Norræn tíðindi - 01.12.1962, Síða 27

Norræn tíðindi - 01.12.1962, Síða 27
1962 Norrœn tíðindi reynslu en hliðstæð samtök í stærri löndum. Þannig getum við miðlað af reynslu okkar og þegið fróðleik og fengið hugmyndir frá öðrum í starfi, sem hefur það að markmiði að vera neytandanum til leiðbeiningar og að- stoðar. Á fundinum í Kaupmannahöfn báru menn saman bækur sínar, tjáðu skoðanir sínar og rökræddu, hvemig bezt myndi hægt að verða neytendum að liði. Þar voru samræmdar rannsókn- ir og rannsóknaraðferðir og rædd mál, sem voru á döfinni í hverju landi og hliðstæður þeirra í hinum. Eitt mál vil ég sérstaklega nefna, sem mikið var rætt — ég nefni það sem dæmi, því að í þeim efnum erum við aftastir allra. Það eru vörumerkingar. I hinum lönd- unum hefur tekizt að ná samkomulagi við framleiðendur fjölda margra vöru- tegunda um ítarlegar upplýsingar um vörurnar, sem veittar er usamkvæmt sérstökum reglum, og fylgja þeim á litlum miðum, sem skýra frá öllu, sem neytandann skiptir máli. Innihald, sam- setning, meðferð, þol, o.s.frv. Hvílíkum verðmætum er ekki forðað á þann hátt fyrir einstaklinginn og þar með þjóðfé- lagið í heild, og hve mikið fer ekki í súginn hjá þeim, — hjá okkur, sem hirða ekki um að veita neinar slíkar upplýsingar og leiðbeiningar? — Hér þurfa menn ekki einu sinni að láta framleiðanda getið, hvað þá annars, þótt um vöru sé að ræða, sem hundruðir króna kostar og jafnvel þúsundir. Við þekkjum vandann, þegar leitað er til Neytendasamtakanna hér eftir bitra reynslu. Hér er brýn þörf ákveðinna aðgerða og úrbóta, eins og Neytenda- samtökin hafa margsinnis krafizt. Við væntum þess að reynsla og fyrir- mynd annarra Norðurlanda verði til þess að flýta fyrir framkvæmdum í þessum málum hér á landi. Hin nor- ræna samstarfsnefnd um neytendamál- efni gegnir tvímælalaust hinu þarfasta hlutverki og er glöggt dæmi um raun- hæfa, norræna samvinnu, eins og hún reyndar birtist á mörgum sviðum, og í þessu tilfelli á vettvangi þeirra, er vinna að hagsmunamálum neytenda. Sveinn Ásgeirsson. Norrœna félagið Heiðursf élagar: Ásgeir Ásgeirsson, forseti Islands C. V. Bramsnæs, fyrrv. aSalbankastjóri. Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri Sigurður Nordal, prófessor Stefán Jóhann Stefánsson, sendiherra. Sambandsstjórn Norrænu félaganna: Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, formaður Arnheiður Jónsdóttir, námsstjóri Gunnar Ólafsson, skólastjóri Steindór Steindórsson, yfirkennari Sveinn Ásgeirsson, hagfræðingur Þórleifur Bjarnason, námsstjóri Þóroddur Guðmundsson, rithöfundur. Varamenn: Baldur Eiríksson, bæjarstjórnarforseti Grethe Ásgeirsson, frú Guðmundur Jónsson, skólastjóri Páll Isólfsson, tónskáld Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri Vilhjálmur Sigurjónsson, gjaldkeri. Stjórn Norræna félagsins í Reykjavík: Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, formaður Arnheiður Jónsdóttir, námsstjóri Páll Isólfsson, tónskáld Sigurður Magnússon, blaðafulltrúi Sveinn Ásgeirsson, hagfræðingur Thorolf Smith, fréttamaður Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri. Framkvæmdastjóri félagsins: Magnús Gíslason, námsstjóri. Heimilisfang Norræna félagsins: Vonarstræti 8. Pósth. 912, Reykjavík. 25

x

Norræn tíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn tíðindi
https://timarit.is/publication/1680

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.