi, en einnig þar sem þurfti að hífa úr festu – sem var æði oft – og til að gæta þess að trollið slitnaði ekki frá í þungum sjón- um. Japaninn var jafn undrandi og hann var glaður að sjá og upplifa það sem honum fannst ganga kraftaverki næst. Sjálfvirka vindukerfið frá Íslandi hafði staðist þá erfiðustu prófraun er hann gat hugsað sér. www.ishusid.is S: 566 6000 Smiðjuvegi 70 200 Kópavogi FREON Hágæða Framleiðendur kælikerfa hafa varað við óvönduðum framleiðendum en mikið hefur verið um efni á markaðnum sem geta eyðilagt kerfi vegna lélegra grunnefna og raka í freoninu. Íshúsið býður upp allar gerðir hágæða freons frá Koemans. Skiptiefnið í staðinn fyrir R-22 er væntanlegt.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.