Fréttablaðið - 26.08.2022, Side 12

Fréttablaðið - 26.08.2022, Side 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Meðal þess sem hefur verið bryddað upp á er að halda upp á alþjóðlega drullumallsdaginn, en honum var fagnað í sumar. Drullu­ mall getur verið mjög listrænt enda er listsköpun stór þáttur í öllu starfinu í leikskólanum. „Við vinnum mikið út frá áhuga barnanna en Reggio Emilia­stefn­ an sem við fylgjum gengur út frá að taka það sem börnin hafa áhuga á og vinna áfram með það sem þau vilja skoða og rannsaka,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, mynd­ listarkennari og sérgreinastjóri. „Við vinnum mest með ferlið en ekki einhverja ákveðna útkomu og gildi skólans sem eru samvinna, lýðræði og atorka koma mikið inn í starfið. Á haustin, þegar mörg börn koma ný inn í skólann, vinnum við til dæmis með samvinnuna sem veitir öryggi og er gott veganesti inn í skólaárið.“ Hún segir listsköpun birtast í f lestum verkefnum skólans. „Þau læra tónlist í samverustundum og fá að teikna út frá textunum í lög­ unum sem hjálpar þeim að muna þá betur. Ef þau fara í ævintýraferð sem við gerum vikulega, fá þau að teikna upplifun sína og það hjálpar þeim bæði að endurupp­ lifa það sem var að gerast og sækja þær hugmyndir sem kviknuðu. Við fórum til dæmis í strætó um daginn og út úr því komu margar skemmtilegar myndir. Núna er mikill áhugi fyrir plánetum á einni deildinni hjá okkur svo þau eru búin að gera tungl og margar plán­ etur, geimflaug og sitthvað fleira auk þess að pæla í því hvað annað gæti verið í geimnum. Við leggjum mikla áherslu á að þetta sé þeirra, ekki að verkefnið endi á einhvern fyrir fram ákveðinn hátt “ Sögur, kvikmyndagerð og trúbador Og listsköpunin tekur á sig ýmsar myndir. „Við erum ekki bara að mála heldur er verið að búa til sögur og stuttmyndir svo dæmi séu tekin,“ segir Svanhvít og bætir við: „Við vinnum út frá hug­ myndum barnanna, en starfs­ fólkið hefur alltaf líka möguleika á að koma með hugmyndir frá sér. Það er líka oft svo skemmtileg áskorun að finna aðferð til að laga hugmyndir barnanna að skóla­ námsskrá eða öfugt, finna náms­ tækifæri í ferlinu. Við erum með breiðan starfsmannahóp, breiða aldursdreifingu og ólíka færni. Hjá okkur starfar til dæmis sögu­ kona, kvikmyndagerðarmaður og trúbador sem öll hafa tækifæri til að nýta sína sérþekkingu og áhugasvið í vinnu með hug­ myndum barnanna. Við viljum nýta mannauðinn sem best og gefa starfsfólkinu tækifæri til að þróa sig í sínu með börnunum.“ Skráning á hugmyndaferli Önnur leið sem tengist list­ sköpuninni er að skrásetja hug­ myndir barnsins og virkni þess í að framkvæma þær. „Fyrir jólin fær hvert og eitt barn að gera jólagjöf fyrir foreldra sína. Þá fara þau í smiðjuna ein með kennara og fá þar gæðastund og ákveða sjálf hvað þau ætla að búa til. Þar er fullt af opnum efniviði og þau fá að ákveða. Svo skráir kennarinn ferlið, hvað þau ákveða að gera og af hverju, hvernig þau velja efnið og svo framvegis. Þessi skráning er eiginlega aðalgjöfin, það sem þau eru að hugsa og pæla. Einn ákvað til dæmis að gera gítar handa pabba sínum af því að gítarinn hans var ónýtur og önnur vildi gera hest handa foreldrum sínum. Svo gefa þau sínar ástæður fyrir litavali og efnisvali og allt er þetta skráð og fylgir með gjöfinni,“ segir Svanhvít. n Börnin í Austurkór fá að taka þátt í hinum ýmsum verkefnum. Hér eru krakk- arnir í Austurkór að föndra við blómin. Áhersla er lögð á listsköpun hjá leikskólakrökkunum í Austurkór. Drullumall nýtur vinsælda á meðal barnanna. AÐSENDAR/KÓPAVOGSBÆR Svanhvít segir að listaverk birtist í flestum verkefnum skólans. Sköpunargáfan í drullumallinu 29. júní er alþjóðlegur drullumallsdagur. Í Austurkór er haldið upp á daginn með pompi og prakt. „Þá koma öll börnin með aukaföt, við komum með aukamold inn á lóðina og öll fá börnin að drullumalla af hjartans lyst,“ segir Svanhvít. Drullumallsdagurinn er haldinn hátíðlegur víða og er hugmyndin sú að virkja sköpunarkraftinn í tengslum við jörðina, búa til það sem þér sýnist og njóta þess að vera utandyra. Dagurinn er einn af árlegum viðburðum í skólanum. Nám í leikskóla er samþætt og fer fram í leik, umönnun, samskiptum, skapandi starfi og hugsun, þar sem hverju barni er mætt þar sem það er statt í námi og þroska. 2 kynningarblað A L LT 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.