Norræn tíðindi - 01.05.1956, Blaðsíða 13
1956
Norrœn tíðindi
Ur dagbókinni
1 desember 1954.
Aðalfundur var haldinn 3. desember 1954.
1 stjórn voru kjörin:
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, formaður;
Vilhjálmur f>. Gíslason, útvarpsstjóri, vara-
formaður;
Sveinn Ásgeirsson, hagfræðingur, ritari;
Arnheiður Jónsdóttir, kennari, gjaldkeri;
Páll Isólfsson, tónskáld;
Sigurður Magnússon, kennari;
Thorólf Smith, blaðamaður.
Eins og undanfarin ár, var efnt til Lúcíu-
hátíðar í Þjóðleikhúskjallaranum 13. desem-
ber. Undirbúning hátíðarinnar önnuðust þau
frú Arnheiður Jónsdóttir og Sveinn Ásgeirs-
son. Til skemmtunar var: Upplestur, Glunta-
söngur og danS. Lúcia var frú Anna Stina
Oddssón.
Félagsritið Norræn jól kom út undir rit-
stjóm Guðl. Rósinkranz og dr. Sigurðar Þór-
arinssonar. 1 lok mánaðarins var það tilbúið
til útsendingar.
I jan.—febr. 1955.
Félagsritinu dreift milli félagsmanna. Dreif-
ingu ritsins og innheimtu árstillaga annaðist
Njáll Breiðdal.
Stjóm félagsins réð Magnús Gíslason, náms-
stjóra, framkvæmdastjóra félagsins. Hann var
þá staddur í Svíþjóð. Félaginu var boðið að
senda áheyrnarfulltrúa á 3. þing Norður-
landaráðsins, sem haldið var í Stokkhólmi
dagana 29. jan. — 2. febr. Magnúsi Gísla-
syni var falið að sitja þingið fyrir hönd N.F.
Þar voru allir framkvæmdastjórar og aðal-
ritarar Norrænu félaganna mættir:
Arne F. Andersson, framkvæmdastjóri og
vera þar á vinabæjamóti. Ég hafði
fána meðferðis frá vinabænum hér.
Ekki gekk mér greiðlega að fá sam-
band við Áánekoski. Bærinn var langt
frá alfaraleiðum.
Vissulega er hægt að hafa samband
við bæina bréflega, skiptast á kveðjum,
fréttum eða bókagjöfum, en beztu kynn-
in verða hin persónulegu kynni, en til
þeirra verður varla stofnað að neinu
ráði, ef það er miklum erfiðleikum
bundið að efna til gagnkvæmra heim-
sókna. Slíkar heimsóknir eru mun auð-
veldari milli skandínavísku landanna.
Pjarlægð okkar lands frá öðrum lönd-
um gerir hér allt erfiðara um vik.
Þar sem vel hefur tekizt til um val
vinabæja eru þessi samskipti orðin vin-
sæll liður í félagsstarfi bæjanna. Efnt
er til gagnkvæmra heimsókna, m. a. fyr-
ir skólafólk. Skipti á bréfum, myndum,
bókum, blöðum, fánum og skjaldar-
merkjum. fþróttakappleikir ýmisskonar
eru háðir milli bæjanna og kennara-
skipti eiga sér einnig stað.
Nú stendur til að auka vinabæjatengsl
milli íslenzkra bæja og annarra nor-
rænna bæja. Það er mikilsvert að vera
vel á verði, svo að engin tilviljun ráði
því, hvaða bæir verða fyrir valinu sem
vinabæir íslenzku bæjanna.
Vinabæjamót verður haldið hér á
landi sumarið 1957. Norrænu félögin
vinna, undir forystu norsku félagsdeild-
arinnar, að undirbúningi hópferðar hing-
að til lands, þar sem fulltrúum allra
norrænna bæja, sem eiga vinabæi á
íslandi, gefst kostur á hentugri ferð
hingað.
Norræna félagið hér mun að sjálf-
sögðu gera allt sem í þess valdi stend-
ur, til þess að þetta fyrsta allsherjar-
vinabæjamót, sem haldið er hér á landi,
takist sem bezt. En hvernig það tekst,
getur haft mikla þýðingu fyrir þróun
þessara mála í framtíðinni.
Arnhei&ur Jónsdóttir.
9