Fréttablaðið - 03.09.2022, Síða 34

Fréttablaðið - 03.09.2022, Síða 34
ástandi. Saga Natura hefur gert ítarlega markaðsrannsókn á hvaða meðferðir eru í boði á þessum hvimleiða kvilla og virðast engar meðferðir vera til sem eru varan- legar. Margar hverjar geta verið ansi sársaukafullar eða fela í sér töluvert inngrip og flestar endast þær illa. Kosturinn við AstaSkin er að einungis þarf að muna eftir að taka tvær töflur á dag og vanda- málið minnkar umtalsvert eða hverfur alveg.“ Sólveig segir að Saga Natura fái einnig stundum sendar fyrir og eftir myndir frá viðskiptavinum sem hafa verið að kljást við bólur. Í sumum tilfellum hefur þessum einstaklingum verið ávísað sýkla- lyf, sem er töluvert inngrip, en þau hafi oft ekki gefið nægilega góðan árangur og þá aðeins í skamman tíma. Um leið og þessir ein- staklingar fóru að taka AstaSkin að staðaldri myndaðist jafnvægi í húðinni og bólurnar hurfu nánast alveg. Þetta á við um fólk frá 18 ára aldri af öllum kynjum.“ Saga Natura fær styrk til útrásar á AstaSkin Hjá Saga Natura starfar öflugt rannsóknar- og þróunarteymi og er markmið þeirra að rannsaka virkni vara Saga Natura í þaula. „Það var mikil viðurkenning fyrir okkur að fá rannsóknarstyrk frá Matvælasjóði, meðal annars í þeim tilgangi að gera heild- stæða markaðsúttekt á markhópi AstaSkin erlendis. Einnig höfum við sótt um hugverkaleyfi fyrir okkar sérstöku formúlu sem liggur á bak við AstaSkin.“ Sólveig bætir við að vinsældir AstaSkin hér á landi hafa styrkt Saga Natura í enn frekari útrás. „Við ætlum okkur stóra hluti fyrir AstaSkin á komandi misserum, rétt eins og við höldum áfram að sækja út með okkar stærstu vöru, SagaPro, sem við seljum nú þegar í 9 löndum við afar góðan orðstír.“ Sólveig telur AstaSkin eiga mikið erindi á alþjóðamarkað: „Fyrir tveimur árum framkvæmdi rannsóknarteymi Saga Natura neytendakannanir á AstaSkin. Í þeirri fyrri tóku einstaklingar með Keratosis pilaris AstaSkin í tvo mánuði. Þarna voru einstaklingar bæði með rubra-afbrigðið sem er oft kallað „strawberry skin“ og hins vegar alba-afbrigðið sem er kallað „chicken skin“. Það fannst greinilegur munur á þessum tveimur hópum. Einstaklingar með KP rubra fundu engan mun á tveimur mánuðum en allir þeir sem voru með KP alba fundu töluverðan mun eftir inntöku AstaSkin. Í kjölfarið var fram- kvæmd önnur könnun á einungis einstaklingum sem glímdu við KP alba, en sú könnun stóð yfir í sjö mánuði. Niðurstöðurnar úr henni studdu við fyrri niðurstöðurnar. Það tók um tvo mánuði að sjá áhrif AstaSkin á húðina og einkennin minnkuðu með hverjum mánuð- inum. Það var því virkilega áhuga- vert og ánægjulegt að sjá viðbrögð þátttakenda í lok könnunarinnar þegar fyrir og eftir myndir voru skoðaðar, þar sem margir trúðu varla hve munurinn var mikill.“ n AstaSkin er selt í öllum helstu matvörubúðum, apótekum og á heimasíðunni saganatura.is Ólafía Kvaran í Spartankeppni. Hún segir að astaxanthin, sem finnst meðal annars í AstaSkin, hafi aukið endurheimt eftir æfingar. Ólafía hefur nýtt sér áskriftarfyrirkomulag Saga Natura. MYND/AÐSEND Sólveig Stefáns- dóttir, fram- kvæmdastjóri Saga Natura Þrjú mikilvæg efni fyrir húðina í einni vöru: Seramíð, astaxanthin og kollagen ásamt öðrum mikilvægum vítamínum og steinefnum. „Eins og með öll bætiefni virka þau ekki nema maður taki þau reglulega inn. Ég þurfti að sýna þolinmæði og fór ekki að finna verulegan mun fyrr en eftir fjórar vikur. Síðan þá hef ég tekið Asta Skin sleitulaust í nær 4 ár með einni undantekningu en þá mynduðust þurrkublettirnir á húðinni nánast um leið og ég hætti að taka það og glansinn á T-svæð- inu í andlitinu birtist aftur.