Norræn tíðindi - 01.12.1962, Blaðsíða 8

Norræn tíðindi - 01.12.1962, Blaðsíða 8
Norrœn tíðindi 1962 Hátíðarsamkoma í Þjóðleikhúsinu. Fjörutíu ára afmælisins var minnst með hátíðarsamkomu í Þjóðleikhúsinu laugardagskvöldið 29. sept. síðastliðinn. Félagið bauð hinum góðkunnu leikur- um Önnu Borg og Poul Reumert hingað til lands í tilefni 40 ára afmælisins. Þau voru heiðursgestir félagsins og lásu upp kvæði, sögu og kafla úr leikriti á há- tíðarsamkomunni. Frú Anna Borg las kvæðið Svanerne fra Norden eftir Seedorff Pedersen og smásöguna Soninn eftir Gunnar Gunn- arsson. Poul Reumert las kvæðið Terje Vigen eftir Henrik Ibsen. Auk þess fóru þau bæði saman með síðasta þáttinn úr Fjalla-Eyvindi eftir Jóhann Sigurjóns- son. Önnur atriði hátíðarsamkomunnar voru: Ávarp formanns Norræna félags- ins Gunnars Thoroddsen, fjármálaráð- herra, einsöngur og einleikur á fiðlu. Norskur söngvari Oiav Erikssen, söng nokkur norsk lög, söngva eftir Edward Grieg, og Kristinn Hallsson, óperu- söngvari söng lög eftir finnsk tónskáld. Undirleik annaðist Ámi Kristjánsson, píanóleikari. Sænskur fiðluleikari, Gert Crafoord, flutti sænska tónlist við undirleik konu sinnar, Ann Mari Fröier, píanóleikara. Þessir ágætu listamenn frá Noregi og Svíþjóð voru einnig gestir Norræna fé- lagsins. Þeir komu hingað í tilefni 40 ára afmælisins að tilhlutan sendiherra Noregs og Svíþjóðar. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirs- son og forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir, heiðruðu félagið með nærveru sinni. Forseti Islands er heiðursfélagi Nor- ræna félagsins. Kjömir heiðursfélagar. Eftir hátíðarsýninguna í Þjóðleikhús- inu, voru bornar fram veitingar í kristal- sal leikhússins fyrir gesti félagsins. Meðal gesta voru sendiherrar Norður- landaþjóðanna á íslandi, Bjarne Poul- son, sendiherra Dana, August von Hart- mansdorff, sendiherra Svía, Johan Cappelen, sendiherra Norðmanna og að- alræðismaður Finna, Eggert Kristjáns- son, stórkaupmaður. Gunnar Thoroddsen, fjármálaráð- herra, formaður Norræna félagsins, bauð gesti velkomna. Sendiherrar frændþjóðanna fluttu stuttar ræður, ámuðu félaginu heilla og afhentu blómakörfur frá systurfélögunum á Norðurlöndum. Formaður félagsins þakkaði fyrir hönd Norræna félagsins og las því næst afmæliskveðjur og heillaóskir, sem félaginu höfðu borizt. Síðan skýrði Gunnar Thoroddsen frá því, að þrír fyrrverandi formenn félags- ins hefðu verið kjörnir heiðursfélagar. Hann ávarpaði hina nýkjörnu heiðurs- félaga nokkrum orðum og afhenti þeim skrautrituð skjöl. Fyrstur þeirra var prófessor Sigurður Nordal, en hann var formaður félagsins 1932—1936. Prófes- son Sigurður Nordal þakkaði félaginu heiðurinn og árnaði því allra heilla. Þá skýrði Gunnar Thoroddsen frá því að samband hefði verið haft við Stefán Jóhann Stefánsson, sendiherra, um að hann hefði verið kjörinn heiðursfélagi og hefðu þakkir og heillaóskir til félags- ins borizt frá honum. Stefán Jóhann Ste- fánsson var formaður Norræna félags- ins 1936—1952. Að lokum ávarpaði Gunnar Thoroddsen Guðlaug Rósin- kranz, þjóðleikhússtjóra, og afhenti honum heiðursskjal, en þjóðleikhús- stjóri var formaður félagsins 1952— 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Norræn tíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn tíðindi
https://timarit.is/publication/1680

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.