Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 43
hagvangur.is
Hefur þú áhuga á að verkefnastýra umbóta- og stefnumarkandi
verkefnum í teymi sjálfbærrar menningar og stjórnarhátta?
Við leitum að kraftmiklum verkefnastjóra stefnumótunar og
umbóta sem hefur brennandi áhuga á að leiða ólík teymi og
fjölbreytt verkefni sem og taka þátt í spennandi framtíðarsýn
Terra umhverfisþjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi. Verkefna-
stjóri tilheyrir sviði sjálfbærrar menningar og stjórnarhátta og
felur í sér verkefni og samvinnu við starfsfólk þvert á fyrirtækið.
Verkefnastjóri mun taka þátt í að móta nýjar áherslur í verkefna-
menningu félagsins og vinna að framkvæmd og eftirliti með
innleiðingu stefnumarkandi verkefna og margvíslegra umbóta-
mála þvert á félagið. Meðal stefnumarkandi verkefna má nefna
stafræna þróun og sjálfbærni.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Leiða umbótaverkefni og verkefnahópa innan sviðs og þvert
á fyrirtækið
• Hanna og leiða vinnustofur fyrir svið og deildir
• Greining og áætlanagerð verkefna
• Stuðla að markvissri framkvæmd og innleiðingu verkefna
• Leiðbeina samstarfsfólki, fræða og hvetja til góðra verka
• Hluti starfsins felst í ýmsum sérverkefnum sem tengjast
m.a. sjálfbærni og sjálfvirkni
• Skýrslugerð um framkvæmd og árangur verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla af skyldum verkefnum
á sviði verkefnastjórnunar og af innleiðingu breytinga
• Afar góð samskiptahæfni og færni til að miðla málum
• Skipulagshæfni, öguð vinnubrögð, drifkraftur og lausnamiðað
hugarfar
• Geta til að leiða hóp, hafa framsögu og setja fram upplýsingar
á skýran hátt
Terra umhverfisþjónusta leggur metnað í að skilja
ekkert eftir og vill hvetja og auðvelda samfélaginu
að takast á við þá áskorun. Terra umhverfis-
þjónusta er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður.
Hjá félaginu starfa um 240 einstaklingar á starfs-
stöðvum víðsvegar um landið. Alla daga vinnum
við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða
hluti fyrir umhverfið, en í því felst meðal annars
að draga úr úrgangi og söfnun hans og stuðla að
endurnýtingu og endurvinnslu. Við leggjum mikið
upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri
liðsheild og góðum starfsanda.
Verkefnastjóri
stefnumótunar og umbóta
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar hæfni
viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Atli Magnússon,
ráðgjafi hjá Hagvangi, hlynur@hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til 18. september nk.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is