Fréttablaðið - 26.08.2022, Page 16

Fréttablaðið - 26.08.2022, Page 16
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, „Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja við rannsóknir og þró- unarstarf sem miðar að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sjóðurinn er opinn fyrir nýsköpunarverk- efni úr öllum atvinnuvegum og er svokallaður „bottom-up“ sjóður, það er að segja að verkefnin þurfa ekki að falla innan ákveðins þema til að hægt sé að sækja um styrk,“ útskýrir Svandís Unnur Sigurðar- dóttir, sérfræðingur hjá Rann- sóknamiðstöð Íslands – Rannís. Þetta árið hefur Tækniþróunar- sjóður um 3,5 milljarða til úthlut- unar. „Einstaklingar, lítil og meðalstór fyrirtæki, opinber fyrirtæki, rann- sóknastofnanir og háskólar geta sótt um styrk úr Tækniþróunar- sjóði, en í gildi eru mismunandi reglur á milli styrktarflokka. Sem dæmi má nefna fyrirtækjastyrkinn Fræ (/Þróunarfræ) þar sem ein- ungis einstaklingar eða fyrirtæki yngri en fimm ára geta sótt um. Styrktarflokkurinn Fræ er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi og það er algengt að verkefni sem fá styrk í Fræi fái til dæmis styrk úr flokknum Sprota eða Vexti í kjöl- farið, en þeir styrktarflokkar eru ætlaðir fyrir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi,“ greinir Svandís frá. Metfjöldi umsókna barst 2020 Alls bárust 417 umsóknir um styrk til Tækniþróunarsjóðs í vor og ákvað stjórn sjóðsins að ganga til samninga við 91 verkefni fyrir ríflega 1,7 milljarða króna. Þess má geta að stuðningur sjóðsins getur verið frá einu ári til allt að þriggja ára. „Þar sem Tækniþróunarsjóður er samkeppnissjóður fá ekki allir sem senda inn umsókn og uppfylla kröfur úthlutað styrk. Árangurs- hlutfall styrktra verkefna fer eftir ýmsu, meðal annars fjölda umsókna og fjárlögum hvers árs. Það er aftur á móti ánægjulegt að segja frá því að árangurshlutfall styrktra verkefna af heildarfjölda umsókna sem bárust í vor var 22 prósent, sem er hærra en hefur verið undanfarin ár,“ upplýsir Svandís Unnur. Árið 2020 barst sjóðnum met- fjöldi umsókna. „Það skýrist að miklu leyti af því að umsóknir í Fræ voru nánast tvöfalt fleiri en árið áður. Á þessum tíma var aðeins hægt að sækja um styrk í Fræ einu sinni á ári, í byrjun apríl, en brugðist var við auknum áhuga á Fræ með því að hafa alltaf opið fyrir umsóknir í þann flokk. Markmiðið með þessu breytta fyrirkomulagi var að ná að mæta þörfum stærri markhóps og ekki láta frumkvöðla þurfa að bíða í heilt ár eftir að senda inn umsókn vegna nýsköpunarhugmyndar sinnar,“ segir Svandís. Skattfrádráttur nýtist vel Það getur skipt sköpum að hljóta styrk úr Tækniþróunarsjóði. „Svo sannarlega. Þetta eru umtalsverðar upphæðir og í tals- vert langan tíma. Á reynsludögum styrkþega höfum við heyrt um þó nokkur dæmi þar sem tekið hefur verið fram að fyrirtækið væri ekki þar sem það er í dag ef ekki hefði orðið af styrkveitingum Tækniþró- unarsjóðs, og einnig skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunar- kostnaðar,“ greinir Svandís frá. Skattfrádráttur vegna rann- sókna- og þróunarkostnaðar veitir fyrirtækjum sem eru eigendur rannsókna- og þróunarverkefna rétt til skattfrádráttar vegna kostnaðar við nýsköpunarverkefni sín. „Fyrir lítil og meðalstór fyrir- tæki er endurgreiðsluhlutfallið 35 prósent og fyrir stór fyrirtæki er það 25 prósent, séu öll skilyrði uppfyllt. Fyrir ný verkefni er umsóknarfrestur til 1. október ár hvert, nema þegar fyrsti dagur mánaðarins lendir á helgi, eins og í ár; þá er fresturinn fyrsta virka dag mánaðarins. Þau verkefni sem hafa nú þegar fengið staðfestingu Rannís á umsókn sinni hafa kost á að senda framhaldsumsókn fyrir 1. apríl,“ upplýsir Svandís. Liðsinni við alþjóðlegt samstarf Frá og með 1. janúar 2021 fluttist umsýsla með Enterprise Europe Network á Íslandi til Rannís, frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þjónustan er hluti af stuðnings- umhverfi