Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 2
Hlaupið með hundana
Það var mikið stuð og stemning í Hundahlaupi UMFÍ sem fram fór á Seltjarnarnesi í gær. Hundar af öllum stærðum og gerðum hlupu með eigendum sínum
og veðrið lék við hlauparana. Í boði voru tvær hlaupaleiðir fyrir hundana og eigendur þeirra, fimm kílómetra leið og tveggja kílómetra leið fyrir þá sem vildu
heldur rólegra hlaup með hundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Tiltekt íslensku drengjanna
Ísaks Bergmanns Jóhannes
sonar og Hákonar Arnar
Haraldssonar, eftir leik FCK
og tyrkneska liðsins Trabzon
spor í Meistaradeildinni,
vakti heimsathygli. Mamma
Hákonar varð stolt af gutt
anum þegar hún sá myndina.
benediktboas@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Ég varð stolt þegar ég
sá myndina. Mér finnst líka alltaf
gott þegar lið skilja við klefann
með sómasamlegum hætti. Það
er rétt og fallegt að gera það,“ segir
Jónína Halla Víglundsdóttir, móðir
Hákonar Arnar Haraldssonar, leik
manns FCK, en mynd af guttanum
að skrúbba klefa Trabzonspor eftir
viðureign liðanna í Meistaradeild
inni fór eins og eldur um sinu um
heima samfélagsmiðlanna.
Fá þeir almennt klapp á bakið
fyrir að gera slíkt, meira að segja frá
Tyrkjunum sem kalla nú yfirleitt
ekki allt ömmu sína þegar kemur að
fótbolta og samfélagsmiðlum.
Þetta var í fyrsta sinn síðan 2016
sem lið FCK fer í Meistaradeildina en
með liðinu leika Hákon og Ísak Berg
mann Jóhannesson. Það var mikið
fagnað í leikslok og bjór og annað
flaug um klefann. Það var því mikið
sem drengirnir ungu þurftu að þrífa.
Jónína, sem var valin besti leik
maður Íslandsmótsins 1992 og 1993,
lék 134 leiki í efstu deild fyrir ÍA og
skoraði í þeim 40 mörk, en hún á
einnig að baki 11 Alandsleiki. Hún
og eiginmaður hennar, Haraldur
Ingólfsson, eiga svo marga Íslands
meistaratitla með ÍA að hún man
ekki töluna á þeim.
Þau horfðu á leikinn gegn Trab
zonspor en yngsti sonurinn, Haukur
Andri, var að fagna 17 ára afmæli
sínu. Það var því mikið fagnað á
heimilinu.
Haukur Andri skoraði einmitt
sigurmark ÍA gegn ÍBV og elsti bróð
irinn, Tryggvi Hrafn, hefur verið
magnaður með Valsliðinu í sumar.
Það hefur því verið í mörg horn að
líta fyrir Jónínu og Harald. „Það
hefur verið svolítið um stórar stundir
að undanförnu en reglulega gaman.“
Hún segir að Kaupmannahafnar
liðið haldi vel utan um son sinn og
hún hafi verið með annan fótinn
þarna úti en hann er 19 ára gamall
og búinn að vera þar í þrjú ár. „Hann
er búinn að fara í gegnum akademí
una og ég tók strax eftir því að það er
ekki bara verið að kenna þeim fót
bolta heldur líka verið að horfa í aðra
hluti og frágang og annað, hegðun og
framkomu, sem er mjög gott.
Þegar ég hef farið út að horfa á
þessa leiki í yngri flokkunum finnst
mér hegðun leikmanna alltaf góð.
Bæði gagnvart mótherjum og dóm
urum. Mér fannst það ákveðinn
munur þar og hér á Íslandi. Þeir kom
ast ekkert upp með að vera með ein
hverja stæla – það er ekkert í boði.“
Hún segist fylgjast vel með þegar
börnin hennar spila. „Við reynum
að sjá allt. Mann langar alltaf á alla
leiki og verður órólegur ef maður
kemst ekki. Það er því miður ekki
hægt að vera á tveimur stöðum sam
tímis en við höfum verið með tvo
skjái í sjónvarpsherberginu. Einu
sinni náðum við þremur leikjum
sama daginn,“ segir fótboltamóðir
inn Jónína. n
Skagaguttarnir hreinsuðu
til eftir leikinn í Tyrklandi
Myndin af þeim Tryggva og Ísak fór víða um heima internetsins í gær og var
þeim hrósað í hástert fyrir að skilja vel við klefann hjá Trabzonspor. MYND/FCK
Jónína
Víglundsdóttir
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Dæmi virðast um að
fyrrverandi ráðherrar sem forseta
embættið hefur sagt að hafi verið
boðið til hátíðarhalda í dag vegna
30 ára sjálfstæðissögu Eystrasalts
ríkjanna hafi ekki fengið boðskort.
Mikið hefur verið fjallað um
skamman fyrirvara á útsendingu
boðsbréfanna, dagskrá, ræðumenn
og fleiri álitaefni.
Júlíus Sólnes, sem gegndi starfi
umhverfisráðherra 19901991, segir
í athugasemd við umræðu um málið
á Facebooksíðu Þorvaldar Gylfa
sonar prófessors:
„Ég virðist vera í sama skammar
krók og Jón Baldvin, því að ekki
hefur mér verið boðið á þessa ráð
stefnu. Í fréttatilkynningu frá For
seta Íslands kemur fram, að öllum
ráðherrum í ríkisstjórnum 1988
1991 og 19911995 hafi verið boðið.
Ég var einn þeirra, en mér hefur ekki
verið boðið,“ segir Júlíus. n
Júlíusi ekki boðið
Júlíus Sólnes,
fyrrverandi
ráðherra
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Matarbanki Fjölskyldu
hjálpa Íslands var opnaður fyrir
hálfum mánuði og segir Ásgerður
Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl
skylduhjálparinnar, að ekki hefði
verið hægt að úthluta öllum þeim
fjölskyldum, sem til þeirra leita
eftir aðstoð, mat ef ekki væri fyrir
bankann. En líkt og Fréttablaðið
greindi frá í gær hefur orðið gríðarleg
aukning í aðsókn í mataraðstoð hjá
Fjölskylduhjálpinni það sem af er ári.
„Við höfum verið að úthluta mat
á hverjum virkum degi núna til við
bótar við stóru úthlutunardagana
okkar því þörfin er svo mikil. Matar
bankinn auðveldar okkur þetta á
sama tíma og hann dregur úr mat
arsóun,“ segir Ásgerður Jóna.
Matarbankinn er þannig upp
byggður að fyrirtæki gefa Fjölskyldu
hjálpinni mat sem er að nálgast
síðasta söludag og fólk sem á þarf að
halda getur komið og valið sér það
sem það langar í. „Við hefðum ekki
getað staðið straum af þessum kostn
aði ef það væri ekki fyrir fyrirtækin
sem gefa matinn. Hann er góður til
manneldis og þarna fær fólk að koma
og velja sér mat eins og það sé að
versla en þarf ekki að borga.“
Þau sem þurfa á aðstoð að halda
skulu skrá sig hjá Fjölskylduhjálp. n
Margir sækja mat í Matarbankann
Ásgerður Jóna
Flosadóttir,
formaður Fjöl-
skylduhjálpar-
innar
2 Fréttir 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