Norræn tíðindi - 01.05.1956, Page 20
Norrœu tíðindi
1956
Norrœn námskeið og mót í sumar
Á vegum Norrænu félaganna verða,
eins og venja er, haldin aílmörg mót og
stutt námskeið víða á Norðurlöndum í
sumar. Norræna félagið í Reykjavík
annast milligöngu um þátttöku héðan.
Þeim, sem hafa í hyggju að fara til
Norðurlanda í sumar, skal sérstaklega
á það bent, að með þátttöku í þessum
mótum geta þeir notið ódýrrar dvalar
og ferðalaga við hin beztu skilyrði, um
leið og þeir fá tækifæri til að eignast
vini og kunningja frá öllum Norður-
löndunum.
Tilgangur þessara móta er fyrst og
fremst að stuðla að persónulegum kynn-
um fólks á Norðurlöndum og fræða
þátttakendur um gildi norrænnar sam-
vinnu.
Helztu mót og námskeið, sem ákveð-
in hafa verið, eru þessi:
í Danmörku.
Norræn æskulýðsvika verður haldin
dagana 1.—8. júlí í Hindsgavlhöllinni á
Fjóni, en það er félagsheimili Norræna
félagsins í Danmörku. Mót þetta er
fyrst og fremst ætlað fólki á aldrinum
17—25 ára. Gert er ráð fyrir, að mótið
sæki á annað hundrað þátttakendur
víðsvegar að á Norðurlöndum. Kostn-
aður verður 85.00 danskar krónur fyrir
vikudvölina.
Námskeið fyrir móðurmálskennara
verður á Hindsgavl 8.—15. júlí. Mark-
mið þessa námskeiðs er að gefa móður-
málskennurum tækifæri til að kynnast,
miðla af reynslu sinni og hlýða á erindi
þekktra sérfræðinga í þessum greinum.
Námskeið þetta heldur Norræna félagið
í Danmörku í samvinnu við samtök
danskra kennara. Vikudvölin á Hinds-
gavl kostar 150.00 eða 160.00 krónur
danskar eftir því, hvar þátttakendur
búa í höllinni.
Fræðslumót um Fjón verður haldið
á Hindsgavl vikuna 15.—21. júlí.
Námskeið fyrir félagsmenn nor-
rænna stéttarfélaga verður á Hindsgavl
dagana 22.—29. júlí. Námskeiðið er
haldið í samvinnu við upplýsingastofn-
un verkamanna í Danmörku. Kostnaður
verður alls 150.00 eða 160.00 danskar
krónur, eftir því hvar í höllinni þátttak-
endurnir búa.
í Finnlandi.
Norrænt mót verzlunar- iðnaðar-
trygginga- og bankamanna verður hald-
ið í Helsingfors dagana 5.—12. júní n.
k. Þátttakendurnir munu búa í stúd-
entagarðinum Otnás í útjaðri borgar-
innar. Farið verður í kynnisferðir m.
a. til Kotka, Myllykoski og Lahti. Kostn.
aður vegna námskeiðsins verður 7000
finnsk mörk.
Auk þess er ráðgert að halda nám-
skeið fyrir æskulýðsleiðtoga, verkstjóra
og námskeið í náttúruvernd á vegum
Norræna félagsins í Finnlandi.
í Noregi.
Norrænt kennaranámskeið verður
haldið á Trondarnes lýðháskóla, Har-
stad, í Norður-Noregi dagana 31. júlí
til 6. ágúst. Námskeið þetta er haldið
16