Norræn tíðindi - 01.05.1956, Blaðsíða 23
1956
Norræn tíðindi
7. Staða norrænna sendikennara í
heimalandi.
Framsögum.: Arne F. Andersson.
8. Tillaga um sameiginlegt heiðurs-
merki.
Framsögum.: Arne F. Andersson.
9. Ýmis mál.
Dagskrá fundarins var í aðalatriðum
þessi:
Föstudagur 26. ágúst.
Kl. 9,30 Fundur í Alþingishúsinu.
— 12,15 Hádegisverður í Sjálfstæðis-
húsinu í boði Norræna félags-
ins.
— 14,00 Fundur í Alþingishúsinu.
— 17,00 Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, tók á móti full-
trúunum á Bessastöðum.
— 19,30 Kvöldverður í ráðherrabúð-
staðnum, Tjamargötu 32, í
boði utanríkisráðherra.
Laugardagur 27. ágúst.
Kl. 9,30 Fundur í Alþingishúsinu.
— 12.15 Hádegisverður í Þjóðleikhús-
kjallaranum í boði Islands-
deildar Norðurlandaráðs.
— 14,00 Fundur í Alþingishúsinu.
Síðari hluti dagsins og kvöldið frjálst.
Sunnudagur 28. ágúst.
Ferð um Suðvesturland í boði Reykja-
víkurbæjar. Lagt af stað frá Alþingis-
húsinu kl. 9,30. Fyrst var farið að
Reykjum í Mosfellssveit og hitaveitan
skoðuð. Farið um Þingvöll að Sogs-
fossum og þar borðaður hádegisverður
kl. 13,00. Síðan komið við í Hveragerði,
Krýsuvík og Hafnarfirði, og þar var
snæddur kvöldverður í boði Hafnar-
fjarðarbæjar.
Ýmsar samþykktir voru gerðar. Þær
helztu voru þessar:
Fulltrúafundur Norrænu félaganna
lætur í Ijós þá von, að nefnd sú, sem
skipuð var að frumkvæði Norðurlanda-
ráðsins til að fjalla um bættar sam-
göngur milli Islands og Norðurlanda,
muni geta bent á leiðir og ráð til að
auðvelda og auka gagnkvæm samskipti
milli Islands og hinna norrænu frænd-
þjóða.
Fulltrúafundurinn harmaði þær deil-
ur, sem risið hafa á sviði norrænna
flugsamgangna og lýsti þeirri von sinni,
að vandamálin yrðu leyst í anda nor-
rænnar samvinnu.
Fulltrúafundurinn væntir þess, að sú
sérstaða, sem Island hefur ennþá með
því að viðhalda í framkvæmd vegabréfa.
skyldu ríkisborgara Norðurlanda, verði
úr sögunni sem fyrst.
Fulltrúafundurinn hvatti Norrænu fé-
lögin til að stuðla enn frekar að því
að styrkja hin menningarlegu tengsl Is-
lands og Norðurlanda með því að auka
hina gagnkvæmu fræðslustarfsemi með
kvikmyndum og fyrirlestrum, auknum
kennara- og nemendaskiptum og farand-
sýningum á bókum og listaverkum.
Ákveðið var að halda norrænan dag
í þriðja sinn haustið 1956 og kanna
möguleika á sameiginlegri ferð fulltrúa
frá vinabæjum á Norðurlöndum til Is-
lands sumarið 1957.
Fulltrúafundurinn ákvað að skipa
nefnd til að vinna að undirbúningi og
ganga frá tillögu um, hvernig efla mætti
norræna menningarsióði, sem fyrir eru,
eða rnynda nýja, — en tilmæli höfðu
borizt frá Norðurlandaráði til Norrænu
félaganna um að athuga og leggja fram
tillögur um þessi mál fyirr næsta þing
ráðsins.
Ákveðið var að halda næsta fulltrúa-
fund í Svíþjóð 1956.
19