Fréttablaðið - 26.08.2022, Page 46

Fréttablaðið - 26.08.2022, Page 46
Maðurinn í öllu sínu veldi hefur verið minn eilífi brunnur á sköp- unarferlinum. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Höggmyndasýningin framan við Hallgrímskirkju, þar sem brynjur og naktar fígúrur standa hvorar á móti öðrum, hefur slegið í gegn og nú um helgina verður efnt til lista- spjalls með listakonunni sem segir frá hugmyndum sínum og sýningunni. ser@frettabladid.is Brynjurnar hennar Steinunnar Þórarinsdóttur á torginu framan við Hallgrímskirkju hafa vakið mikla athygli frá því þær voru settar upp í tilefni af Listahátíð fyrr í sumar. Hefur verið haft á orði að þær séu mest mynduðu höggmyndir lands- ins nú um stundir, enda virðast erlendir ferðamenn vera heillaðir af þessum verkum listakonunnar og láta festa sig á filmu fyrir framan þær í alls konar stellingum. Sjálf er Steinunn vitaskuld sátt við þessa athygli – og það í meira lagi. „Jú, algjörlega, maður fær ekki svona athygli í bunkum á hverjum degi,“ segir hún glöð í bragði þegar Fréttablaðið tekur hana tali. Listaspjall um helgina Og nú er komið að því að rýna í þessi verk á Skólavörðuholti, en í lista- spjalli nú á sunnudaginn mun Stein- unn segja frá hugmyndum sínum og sýningunni, en boðskapurinn talar inn í tíma stríðs og ófriðar í álfunni. Verkin á holtinu sýna þrjú pör, brynjaða fígúru andspænis kyn- lausri og nakinni veru og eru tákn- mynd valds og átaka, en einnig undirokunar, „þessarar eilífu áráttu mannsins að ráðast hver á annan,“ útskýrir listakonan, „og taktu eftir því,“ bætir hún við, „að nakta fígúr- an passar líka inn í brynjuna sem stendur gegnt henni, en kannski er hún að bjóða henni byrginn,“ segir Steinunn. Samveran á sunnudag hefst í forkirkjunni eftir messu, klukkan 12.20. Síðan verður gengið út á torg og brynjurnar skoðaðar og ræddar. Svo verður haldið í Suðursal þar sem Steinunn, Vigdís Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar, og séra Sigurður Árni Þórðarson ræða þessa sýningu og gestir bera fram spurningar og álit yfir ilmandi kaffi- bolla í boði hússins. Löng saga fígúranna Fígúrur Steinunnar hafa vakið mikla athygli um heim allan, en þær eiga sér líka langa sögu, flestar steyptar í ál eða járn. „Þetta hefur fylgt mér frá því á skólaárum mínum úti í Bretlandi á miðjum áttunda áratugnum,“ rifjar Stein- unn upp, svo sagan spannar bráðum hálfa öld. Má því heita að styttur Stein- unnar varði alla hennar listabraut. „Og meira og minna eru allar þeirra byggðar á einu og sömu fyrirmynd- inni,“ segir listakonan og á þar við son sinn og sjónvarpsmannsins Jóns Ársæls Þórðarsonar, Þórarin Inga, en hann hefur verið fyrirmyndin að fígúrunum allar götur frá því hann var fjórtán ára pjakkur, en hann er að verða fertugur um þessar mundir. „Ég er búin að pína hann ansi lengi,“ segir móðirin, en þykir, svona eftir á að hyggja, afskaplega vænt um samvinnuna. „Fyrir vikið hefur þetta verið fjölskyldusaga,“ bætir hún við, „og hugmyndafræðin að baki verkunum hefur hverfst um hana, okkar eigin sögu.“ Hundrað styttur eða fleiri Stytturnar er núna að finna um allan heim, í einkasöfnum, opinber- um söfnum og auðvitað úti undir beru lofti, á torgum og görðum. En Steinunn hefur ekki hugmynd um hvað þær eru orðnar margar. „Lík- lega upp undir hundrað, en ef til vill f leiri,“ segir hún íbyggin, en kveðst engan veginn hafa nákvæma tölu á hreinu. „Á einni sýningunni minni, sem nefnist Borders, sem enn stendur yfir, eru 22 verk, en hún er núna fyrir utan höfuðstöðvar Samein- uðu þjóðanna í New York og hefur ferðast um Bandaríkin frá 2011,“ bendir Steinunn á, en verk hennar eru gjarnan á ferðinni. „Oft eru þetta innsetningar með mörgum styttum,“ heldur hún áfram, „en alltaf manneskjur, það er leiðarstefið. Maðurinn í öllu sínu veldi hefur verið minn eilífi brunn- ur á sköpunarferlinum,“ segir Stein- unn og kveðst ekki getað kvartað yfir viðtökunum í gegnum tíðina. „Þetta hefur gengið ævintýra- lega vel og fyrir það er ég afskaplega þakklát,“ segir hún og minnir að lokum á að sýningin á brynjunum framan við Hallgrímskirkju hefur verið framlengd til loka september. Nema hvað. n Mest ljósmynduðu höggmyndir borgarinnar Efnt verður til listaspjalls í Hallgrímskirkju á sunnudag eftir messu þar sem listakonan rýnir í inntak verka sinna ásamt framkvæmdastjóra Listahátíðar og sóknarpresti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 18 Lífið 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ frettabladid.is Þú finnur allar nýjustu fréttir dagsins á frettabladid.is. Innlendar og erlendar fréttir, léttar fréttir, íþróttafréttir, viðskiptafréttir, skoðanapistla, spottið og auðvitað blað dagsins ásamt eldri blöðum. Hvað er að frétta?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.