Fréttablaðið - 26.08.2022, Qupperneq 20
Það er ekkert
hugbúnaðartól til
sem gerir fólki kleift að
herma hljóð með þeirri
nákvæmni og hraða sem
við bjóðum upp á. Jafn-
framt er ekkert annað tól
til sem leyfir notendum
hreinlega að upplifa
hljóðið meðan á hönnun
stendur.
Finnur Pind
Nýsköpunarfyrirtækið
Treble Technologies þróar
hugbúnað til hljóðhönnunar.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
fyrirtækið náð miklum
árangri á alþjóðavísu og
hafið samstarf við mörg af
fremstu fyrirtækjum heims
í tækni-, byggingar- og bíla-
geiranum.
Tæknin sem fyrirtækið byggir
á gerbyltir því hvernig hægt er
að hanna hljóð og skapa hljóð
upplifanir á afar breiðu sviði.
Finnur Pind og Jesper Pedersen,
stofnendur Treble Technologies,
kynntust í DTU fyrir rúmlega ára
tug, þar sem þeir lærðu hljóðverk
fræði. „Síðan við kláruðum námið
unnum við báðir við hljóðhönnun,
hann einblíndi á heyrnartæki
og ég var í byggingargeiranum.
Að endingu skellti ég mér svo í
doktorsnám árið 2016 í DTU og í
því rannsóknarstarfi voru stigin
fyrstu skrefin í þróun tækni Treble.
Árið 2020 leiddum við Jesper svo
hesta okkar saman og hófum að
snúa afurðum rannsóknarstarfs
ins í hugbúnaðarvöru. Á þessum
tveimur árum höfum við vaxið frá
tveimur stofnendum og erum nú
23 sem störfum hjá fyrirtækinu,“
segir Finnur.
Ný tækifæri
Fólk hefur lengi reynt að líkja
eftir hegðun hljóðs í tölvum og
til er einhver tækni til þess á
markaðnum í dag. Treble Techno
logies er þó einstakt á sínu sviði.
„Okkar sérstaða er sú að við höfum
þróað tækni sem gerir fólki kleift
að herma hljóð mun hraðar og
nákvæmar en áður hefur verið
hægt. Þetta er hægt vegna nýrra
stærðfræðiaðferða og nýrrar tækni
í tölvuútreikningum í skýinu. Þessi
nýja tækni og þeir möguleikar sem
henni fylgja, opna svo fjölmörg ný
markaðstækifæri. Má þar til dæmis
nefna við hönnun bygginga, vöru
hönnun, gerð tölvuleikja, í sýndar
veruleika og margt fleira.
Okkar tækni og sú hugbúnaðar
vara sem við erum að þróa er
algjörlega ný á markaðnum. Það
er ekkert hugbúnaðartól til sem
gerir fólki kleift að herma hljóð
með þeirri nákvæmni og hraða
sem við bjóðum upp á. Jafnframt
er ekkert annað tól til sem leyfir
notendum hreinlega að upplifa
hljóðið meðan á hönnun stendur.
Með okkar lausn geta hönnuðir til
dæmis bygginga, bíla eða tækni
búnaðar, hreinlega heyrt og upp
lifað nákvæmlega hvernig varan
þeirra kemur til með að hljóma,
í stafrænni sýndarveruleikaupp
lifun, áður en varan er byggð. Þetta
gerir notendum kleift að komast
mun lengra í hönnunarferlinu áður
en þeir þurfa að búa til frumgerð
hlutar eða annað sem á að hanna.“
Raunheimar og sýndarheimar
Notagildið á tækninni sem er að
baki Treble Technologies er tví
þætt. Annars vegar nýtist tæknin
í raunheimum og hins vegar í
sýndarheimum. „Í raunheimum
nýtist tæknin við hönnun á
hverju því sem hefur með hljóð
eða titring að gera, hvort sem það
er bygging, hönnun á umhverfi,
hönnun á bílum og öðrum farar
tækjum, vörur sem nýta hljóð
eins og sjónvörp, heyrnatól, eða
annað. Okkar tækni býður þá upp
á möguleikann á því að hanna og
besta vöruna og prófa prótótýpur
á stafrænan máta. Í hönnunar
geiranum hafa digital twin, eða
stafræn þrívíddarmódel, verið
mjög mikið notuð. Okkar tækni
bætir þá hljóði og hljóðupplifun
við þannig módel.
Hin hliðin á peningnum er sú að
tæknin nýtist í sýndarheiminum.
