Norræn tíðindi - 01.05.1956, Síða 10
Norrœn tiðindi
1956
KONUNGSKOMAN
Það var eins og veðurguðirnir héldu
vemdarhendi sinni yfir Reykvíkingum
dagana 10.—13. apríl s.l. Það var lík-
ast því, sem þeir vissu, að eitthvað ó-
venjulegt stæði til, — eitthvað, sem gat
brugðizt á hrapalegan hátt, ef þeirra
fulltingi nyti ekki. Og þeir brugðust
heldur ekki.
Þegar silfurfuglinn ,,Alf Viking“
tyllti sér á Reykjavíkurflugvöll laust
fyrir klukkan hálf þrjú síðdegis hinn
10. apríl, skartaði höfuðstaður hins
unga, íslenzka lýðveldis hinum fegursta
búningi sínum. Úti við sjóndeildarhring
stirndi á jökulskallann yzt á Snæfells-
nesi, í norðri blánaði Esja, breið og
traust, en til austurs og suður Reykja-
nesskagann stóðu hin fomu fjöll vörð
í þögulli ró, sveipuð blámóðu fjarlægð-
arinnar. Svifléttir skýhnoðrar liðu í
suðurátt, en sólin hellti geislaflóði sínu
yfir mannfjöldann, sem beið á Reykja-
víkurflugvelli tiginna gesta.
Þegar horft er um öxl og minnzt komu
dönsku konungshjónanna til Islands
hina sólbjörtu apríldaga 1956, verður
ekki annað sagt, en vel hafi til tekizt,
móttökur verið landi og þjóð til sóma
og hinum ágætu gestum vafalaust til
ánægju. Mikið var í húfi, að allt færi
vel úr hendi. Ekkert fordæmi var til
fyrir slíkri heimsókn, því að þetta var
í fyrsta sinn sem erlendur þjóðhöfðingi
kom í opinbera heimsókn til hins ís-
lenzka lýðveldis.
Það var engin tilviljun, að Friðrik
níundi Danakonungur og Ingiríður
Friðrik Danakonungur og Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri í Melaskóla.
drottning hans urðu fyrstir slíkra gesta.
Til þess liggja eðlileg rök. Það fór í
alla staði vel á því, að svo skyldi verða.
Forðum vomm vér sambandsþjóð Dan-
merkur, og konungur Islands var og
konungur Danmerkur. Þess vegna var
eðlilegt og ánægjulegt, að Danakonung-
ur skyldi sýna oss þann sóma að verða
fyrstur erlendra þjóðhöfðingja til þess
að sækja oss heim í opinberri heimsókn.
Óhætt er að fullyrða, að hlýhugur
milli íslendinga og Dana hefir aldrei
verið meiri en einmitt nú, eftir að vér
höfum að fullu endurheimt sjálfstæði
vort og endurreist lýðveldið að Þing-
6