Norræn tíðindi - 01.05.1956, Blaðsíða 28
Norrcen tíðindi
1956
Stjórn deildarinnar skipa: Kristján
Jónsson, frá Garðsstöðum, formaður;
Björn H. Jónsson, skólastjóri, vara-
formaður; Birgir Finnsson, fram-
kvæmdastjóri, ritari; Guðmundur Jóns-
son frá Mosdal, gjaldkeri; Jónas Tómas-
son, tónskáld, meðstjórnandi.
Norræna félagið, Sigiufirði.
Norræna félagið í Siglufirði var stofn-
að þann 27. júní 1938, að tilhlutun Guð-
mundar Hannessonar bæjarfógeta, er þá
var kjörinn fyrsti formaður þess. Aðrir
í hina fyrstu stjórn félagsins voru kjörn-
ir þeir Baldvin Þ. Kristjánsson, Þorkell
Clementz, Otto Jörgensen og Alfons
Jónsson.
Stofnendur voru 50 talsins.
Strax á fyrsta ári lét félagið til sín
taka um aukin samskipti við frænd-
þjóðirnar. Sambandið milli frændþjóð-
anna var þá lífrænna en það er nú, þeg-
ar fjöldi útlendra fiskiskipa frá öllum
Norðurlandaþjóðunum stundaði síld-
veiðar fyrir Norðurlandi og Siglufjörð-
ur var aðalbækistöð flotans. Samkomur
og samsæti voru haldin. Gagnkvæm
kynni og vinátta myndaðist, er síðan
hefur því miður nokkuð fyrnzt, vegna
óviðráðanlegra og breyttra aðstæðna.
Starfið hefur þó ávallt haldið áfram
í upprunalegum anda og tilgangi.
Árið 1941 var Baldvin Þ. Kristjáns-
son kosinn formaður í stað Guðmundar
Hannessonar, er þá baðst undan endur-
kosningu og gengur þá starfið sinn vana
gang. Þegar kemur fram um 1945, verð-
ur cvenjuleg deyfð í starfi félagsins og
helzt svo þar til 1948. Þá boða nokkrir
áhugamenn undir forystu Jóhanns Jó-
hannssonar skólastjóra og Þ. Ragnars
Jónassonar til aðalfundar og skemmti-
fundar 4. des. 1948. Hefst nú starfið á
ný af fullum krafti. Þá er tilkynnt að
Siglufjörður hafi verið kjörinn vinabær
Herning í Danmörku og fögnuðu menn
yfirleitt þeirri ráðstöfun.
Á aðalfundi í janúar 1949 er kjörinn
nýr formaður, Þ. Ragnar Jónasson, í
stað Jóhanns Jóhannssonar, er þá baðst
undan endurkjöri. Á fundinum berst
tilkynning um vinabæjamót í Herning
í Danmörku dagana 10.—14. júní og
ósk um, að félagið sendi einn eða fleiri
fulltrúa til Herning. Lifnar nú áhugi
manna, en félagið er fámennt og fá-
tækt, og því ekki hægt um vik fyrir
það a ðleggja út í kostnaðarsamt
ferðalag; það verður því að reyna á
þegnskap og áhuga manna og sjá hvað
á vinnst. Loks eru þessir erfiðleikar
yfirunnir og til ferðarinnar eru fengnir
fjórir fulltrúar, þau hjónin Ingibjörg
Eggertsdóttir og Sigurður Gunnlaugs-
son, Gróa Halldórsdóttir og Sigurjón
Sigurjónsson. Fór þetta fólk svo fyrir
félagið á eigin kostnað sem fyrstu full-
trúar frá íslandi til vinabæjamóts með
hinum frændþjóðunum. Aldrei fyrr hafði
verið haldið vinabæjamót, þar sem Is-
land átti fulltrúa, og þótti því mót
þetta marka tímamót í sögu norrænu
félaganna og vinabæjahreyfingarinnar.
Mót þetta var í alla staði hið ánægju-
legasta, og varð vísir þess samstarfs,
er síðan hefur ætíð verið milli vinabæj-
anna allra og Siglufjarðar. Vinabæja-
hringnum var með móti þessu lokað,
en hann skipa 5 bæir, einn í hverju
Norðurlandanna. Vinabæir Siglufiarðar
eru Herning í Danmörku, Utajárvi í
Finnlandi, Holmestrand í Noregi og Vá-
nersborg í Svíþjóð. Síðan 1949 hafa
svo verið vinabæjamót í öllum þessum
bæjum. Norræna félagið hefur átt full-
trúa á fjórum vinabæjamótum, og eitt
mót hefur verið haldið hér á Siglufirði.
Fyrsta vinabæjarmótið, sem haldið hefur
24