Fréttablaðið - 26.08.2022, Qupperneq 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Meðal þess sem hefur verið
bryddað upp á er að halda upp á
alþjóðlega drullumallsdaginn, en
honum var fagnað í sumar. Drullu
mall getur verið mjög listrænt
enda er listsköpun stór þáttur í öllu
starfinu í leikskólanum.
„Við vinnum mikið út frá áhuga
barnanna en Reggio Emiliastefn
an sem við fylgjum gengur út frá
að taka það sem börnin hafa áhuga
á og vinna áfram með það sem
þau vilja skoða og rannsaka,“ segir
Svanhvít Friðriksdóttir, mynd
listarkennari og sérgreinastjóri.
„Við vinnum mest með ferlið en
ekki einhverja ákveðna útkomu og
gildi skólans sem eru samvinna,
lýðræði og atorka koma mikið inn í
starfið. Á haustin, þegar mörg börn
koma ný inn í skólann, vinnum við
til dæmis með samvinnuna sem
veitir öryggi og er gott veganesti
inn í skólaárið.“
Hún segir listsköpun birtast í
f lestum verkefnum skólans. „Þau
læra tónlist í samverustundum og
fá að teikna út frá textunum í lög
unum sem hjálpar þeim að muna
þá betur. Ef þau fara í ævintýraferð
sem við gerum vikulega, fá þau
að teikna upplifun sína og það
hjálpar þeim bæði að endurupp
lifa það sem var að gerast og sækja
þær hugmyndir sem kviknuðu.
Við fórum til dæmis í strætó um
daginn og út úr því komu margar
skemmtilegar myndir. Núna er
mikill áhugi fyrir plánetum á einni
deildinni hjá okkur svo þau eru
búin að gera tungl og margar plán
etur, geimflaug og sitthvað fleira
auk þess að pæla í því hvað annað
gæti verið í geimnum. Við leggjum
mikla áherslu á að þetta sé þeirra,
ekki að verkefnið endi á einhvern
fyrir fram ákveðinn hátt “
Sögur, kvikmyndagerð
og trúbador
Og listsköpunin tekur á sig ýmsar
myndir. „Við erum ekki bara að
mála heldur er verið að búa til
sögur og stuttmyndir svo dæmi
séu tekin,“ segir Svanhvít og bætir
við: „Við vinnum út frá hug
myndum barnanna, en starfs
fólkið hefur alltaf líka möguleika
á að koma með hugmyndir frá
sér. Það er líka oft svo skemmtileg
áskorun að finna aðferð til að laga
hugmyndir barnanna að skóla
námsskrá eða öfugt, finna náms
tækifæri í ferlinu. Við erum með
breiðan starfsmannahóp, breiða
aldursdreifingu og ólíka færni.
Hjá okkur starfar til dæmis sögu
kona, kvikmyndagerðarmaður
og trúbador sem öll hafa tækifæri
til að nýta sína sérþekkingu og
áhugasvið í vinnu með hug
myndum barnanna. Við viljum
nýta mannauðinn sem best og
gefa starfsfólkinu tækifæri til að
þróa sig í sínu með börnunum.“
Skráning á hugmyndaferli
Önnur leið sem tengist list
sköpuninni er að skrásetja hug
myndir barnsins og virkni þess í að
framkvæma þær. „Fyrir jólin fær
hvert og eitt barn að gera jólagjöf
fyrir foreldra sína. Þá fara þau í
smiðjuna ein með kennara og fá
þar gæðastund og ákveða sjálf
hvað þau ætla að búa til. Þar er
fullt af opnum efniviði og þau fá
að ákveða. Svo skráir kennarinn
ferlið, hvað þau ákveða að gera og
af hverju, hvernig þau velja efnið
og svo framvegis. Þessi skráning er
eiginlega aðalgjöfin, það sem þau
eru að hugsa og pæla. Einn ákvað
til dæmis að gera gítar handa
pabba sínum af því að gítarinn
hans var ónýtur og önnur vildi
gera hest handa foreldrum sínum.
Svo gefa þau sínar ástæður fyrir
litavali og efnisvali og allt er þetta
skráð og fylgir með gjöfinni,“ segir
Svanhvít. n Börnin í Austurkór fá að taka þátt í hinum ýmsum verkefnum.
Hér eru krakk-
arnir í Austurkór
að föndra við
blómin.
Áhersla er lögð á listsköpun hjá leikskólakrökkunum í Austurkór.
Drullumall nýtur vinsælda á meðal barnanna. AÐSENDAR/KÓPAVOGSBÆR
Svanhvít segir
að listaverk
birtist í flestum
verkefnum
skólans.
Sköpunargáfan í drullumallinu
29. júní er alþjóðlegur drullumallsdagur. Í Austurkór er haldið upp á
daginn með pompi og prakt. „Þá koma öll börnin með aukaföt, við
komum með aukamold inn á lóðina og öll fá börnin að drullumalla
af hjartans lyst,“ segir Svanhvít.
Drullumallsdagurinn er haldinn hátíðlegur víða og er hugmyndin
sú að virkja sköpunarkraftinn í tengslum við jörðina, búa til það sem
þér sýnist og njóta þess að vera utandyra.
Dagurinn er einn af árlegum viðburðum í skólanum. Nám í
leikskóla er samþætt og fer fram í leik, umönnun, samskiptum,
skapandi starfi og hugsun, þar sem hverju barni er mætt þar sem
það er statt í námi og þroska.
2 kynningarblað A L LT 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR