Norræn tíðindi - 01.12.1962, Page 12

Norræn tíðindi - 01.12.1962, Page 12
Norrœn tíðindi 19fi2 Sömu lögum lýtur val þjóöa, er þær velja sér aörar þjóöir til að vinna með að lausn mála, er báðar mega hafa sóma og blessun af. Kunnugt er, að Norðurlandaþjóðirn- ar eru skyldari oss en nokkrar aðrar þjóðir. Má segja að hér eigi við orð móður Einars Benediktssonar, sem hún segir við son sinn: „Sama blóðið er i okkur, dropar tveir en sami sjór.“ Á Norðurlöndum er alþýðumenntun meiri en víðast hvar annarstaðar, stétt- armismunurinn minni, listir og vtsindi almennari, félags- og dómsmálalöggjöf betri og mildari, mannréttindi meiri og þráin í varanlegan og öruggan frið ein- lægari. Öll þessi þjóðareinkenni hafa samþróazt á Norðurlöndum vegna margra alda menningartengsla milli landanna. Það hlaut því að leiða af sjálfu sér, að er Island varð sjálfsætt ríki, tæki það upp samvinnu við þessi lönd um lausn margra vandamála, sem það var ekki fœrt um að leysa eitt sér. Norðurlöndunum var það vel Ijóst í síðustu heimsstyrjöld, að ef þau hefðu borið gæfu til að sameinast um utan- ríkismál og friðarmál strax að loknum ófriði 1918, á sama hátt og þau hafa nú gert, og komið þar fram sem ein órjúf- anleg heild, þá hefði mörgum hörmung- um, sem þær urðu að þola, verið afstýrt. Eins og þeim er það og Ijóst, að beri þau gœfu til að halda saman og koma fram sem ein heild framvegis, þá koma þau til að hafa mikil og afgerandi áhrif á gang hinna örlagaríkustu mála í fram- tíðinni, ekki einasta t Evrópu heldur og á miklu víðtœkara svæði. Norðurlöndin leggja á það mikla áherzlu, að ísland slitni ekki úr tengsl- um við þau. Þau líta á Island, sem varn- arvegg, er óvelkomnir menningar- Móðir Lemminkáinens. Hluti af málverki eftir Akseli Gallen-Kallela (1865—1931) straumar frá vestri brotni á, svo að þeir flæði eigi án andspyrnu inn á Norður- löndin. Treysta þar á forna og nýja menningu þjóðarinnar og þrótt hennar þótt að hún sé fámenn. Og þær eru fús- ar til að fórna all miklu til þess, að ís- lenzka þjóðin verði jafnan vaxinn þeim vanda. Sýna þau þetta bezt með þvt að byggja hér og starfrækja Norræna menningarstofnun, svo sem ákveðið er, en kostnað allan bera Norðurlöndin sameiginlega. Er þess vænst, að Finn- ar spyrni á sama hátt við óœskilegum menningarstraumum frá austri. Að minni hyggju á tsland að vera framvegis virkur þátttakandi t nor- rænni samvinnu, og mun það láta margt gott af sér leiða ekki einasta fyrir oss sjálfa, heldur og fyrir aðrar þjóðir. Gísli Jónsson. 10

x

Norræn tíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norræn tíðindi
https://timarit.is/publication/1680

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.