“ Áskriftarfyrirkomulag sem virkar Ólafía hefur nýtt sér áskriftarfyrir- komulag Saga Natura. „Mér finnst það frábær kostur því það kemur í veg fyrir að ég gleymi að taka inn þessi mikilvægu fæðubótarefni sem Saga Natura býður upp á og þá sérstaklega AstaSkin. Bætiefnin koma inn um póstlúguna hjá mér mánaðarlega og ég fylli svo sjálf- krafa á áldósirnar. Þetta er vist- vænt og hagkvæmt því ég fæ alltaf 15% afslátt af vörunum svo og fría heimsendingu.“ Leyndarmálið á bak við AstaSkin Sólveig Stefánsdóttir, fram- kvæmdastjóri Saga Natura, segir að AstaSkin hafi fyrst komið á markað árið 2018. Leyndarmálið á bak við AstaSkin er einstök blanda af þremur mikilvægum bætiefnum sem styrkja húðina, auk þess sem í AstaSkin séu önnur vítamín eins og A-, C-, D- og E-vítamín sem stuðli öll að bættri húðheilsu. Eitt af lykilhráefnunum í AstaSkin er seramíðið Myoceram sem er klínískt rannsakað fæðu- bótarefni. Náttúrulegt seramíð í húð fólks minnkar alla jafna yfir veturinn og því er mikilvægt að huga vel að lausnum fyrir húðina nú þegar haustið nálgast. Sera- míðið í AstaSkin vinnur gegn rakatapi húðarinnar og hjálpar til við að draga úr þurrki húðar- innar. AstaSkin inniheldur einnig astaxanthin sem meðal annars eykur endurheimt, verndar húðina gegn UV-geislum sólar, hrukkur og fínar línur verða grynnri og einnig getur astaxanthin komið í veg fyrir myndun á öldrunarblettum. Fjölmargar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar víða um heim á áhrifum astaxanthins á heilsu manna, en það er einstaklega öflugt andoxunarefni. Þá er einnig að finna kollagen í AstaSkin, sem er eitt helsta byggingarprótein húðarinnar. Eftir 25 ára aldur fer náttúruleg kollagenframleiðsla í líkamanum að minnka. Rann- sóknir benda til þess að inntaka kollagens geti minnkað liðverki ásamt því að hafa góð áhrif á húð, hár og neglur. Neytendur uppgötvuðu nýja virkni og bólurnar hurfu! Sólveig segir að AstaSkin sé ein vinsælasta vara Saga Natura og hafa viðskiptavinir verið dug- legir að deila sögum sínum um virkni vörunnar. „Það sem við erum meðal annars að heyra er að AstaSkin virki vel á þurra og bólótta húð, styrki húðina í sól, dragi úr þurrkublettum, en áhuga- verðustu sögurnar eru hversu vel hún hefur virkað á algengan húð- kvilla sem nefnist Keratosis pilaris (KP). Erlendis nefnist þessi kvilli öðru nafni „chicken skin“ og ein- kennist af smáum upphleyptum bólum sem innihalda uppsafnað keratín. Bólurnar eru stundum með roða og eru yfirleitt á upp- handleggjum, vanga og lærum en finnast líka annars staðar á líkamanum. Þessar hvimleiðu bólur eru arf- gengar og í raun mjög algengar, en um einn af hverjum þremur er með einkenni KP og algengið er enn hærra í yngri aldurshópum, frá 12-30 ára. Keratosis pilaris er talið vera afbrigði af eðlilegri húð og angrar fólk yfirleitt ekki, nema af útlitslegum ástæðum. Þeir sem glíma við þetta vandamál upplifa þó oft mikið hugarangur yfir þessu Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. 2 kynningarblað A L LT 3. september 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.