Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 39
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. september nk.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is.
Sleggjan óskar eftir að ráða leiðtoga sem hefur brennandi
áhuga á atvinnubílum, hröðu samkeppnisumhverfi og stöðugri
uppbyggingu þar sem ánægðir viðskiptavinir, framfarir og árangur
skipta máli.
Framkvæmdastjóri Sleggjunnar skipuleggur og stýrir daglegri
starfsemi en hjá fyrirtækinu starfa um 30 framúrskarandi liðsmenn.
Hann tryggir að fyrirtækið sé ávallt í fararbroddi í sölu, þjónustu
og markaðssetningu, ber ábyrgð á stefnumótun fyrirtækisins í
samstarfi við stjórn og er í forystu við þróun og innleiðingu nýjunga.
Við leitum að öflugum liðsmanni sem mun koma inn í sterkan hóp
og efla hann enn frekar á komandi árum.
Framkvæmdastjóri
Sleggjan er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-
Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi. Fyrirtækið er
systurfélag Bílaumboðsins Öskju og nýtur stuðnings
þaðan. Sleggjan hefur nýlega gengið í gegnum
breytingar á eignarhaldi og með nýjum öflugum bak-
hjarli er ætlunin að byggja upp gott og öflugt þjónustu-
fyrirtæki sem mun einbeita sér að sölu og þjónustu
Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla sem hafa í
gegnum árin verið meðal mest seldu atvinnutækja
landsins. Mercedes-Benz vöru- og hópferðabílar
eru þekktir fyrir gæði og áreiðanleika og eru mörg af
öflugustu fyrirtækjum landsins notendur þeirra, hvort
sem er í vörudreifingu, jarðvinnu, ferðaþjónustu eða
þjónustuviðhaldi. Sleggjan er til húsa við Desjamýri í
Mosfellsbæ en hefur einnig aðstöðu fyrir vagna þjónustu
í Klettagörðum.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára