Norræn tíðindi - 01.12.1962, Page 9

Norræn tíðindi - 01.12.1962, Page 9
1962 Norrœn tíðindi Gunnar Thoroddsen, formaður Norræna fé- lagsins, afhenti hinum nýkjörnu heiðursfélög- um N.P., Sigurði Nordal, prófessor (efri mynd- in) og Guðlaugi Rósinkranz, þjóðleikhússtjóra (neðri myndin), skrautrituð skjöl frá félag- inu við hátíðlega athöfn í Kristalsal Þjóð- leikhússins hinn 29. sept. 1962. 54, en ritari félagsins var hann árin 1931—52. Hann flutti nokkur þakkar- orð og óskaði félaginu góðs gengis í framtíðinni. Fimm menn eru nú heiðursfélagar Norræna félagsins. Auk þessara þriggja nýkjörnu heiðursfélaga eru forseti Is- lands hr. Ásgeir Ásgeirsson (kjörinn 4. maí 1954) og fyrrverandi þjóðbanka- stjóri C. V. Bramsnæs (kjörinn 27. júlí 1960) heiðursfélagar. C. V. Bramsnæs, fyrrum formaður norræna félagsins í Danmörku, er heiðursfélagi allra félag- anna. Afmæliskveðjur og heillaóskir. I tilefni af 40 ára afmælinu bárust félaginu margar kveðjur og árnaðar- óskir. Blómakveðjur bárust frá nor- rænu félögunum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og skrautritað ávarp frá finnska félaginu. Auk þess barst blómakarfa frá Banda- lagi ísl. listamanna og heillaóskir frá félagsdeildum, einstaklingum og öðrum aðilum bæði erlendum og innlendum, m. a. barst svohljóðandi kveðja frá Há- skóla íslands undirritað af háskóla- rektor, Ármanni Snævarr: „Háskóli Islands sendir Norræna fé- laginu beztu afmæliskveðjur og þakkar víðtækt og mikilvægt starf til eflingar menningartengslum við þær þjóðir, sem oss standa næst fyrir sakir skyldleika, sameiginlegrar menningararfleifðar og áþekkra lífsviðhorfa. Megi félaginu vel famast í framtíðarstarfi, megi sam- vinna og samhugur Norðurlandaþjóða enn eflast“. 7

x

Norræn tíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norræn tíðindi
https://timarit.is/publication/1680

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.