Fréttablaðið - 17.09.2022, Síða 4
3
lönd, Ísland
þar á meðal,
hafa náð að
endurheimta flug
traffíkina frá 2019.
90
prósenta
aukning hefur orðið á
notkun barna á þung
lyndislyfjum á síðustu
tíu árum.
35
ár er meðal
aldur þeirra
sem grun
aðir eru um kynferðis
brot á Íslandi.
1.679
úkraínskir
ríkisborgarar
voru skráðir
með búsetu á Íslandi
þann 1. september.
2.536
íbúðir eru
í byggingu
í Reykja
víkurborg.
n Tölur vikunnar
n Þrjú í fréttum
Edda
Björgvins-
dóttir
leikkona
fagnaði sjötíu ára
afmæli í vikunni.
Hún lýsti því
yfir í viðtali við
Fréttablaðið að
hún væri eiginlega bara tuttugu
og átta ára kona í blóma með nóg
á könnunni. Fjölskylda og sam-
starfsfólk Eddu kom henni svo
á óvart á afmælisdeginum með
óvæntum fögnuði við Þjóðleik-
húsið.
Arnaldur
Bárðarson
formaður
Prestafélags Íslands
sætti gagnrýni
fyrir ummæli sín
um séra Gunn-
ar Sigurjónsson,
sóknarprest í
Digraneskirkju. Séra Gunnar var
sendur í leyfi í lok síðasta árs eftir
að sex konur innan kirkjunnar
sökuðu hann um kynferðislega
áreitni, kynbundið ofbeldi og
einelti. Í viðtali við Útvarp Sögu
sagði Arnaldur að í langri rann-
sókn málsins væri Gunnar orðinn
að þolanda.
Maríuerlan
spörfugl
var valin fugl
ársins 2022 af
Íslendingum.
Alls tóku 2.100
manns þátt í
vefkosningu þar
sem maríuerlan
hlaut 21 prósent atkvæða en á eftir
henni fylgdu himbrimi og auðnu-
tittlingur með 14 prósent atkvæða
hvor um sig. Sem farfugl yfirgefur
maríuerlan landið tiltölulega seint
svo Íslendingar gætu enn komið
auga á fugl ársins áður en hann
flýgur suður á bóginn. n
JEEP.IS • ISBAND.IS
KEMUR ÞÚ
AF FJÖLLUM?
PLUG-IN HYBRID
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Íslensku fjöllin hafa mætt jafningja sínum.
Gerðu ferðalagið algjörlega rafmagnað með
Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
Guðmundur Ingi Guðbrands-
son, félags- og vinnumarkaðs-
ráðherra, segir sorglegt að
lesa um það hvernig hafi verið
staðið að málum á meðferðar-
heimilinu að Laugalandi.
Konum sem þar voru er boðið
að leita til Bjarkarhlíðar.
lovisa@frettabladid.is
FÉLAGSMÁL Skýrslan um meðferðar-
heimilið á Laugalandi sem gerð var
af Gæða- og eftirlitsstofnun með-
ferðarmála (GEV) kom út á mið-
vikudag.
Niðurstaða skýrslunnar er að
yfirgnæfandi meirihluti fyrrverandi
vistbarna hafi upplifað of beldi og
að eftirlitsskylda barnaverndaryfir-
valda brást, þrátt fyrir tilkynningar
og ábendingar.
„Maður er sleginn yfir því að þrátt
fyrir að það hafi verið látið vita að
það væri ekki allt í lagi, þá hafi eftir-
litið brugðist. Það hefur bitnað á
þessum stúlkum sem þarna voru.
Ekki bara á þessum tíma, heldur alla
þeirra ævi. Maður heyrir vel á við-
tölum við þær að þetta eltir þær enn
í dag. Það er því mikilvægt að þessi
rannsókn hafi verið gerð og að hún
staðfesti það sem þær segi,“ segir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur segir að kerfið eigi að
virka þannig að þegar ábendingar
berast þá eigi að rannsaka þær og
að með þeim breytingum sem áttu
sér stað um áramótin, þegar eftirlit
með barnavernd var fært frá Barna-
verndarstofu til Gæða- og eftirlits-
stofnunar, sé búið að koma í veg
fyrir að það gerist aftur sem þarna
gerðist.
„Þarna er komin ein stofnun sem
er hægt að vísa málum til, en það er
mjög mikilvægt að stofnunin hafi
burði til þess að fara í heimsóknir
og gera athuganir af handahófi og
á sama tíma að bregðast við þeim
kvörtunum sem koma.“
Guðmundur segir að á næstu
árum muni þau vonandi sjá hversu
umfangsmikið verk það verður
fyrir Gæða- og eftirlitsstofnun með-
ferðarmála að taka við kvörtunum
og hvernig þau greiði úr þeim og
hvernig ráðuneytið getur liðsinnt
stofnuninni við það.
Spurður út í gagnrýni kvenna
sem voru vistaðar á Laugalandi á
gerð skýrslunnar og samráði við
þær, segir Guðmundur að hann vísi
þeim kvörtunum til Gæða- og eftir-
litsstofnunar meðferðarmála en ef
hann fái formlega kvörtun til ráðu-
neytisins muni þau taka hana til
skoðunar.
„En eins og ég skildi það þá vildu
þau gefa þeim sem unnu að skýrslu-
gerðinni eins mikið rými til að
vinna hana og þau mögulega gætu.
Þegar ég horfi á skýrsluna finnst
mér hún umfangsmikil og kafa vel
ofan í þetta mál og sé ekki betur en
að hún hafi verið vel unnin.“
Konunum hefur verið boðið
að fara til Bjarkarhlíðar. Spurður
hvort ríkið sjái fyrir sér að taka þátt
í niðurgreiðslu sálfræðiaðstoðar
fyrir þessar konur, segir ráðherra
að ákveðið hafi verið í samráði við
mennta- og barnamálaráðuneytið
að þegar skýrslan kæmi út myndi
konunum verða vísað eitthvert.
„Það var viðbúið að hún myndi
vekja upp erfiðar minningar og
draga þeirra reynslu upp á yfirborð-
ið. Fyrsta skref er að segja þeim að
hægt sé að leita til Bjarkarhlíðar en
ég er opinn fyrir því að skoða önnur
úrræði ef ekki er hægt að aðstoða
þær þar eða í öðrum úrræðum sem
ráðuneytið styrkir.“ n
Ráðherra er sleginn yfir niðurstöðu
skýrslunnar um Laugalandsheimilið
Guðmundur Ingi Guðbrandsson segir að hann sjái ekki betur en að skýrslan hafi verið vel unnin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Maður heyrir vel á
viðtölum við þær að
þetta eltir þær enn í
dag.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
félags- og vinnumarkaðsráðherra
4 Fréttir 17. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