Norræn tíðindi - 01.05.1956, Blaðsíða 29
1956
Norrœn tíðindi
verið á íslandi, var haldið hér dagana
26. júlí til 1. ágúst 1951. Þar mættu
fulltrúar frá öllum vinabæjum Siglu-
f jarðar. Mótið tókst með ágætum í alla
staði og hefur verið fyrirmynd annarra
bæja hvað tilhögun alla snertir. Öll
skjöl og nákvæm lýsing á móti þessu
hafa áður verið send Norræna félag-
inu í Reykjavík og þarf því ekki að
fjölyrða um það nú.
Á aðalfundi félagsins haustið 1951
er svo Sigurður Gunnlaugsson kosinn
formaður, og gegnir hann því starfi
enn. Fyrrverandi formaður Þ. Ragnar
Jónasson baðst eindregið undan endur-
kjöri vegna mikils annríkis.
Starfsemi félagsins hefur einkum
verið fólgin í því að halda uppi sem
mestu lífrænu sambandi milli vinabæj-
anna. Bréfaskriftir hafa verið milli fé-
lagsdeildanna og einstaklinga. Skipzt
hefur verið á gjöfum í sambandi við
vinabæjamótin. í fyrstu var skipzt á
þjóðfánunum, svo að nú eiga norrænu
félögin í vinabæjum Siglufjarðar stóra
þjóðfána allra Norðurlandanna og nú
standa yfir skipti á „skjaldarmerkjum"
vinabæjanna. Norræna félagið hér hefur
þegar gefið tveim vinabæjum sínum
skjaldarmerki Siglufjarðar útskorið í
tré. Næst átti Siglufjörður að halda
vinabæjamót í sumar, en vegna fyrir-
hugaðrar hópferðar til íslands sumarið
1957 hefur félagið ákveðið að fresta
vinabæjamótinu til þess tíma, í von um
meiri þátttöku frá vinabæjunum. Hvort
sem úr hópferðinni verður eða ekki, er
því ákveðið vinabæjamót í Siglufirði
sumarið 1957, og verður það þá annað
mótið á Islandi innan þessa vinabæja-
hrings. Talsvert starf er því framundan
og nokkrir örðugleikar, en það er bjart-
sýnn áhugi hér í Siglufirði á nor-
rænni samvinnu. Við lítum því björtum
augum til framtíðarinnar og vonum hið
bezta um starf núverandi stjórnar N.F.
í Reykjavík, sérstaklega hvað viðkemur
meira samstarfi milli félagsins í Reykja-
vík og hinna ýmsu félaga út um landið.
Við teljum nauðsynlegt að félögin öll
myndi með sér náið samband til frekari
kynna og betri árangurs í sameiginlegu
áhugamáli.
Núverandi stjórn Norræna félagsins
í Siglufirði skipa: Formaður Sigurður
Gunnlaugsson, varaform. Ragnar Jó-
hannesson, ritari Þ. Ragnar Jónasson,
gjaldkeri Hjörleifur Magnússon og vara-
gjaldkeri Bjarni Jóhannsson.
Þessi er, í stuttu máli, saga Norræna
félagsins í Siglufirði.
Þess skal að lokum getið, að við ósk-
um þess einlæglega, að deildir þær, sem
starfandi eru úti um land, sendi okkur
línu um starfsemi sína og áhugamál,
er við hefðum ánægju af að kynnast
og ræða.
Með félagskveðju.
S. G.
Norrænn menningarsjóður
Á þriðja fundi Norðurlandaráðsins
var borin fram tillaga þess efnis, að
athugaðir yrðu möguleikar á því að
stofna kerfisbundna sjóði til styrktar
norrænni samvinnu í menningarmálum.
Var þeirri tillögu vísað til menningar-
málanefndar Norðurlandaráðsins, sem
síðan ákvað að bjóða Norrænu félögun-
um að skipa nefnd, sem hefði heimild
ráðsins til að kanna hina ýmsu mögu-
leika til öflunar fjár til styrktar hinum
norrænu menningarmálasjóðum.
Á fulltrúafundi Norrænu félaganna í
Reykjavik s. 1. sumar var mál þetta
25