Norræn tíðindi - 01.12.1962, Blaðsíða 22

Norræn tíðindi - 01.12.1962, Blaðsíða 22
Norrœn tlðindi 1962 gerð um þetta mál, sem útbýtt var á fundinum. og kom hann þar m.a. fram með athyglisverðar tillögur um endur- skipulagningu á nokkrum þáttum í starfsemi Norrænu félaganna með til- liti til nýrra viðhorfa á evrópskum vett- vangi. Ýmiss nýmæli koma þar fram, sem verða tekin til athugunar af stjóm- um félaganna á næstu mánuðum. Fundurinn samþykkti allýtarlega á- litsgerð um þetta mál, þar sem m.a. er nefnt, að það sé álit fundarins að nauð- sjmlegt sé, að norrænu þjóðirnar séu vel á verði í sambandi við þróun mála á sviði efnahagsbandalags-málanna í Evr- ópu, og að þau styrki sem bezt sam- stöðu sína, þar sem þjóðimar megi sín lítils ein og ein, en sameinaðar geti þær orðið öflugur aðili í þessum efnum. Annað mál á dagskrá var: Norrœnu félögin og kennslan í Noröurlandamál- um. Framsögumaður var Arne F. And- ersson, framkvæmdastjóri Norræna fé- lagsins í Svíþjóð. Meðal tillagna, sem fram komu í því máli, var endurskoðun á starfsskilyrð- um og launakjörum sendikennara, sem starfað hafa á vegum félaganna. Einnig kom fram tillaga um að at- hugað yrði, hvort ekki væri unnt að nota ný-íslenzkan framburð að ein- hverju eða nokkru leyti á skyldunám- skeiðum í fornnorrænu máli, sem kall- ast oldnordisk í Danmörku, gammel- norsk í Noregi og fornsvenska í Sví- þjóð, en allir norrænir stúdentar, sem lesa móðurmál til embættisprófs, verða að taka slíkt námskeið í fornnorrænu máli og er þá notaður framburður, sem er harla mismunandi í hverju þessara landa fyrir sig, og oft er engin sönnun fyrir því, að sá framburður sé nær því upprunalega en nútímaíslenzkur fram- burður orðanna. Ef tekinn yrði upp nú- tímaíslenzkur framburður á fornmáli þessara landa, t.d. að vissu marki, mundi það þýða, að þúsundir norrænna móðurmálskennara fengju nokkurra til- sögn í nútíma-íslenzku árlega og nám- skeiðin í fornnorræna málinu yrðu líf- rænni og aðgengilegri fyrir stúdentana. Þriðja mál fundarins var: Sérstaða Islands og Finnlands í norrœnni sam- vinnu. Henrik Groth, bókaútgefandi, formaður Norræna félagsins í Noregi var framsögumaður og lagði hann mjög glögga greinargerð fyrir fundinn um ýmsa þætti þessa máls. Hann gerði grein fyrir samstarfi og tengslum skandínavísku landanna þriggja Danmerkur, Noregs og Svíþjóð- ar hvers um sig við ísland og Finn- land og kom fram með mjög athyglis- verðar tillögur í 10 liðum til örvunar gagnkvæmu samstarfi þessara þjóða. Þar er m.a. talað um að skipa nefnd, sem fengi það verkefni, að efla þátt Islands og Finnlands í menningarsam- skiptum norænna þjóða almennt, að efna til námskeiða og fyrirlestra í ríkara mæli en nú er um íslenzkar og finnskar bókmenntir og aðra menning- arþætti í nágrannalöndum, að fá fleiri ísl. og finnskar bækur þýddar á önnur Norðurlandamál og að láta semja óska- lista yfir hvaða skáldrit ætti öðrum fremur að þýða. Rætt var um aukna útgáfustarfsemi til að kynna bæði bók- menntir og listir þjóðanna út á við, út- gáfu orðabóka, aukin nemendaskipti, og síðast en ekki sízt minntist Henrik Groth á stofnun norrænu menningar- miðstöðvarinnar, sem ráðgert er að reisa í Reykjavík til eflingar samstarfs og tengsla milli íslands og norrænu frændþjóðanna. Uffe Grosen, formaður dönsku menn- ingarmálanefndarinnar, er var einn af 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Norræn tíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn tíðindi
https://timarit.is/publication/1680

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.