Fréttablaðið - 26.08.2022, Qupperneq 1
Í Vatnsmýri og Skerja-
firði er fermetraverðið
976 þúsund krónur.
1 9 3 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Sló met á 265
kílómetra hraða
Lífið ➤ 16
Sérblaðið
Nýsköpun
fylgir Fréttablaðinu í dag
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur
Škoda Kodiaq
Vinsæli ferðafélaginn!
Verð frá 7.590.000 kr. Eigum nokkra lausa bíla á lager!
Fjórhjóladrifinn, mjög vel útbúinn með 2.5 tonna dráttargetu
Litlar fjölbýliseignir á höfuð-
borgarsvæðinu hafa hækkað
um 27 prósent á einu ári. Þrátt
fyrir merki um viðsnúning í
verði stærri eigna halda þær
minnstu áfram að hækka.
kristinnhaukur@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Ólíkt stærri íbúðum
halda íbúðir undir 80 fermetrum
á höfuðborgarsvæðinu áfram að
hækka í verði. Í júlí mældist meðal
fermetraverð í fjölbýli í þessum
stærðarf lokki nærri 826 þúsund
krónur, miðað við 819 þúsund í júní.
Þetta kemur fram í fasteignamæla-
borði Deloitte.
Fyrir ári síðan var fermetraverðið
tæplega 651 þúsund og hefur það
Litlar íbúðir halda áfram að hækka
því hækkað um tæplega 27 prósent.
Mest var hækkunin í marsmánuði,
70 þúsund krónur.
Vatnsmýrin og Skerjafjörðurinn
eru dýrasta hverfið fyrir litlar íbúð-
ir. Þar er verðið farið að nálgast eina
milljón, var í júlí 976 þúsund krón-
ur. Smára-, Linda- og Salahverfi
í Kópavogi eru ekki langt undan
með 970 þúsund króna fermetra-
verð en Grafarholtið og Úlfarsár-
dalurinn eru í þriðja sæti með 918
þúsund. Ódýrustu litlu íbúðirnar
finnast í Breiðholtinu, þar sem fer-
metraverðið er 639 þúsund krónur.
Ýmsir hagfræðingar hafa spáð
því að fasteignaverð muni fara
lækkandi með haustinu og vísað í
þróun erlendis og hækkandi vaxta-
stig því til stuðnings. Samkvæmt
mælaborði Deloitte á það við rök
að styðjast þegar kemur að stórum
og millistórum íbúðum.
Í júlímánuði hrapaði fermetra-
verð stórra íbúða, yfir 120 fermetra,
úr 704 þúsund krónum í 660. Það
er lækkun um rúmlega 6 prósent.
Eftir stanslausar hækkanir síðan
um áramót lækkaði fermetraverð
meðalstórra íbúða á höfuðborgar-
svæðinu, 80 til 120 fermetra að
stærð, örlítið. Fór það úr 689 þús-
undum í 687.
Þetta þýðir að í heildina er
lækkun á verði fjölbýliseigna en
sérbýli heldur áfram að hækka. Í
júlí mældist fermetraverðið 645
þúsund krónur og skipti þar mestu
hækkun lítilla sérbýliseigna, undir
200 fermetrum. n
MENNTAMÁL Samkvæmt Olgu Lísu
Garðarsdóttur, skólameistara Fjöl-
brautaskólans á Suðurlandi (FSu),
stendur til að móta nýtt fyrirkomu-
lag námsráðgjafar á Kvíabryggju í
byrjun annar. Er það gert með því
markmiði að nýta fjármagnið, sem
skólinn fær frá ríkinu, sem best og
auka möguleikann á meiri skil-
virkni.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær hefur 10 prósenta staða náms-
ráðgjafa frá Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga á Kvíabryggju verið lögð niður.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, for-
maður Afstöðu, gagnrýndi FSu
harðlega fyrir það og kallaði eftir
stöðvun fjárveitingar til skólans
og heildarendurskoðun á mennta-
málum fanga. SJÁ SÍÐU 4
Nýtt fyrirkomulag
á Kvíabryggju
Opinber heimsókn forseta Eystrasaltsríkjanna til Íslands hófst í blíðskaparveðri á Bessastöðum í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Eliza Reid tóku á móti forsetahjónum Eistlands, Lett-
lands og Litáen, en 30 ár eru liðin frá endurnýjuðu sjálfstæði ríkjanna. Gitanas Nauséda, forseti Litáen, og Diana Nausédiené, eiginkona hans, njóta á myndinni leiðsagnar Guðna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK