Norræn tíðindi - 01.05.1956, Blaðsíða 30
Norrœn tíðindi
1956
Vinabœir
Nokkur undanfarin ár hafa óskir bor-
izt frá norrænum bæjum um vinabæja-
tengsl við íslenzka bæi. Hefur þá venj-
an verið sú, að ósk hefur borizt frá
norrænum bæ um samband við ákveð-
inn bæ á Islandi. Skrifað hefur verið
bréf um málið og sent bæjarstjórn eða
sveitarstjóm viðkomandi bæjar, sem þá
oftast hefur brugðizt vel við og sam-
þykkt vinabæjasambandið. Sjaldan hef-
ur það þó verið athugað nánar, hvort
þeir bæir, sem um er að ræða, séu öðr-
um fremur hentugri sem vinabæir hlut-
aðeigandi bæjar. En oftast hefur sá bær,
sem óskina sendir til íslands, áður
tengzt vináttuböndum við bæi með-
al hinna frændþjóðanna og þannig öðl-
ast íslenzki bærinn 4 vinabæi samtímis,
sinn í hverju landi.
Hér skal birt yfirlit yfir vinabæi
þeirra 10 bæja á íslandi, sem þegar hafa
samþykkt vinabæjatengsl:
Island:
Akranes
Akureyri
Hafnarfjörður
Hveragerði
ísafjörður
Reykjavík
Sauðárkrókur
Selfoss
Seyðisfjörður
Siglufjörður
Danmörk:
Tonder
Randers
Frederiksberg
Brande
Roskilde
Kobenhavn
Varde
Lyngby
Ábenrá
Herning
Pinnland:
Nárpes
Lathi
Tavastehns
Áánekoski
Joensuu
Helsingfors
Kajana
Dickursby
Lojo
Utajárvi
Noregur:
Langesund
Álesund
Bærum
Skoger
Tonsberg
Oslo
Levanger
Askim
Honefoss
Holmestrand
Svíþjóð:
Vástervik
Vásterás
Uppsala
Örnskjöldsvik
Linköping
Stoekholm
Kramfors
Huddinge
Váxjö
Vánersborg
rætt og nefnd skipuð að ósk Norður-
landaráðsins til að fjalla um málið.
Hélt hún fund í Stokkhólmi í október
s. 1., en í nefndinni eiga sæti af hálfu
Norræna félagsins Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri og Sveinn Ásgeirsson, hag-
fræðingur. C. V. Bramsnæs, fyrrum
þjóðbankastjóri Dana, var kjörinn for-
maður nefndarinnar. Nefndin hefur skil-
að áliti, þar sem bent er á, að engir
sjóðir séu til, sem hafi þann tilgang
að stuðla að menningarlegri samvinnu
allra Norðurlanda. Þeir ýmsu sjóðir, sem
fyrir hendi eru, miða allir tilgang sinn
við menningarleg samskipti tveggja
eða þriggja landa.
Það er tillaga nefndarinnar, að stofn-
aður verði Norrænn Menningarsjóður
að upphæð 30 milj. norskra króna
(reiknað í norskum krónum, þar sem
þær standa að verðgildi miðja vegu
milli gjaldeyris annarra Norðurlanda).
Framlag hverrar þjóðar miðist við fólks-
fjölda, og veiti ríkið tilskilda upphæð
á fjárlögum hvers árs. Lagt er til, að
stjórn sjóðsins sé skipuð 15 mönnum,
þremur frá hverju landi, og séu 5 til-
nefndir af Norrænu menningarmála-
nefndinni, 5 af Norrænu félögunum og
5 af Norðurlandaráðinu.
Þetta nefndarálit var lagt fyrir 4.
fund Norðurlandaráðsins.
26