Norræn tíðindi - 01.12.1962, Page 19

Norræn tíðindi - 01.12.1962, Page 19
1962 Norrœn tíðindi HELGIDÓMUR ÞAGNARINNAR Oænhús í höll Sameinuðu þjóðanna I höll Sameinuðu þjóðanna í New York lét Dag Hammarskjöld aðalritari samtakanna innrétta lítið herbergi sem bænhús, helgidóm þagnarinnar. Þar eru aðeins 8 stólar. Þeir eru með hálmsætum og eru af mjög einfaldri gerð. Á miðju gólfi stendur málmsteins- blokk og úr lofti herbergisins fellur Dag Hammars'kjöld Ijósgeisli yfir steininn. Annan hliðar- veginn hefur sænski listamaðurinn Bo Beskow myndskreytt. Aðrir munir eru ekki í herberginu. Við inngang þessarar litlu vistarveru fá gestir afhent dálítið blað, þar sem aðalritarinn kynnir „herbergi þagnar- innar“ í fáum orðum. Orð Dag Hammarskjölds eru á þessa leið: Þetta herbergi er helgað hug- sjón friðarins og þeim sérstaklega, er fórna lífi stnu í þágu friðarins. Innst t vorri vitund á kyrrðin grið- land. Þar ræður þögnin rtkjum. 1 þessari byggingu, sem Hinar Sam- einuðu þjóðir reistu yfir starfsemi stna t þágu friðarins, þar sem fulltrúar hinna ýmsu þjóða skiptast á skoðunum t rök- ræðum, leita samstöðu eða leitast við að sætta fjarskyld sjónarmið, er fúll þörf fyrir vistarveru, sem helguð er þögninni, út á við gagnvart umhverf- inu og kyrrðinni, inn á við gagnvart vorri innstu vitund. Tilgangurinn var að skapa athvarf t litlu friðhelgu herbergi, þar sem hægt er að vera í einrúmi með hugsanir stn- ar og bænagjörð, þar sem dyr standa opnar inn t ómælis heim frjálsrar hugs- unar og þögullar bænar. Fólk, sem aðhyllist hin fjarskyldustu trúarbrögð er ætlað að eiga hér athvarf, þess vegna mega engin þau tákn, sem að jafnaði eru notuð við guðsþjónustu hinna ýmsu safnaða fyrirfinnast hér. En hér eru þó tákn, sem tala sama máli til vor allra. Vér höfum leitað að sltkum táknum og höldum oss hafa fundið þau t Ijósgeislanum úr lofti her- bergisins, er flœðir yfir glitrandi málm- grýtið. 1 miðju herberginu sjáum vér þann- ig tákn þess, hvernig Ijós himinsins gef- ur jörðinni, sem fóstrar oss, Ijós og 17

x

Norræn tíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norræn tíðindi
https://timarit.is/publication/1680

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.