nýsköpunar á Íslandi og er öll þjónustan gjaldfrjáls. „Enterprise Europe Network (EEN) veitir fyrirtækjum ráðgjöf sem stefna í alþjóðlegt samstarf. EEN getur hjálpað fyrirtækjum að skoða evrópska styrki eins og Hori- zon Europe og aðstoðað við leit að erlendum samstarfsaðila fyrir verkefnið sitt,“ útskýrir Svandís. Öll fyrirtæki sem huga að sókn á erlenda markaði geta nýtt sér þjónustu EEN, en markhópurinn er lítil og meðalstór fyrirtæki. „Á vegum EEN eru til dæmis við- burðir eins og fyrirtækjastefnumót sem veita fyrirtækjum tækifæri til að efla tengslanetið sitt og má klár- lega segja að EEN sé góð lyftistöng fyrir nýsköpunarfyrirtæki í vexti,“ segir Svandís. Markmið Enterprise Europe Network er að styðja metnaðarfull fyrirtæki í nýsköpun og alþjóðleg- um vexti, og að upplýsa, fræða og leiðbeina íslenskum fyrirtækjum varðandi tækifæri á alþjóðamark- aði, án endurgjalds. „EEN getur aðstoðað þegar kemur að spurningum um fjár- mögnun í gegnum styrki ESB, lög og reglugerðir, CE-merkingar, tolla og virðisaukaskatt á innri markaðnum, ásamt öðrum málum tengdum alþjóðavæðingu og evr- ópska markaðnum. Sérfræðingar EEN bjóða einnig upp á nýsköp- unarþjónustu sem greinir núver- andi ástand og tækifæri fram- tíðar. Í boði eru þrjár mismunandi greiningar, með fókus á stjórnun nýsköpunar, stafræna nýsköpun og sjálfbærni.“ Fyrirtæki geta haft samband við Enterprise Europe Network í gegnum vefsíðuna een.is. Rík áhersla á jafnréttissjónarmið Talið berst að konum í nýsköpun og hvort þeim hafi fjölgað á undanförnum árum. „Konur hafa alltaf verið í nýsköpun, og það má enn finna kvenfrumkvöðla á flestum sviðum nýsköpunar, en eins og sjá má af umræðu í samfélaginu eru færri konur að fá fjármögnun, bæði þegar kemur að styrkjum og fjár- festingu,“ segir Svandís Unnur. Hjá Rannís sé rík áhersla lögð á jafnréttissjónarmið. „Með aukinni umræðu tel ég að kynjahlutfallið muni jafnast. Yfir allt síðastliðið ár var árangurshlut- fall kvenna ívið hærra í Tækniþró- unarsjóði en karla, eða 24 prósent hjá konum á móti 22 prósent hjá körlum, þrátt fyrir að vera enn í minnihluta bæði umsókna og styrktra verkefna,“ upplýsir Svan- dís. Ráðgjöf og vinnustofa í Grósku DAFNA er stuðningur sem Tækni- þróunarsjóður býður styrkþegum í samstarfi við KLAK – Icelandic Startups. „Stuðningskerfið var upphaf- lega aðeins í boði fyrir styrkþega í Sprota en nú hefur það verið stækkað og er í boði fyrir bæði styrkþega í Sprota og Vexti. Með þessari aukningu er okkur kleift að styðja við verkefni á breiðara bili nýsköpunarkeðjunnar, allt frá útfærslu hugmyndar að verkefnum sem eru langt komin með þróun afurðar sinnar,“ útskýrir Svandís Unnur. Stuðningurinn fer fram í formi vinnustofu í Grósku og ráðgjafar. „Þátttakendur í DAFNA fá sinn eigin ráðgjafa og þau hittast og vinna saman í verkefnismiðuðum markmiðum. Ágúst Hjörtur Ing- þórsson, forstöðumaður Rannís, og Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelan- dic Startups, hittust í Grósku á dögunum til að undirrita þriggja ára samning um DAFNA og tryggja framhald stuðningskerfisins til næstu ára.“ n Rannís er í Borgartúni 30. Sími 515 5800. Nánari upplýsingar um Tækniþróunarsjóð eru á rannis.is Frá vinstri: Mjöll Waldorff, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís og hluti af alþjóðateymi sviðsins. Hún leiðir Enterprise Europe Network-verkefni Rannís. Sigþrúður Guðnadóttir er sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði sviðsins. Svandís Unnur Sigurðardóttir er sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði og hluti af nýsköpunarteymi sviðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Með aukinni umræðu tel ég að kynjahlutfallið muni jafnast. Yfir allt síðasta ár var árangurshlutfall kvenna ívið hærra í Tækniþróunarsjóði en karla, þrátt fyrir að vera enn í minnihluta bæði umsókna og styrktra verkefna. 2 kynningarblað 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.