Í því samhengi býður tæknin upp
á mjög spennandi notkunarmögu
leika í tilfellum þar sem hljóð
upplifun á að líkja eftir raunveru
leikanum. Heilinn okkar er vanur
því að hljóð hegði sér á ákveðinn
hátt í raunveruleikanum og býst
við ákveðinni hegðun þegar komið
er í ákveðnar aðstæður, til dæmis
með tilliti til stærðar rýmis, efnis
vals og fleira. Ef hljóð hegðar sér
óeðlilega í stafrænum veruleika fer
fólki að líða illa. Þetta getur verið
umhverfi í tölvuleik, sýndarveru
leika, stafrænum fundum, jafnvel
símtali og fleira. Teams og Zoom
eru til dæmis orðin mjög vinsæl
fyrirbæri og næsta skref hjá slíkri
þjónustu gæti verið að bjóða upp á
fundaraðstöðu í sýndarupplifun.
Þá þarf hljóðið að vera í lagi.“
Þessi tækni nýtist eins og sést
í mjög mörgum mismunandi
geirum og sviðum. „Þrátt fyrir
ungan aldur erum við nú þegar
í samstarfi við fjölda fyrirtækja
um allan heim sem nota tæknina
okkar. Þetta eru nokkur af stærstu
tæknifyrirtækjum í heimi, stórir
bílaframleiðendur, þekktar arki
tektastofur og fleira. Öll þessi
fyrirtæki eru í vandræðum með að
vinna með hljóð. Það er kostnaðar
samt ferli og oftar en ekki er loka
niðurstaða þeirra ófullnægjandi.
Okkar tækni leysir mörg þessara
vandamála. Í haust munum við svo
opinberlega gefa út okkar fyrstu
vöru, sem byggir á okkar tækni
sem og prófunum fyrirtækjanna
sem við vinnum nú með. Þessi vara
er hugsuð fyrir raunheimahlutann:
byggingahönnun, vöruhönnun og
bílahönnun.“
Hljóðvist og Treble Technologies
Hljóðvist í byggingum er eitthvað
sem snertir hvað flest mannfólk
enda hefur hún mikil áhrif á heilsu
og vellíðan fólks. „Tæknin okkar
gerir hönnuðum, arkitektum og
hljóðvistarsérfræðingum kleift
að greina mjög snemma í ferlinu
hvernig bygging muni hljóma. Það
er hægt að hugsa um hljóðvistina
mun fyrr í ferlinu en vanalegt er og
til dæmis er hægt að endurskoða
efnisnotkun, lögun á byggingunni
og fleira, til þess að besta hljóð
vistina í samræmi við hlutverk
byggingar. Með öðrum orðum þá
geta aðilar fundið á eigin skinni
hvernig hljóð muni haga sér í bygg
ingunni.
Margir halda að tæknin sé fyrst
og fremst hjálpleg við að hanna
tónleikasali, en raunin er sú að
þetta snýst jafnvel enn meira
um að hanna skóla og leikskóla,
sjúkrahús og skrifstofuhúsnæði og
þannig betrumbæta þær byggingar
sem fólk eyðir mestum sínum tíma
í.“
Framtíðin á milli stjarnanna
„Okkar markmið er að f lest það
sem hannað verður í framtíðinni,
með tilliti til hljóðs, muni fara í
gegnum hugbúnað Treble Techno
logies. Eitt dæmi um spennandi
framtíðarþróun sem er í gangi
núna, er að stóru tæknifyrirtækin
vinna nú að því að búa til staf
rænt þrívíddarmódel af heim
inum, sem gerir okkur kleift að
ferðast hvert sem er í heiminum
og eiga þar upplifun. Hljóð mun
verða stór hluti af því að gera þá
upplifun eins raunverulega og/
eða eftirminnilega og hægt er,
og þar smellpassar okkar tækni
inn. Skalinn og tækifærin á því
sem tæknin getur fært okkur er
í raun langt fyrir utan það sem
okkur dreymir um. Það verður því
spennandi að sjá hvað framtíðin
færir okkur.“
Treble Technologies hefur hlotið
ýmis verðlaun og viðurkenningar
á stórum alþjóðlegum ráðstefnum
sem snúa meðal annars að
byggingahönnun. „Við erum líka
þakklát Tækniþróunarsjóði fyrir
að styrkja okkur í upphafi verk
efnisins sem og öðrum fjárfestum
og samstarfsaðilum sem hafa verið
með okkur í þessari ævintýralegu
vegferð,“ segir Finnur að lokum. n
Hljóðveruleiki
framtíðarinnar
Finnur Pind er
framkvæmda-
stjóri og annar
stofnenda ný-
sköpunarfyrir-
tækisins Treble
Technologies,
sem staðsett
er í Grósku.
Hann segir
tæknina bjóða
upp á glænýja
og spennandi
möguleika fyrir
fjölmörg svið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
6 kynningarblað 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN