Fréttablaðið - 17.09.2022, Side 16
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Tilgangur
þeirra var
sá eini
að halda
áfram völd
um með
það að
markmiði
að breyta
engu.
Fátt kemur
að auki
jafnmiklu
óorði á
kapítal
ismann og
illa ígrund
uð einka
væðing.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Allar líkur eru á því að þegar yfir
standandi kjörtímabil kemst á enda
sitji þjóðin uppi með átta töpuð ár.
Engar raunverulegar umbætur hafi
orðið í samfélaginu, almenningi til
hagsbóta. Allt sitji við það sama.
Kyrrstöðustjórnin sem nú situr að völdum
hefur öðlast það heiti af eigin verkleysi. Hún
er sett saman af þremur íhaldssömum stjórn
málaflokkum sem líta á það sem eitt af sínum
meginverkefnum í íslenskri pólitík að gera
engar stórvægilegar breytingar á helstu kerfum
og stoðum þjóðríkisins. Miklu heldur hefur það
verið helsta hlutverk hennar að standa vörð
um óbreytt ástand – og gæta sérstaklega að því
að fjármunirnir sem myndast hér á landi fari í
réttar hendur og haldist þar.
Auðvitað er þetta raunaleg lýsing á ríkis
stjórn sem komst til valda eftir einstaklega
mikið umrót í stjórnmálum á sínum tíma – og
fékk starfsfrið í fyrstu til að koma á tímabærri
festu í landsstjórninni. Sá pólitíski ómögu
leiki varð að veruleika að mynda þverpólitíska
stjórn frá vinstri og yfir miðjuna til hægri – og
haft var á orði á þeim tíma að hér væri komin
einhvers konar þjóðstjórn eftir margra ára
stjórnmálaófrið.
Það varð svo helsta lán þessarar undarlegu
landsstjórnar, eftir að hveitibrauðsdagarnir
voru að baki, að hún gat afhent völd sín með
áberandi hætti til vísindasamfélagsins þegar
heimsfaraldurinn reið yfir með öllum sínum
ósköpum. Og það var einmitt klókt hjá vald
höfunum að víkja til hliðar á þeim tíma til að
fela eigið erindisleysi í íslenskri pólitík.
Eftir síðustu alþingiskosningar hélt stjórnin
velli. Eina ástæðan fyrir því að forkólfar hennar
afréðu að halda samstarfinu áfram var að þeir
gátu það. Tilgangur þeirra var sá eini að halda
áfram völdum með það að markmiði að breyta
engu.
Og það verður vandlega gert.
Þegar átta töpuð ár verða að baki munu engar
breytingar hafa verið gerðar á fiskveiðistjórnar
kerfinu þar sem íslenskum ólígörkum er leyft
að maka krókinn svo ofboðslega á kostnað
almennings að í reyndinni er sjávarauðlindin
orðin að erfðagóssi. Því síður verða nokkrar
breytingar gerðar á algerlega stöðnuðu land
búnaðarkerfi sem heldur bændum landsins
í fátæktargildru. Krónan mun áfram kvelja
heimili og atvinnulíf með sínum heima
smíðuðu breytilegu vöxtum – og ungt fólk skal
áfram greiða fjórum sinnum fyrir íbúðir sínar
allt til æviloka.
Átta töpuð ár. Og kannski tólf. En það er
langur tími. n
Átta töpuð ár
Ég sit við eldhúsborðið heima hjá mér í Lund
únum. Mjólk súrnar í morgunverðarskál og
bananahýði tekur á sig lit, hægt en örugglega
eins og Íslendingur við sundlaugarbakka á
Tene. Venjulega verða þessar hugleiðingar til
yfir kaffi með froðu (og smjördeigshorni ef ég
er ekki í aðhaldi, fjárhagslegu eða líkamlegu)
á litlu kaffihúsi í næstu götu við mig. En ekki
núna. Ástæðan er kapítalískur misbrestur,
eða eins og það kallast á mannamáli: græðgi.
Það veitir mér enga gleði að sjá kapítal
ismanum verða á. Mér þykir vænt um hann.
Ég nýt góðs af honum á mörgum sviðum.
Froðukaffið og smjördeigshornið er aðeins
brot af því besta. Það fýkur því í mig þegar
þeir, sem segja sig heitustu boðbera mark
aðshagkerfisins, standa því fyrir þrifum.
Fyrir mánuði varð stórflóð hér í Islington
hverfi þar sem ég bý. Þungur straumur sem
náði mönnum upp að mitti f læddi um götur.
Hálfan dag tók að dæla vatninu burt. Fjöldi
heimila og fyrirtækja varð fyrir skemmdum.
Nýuppgert kaffihúsið, sem ég notaði sem
skrifstofu, gjöreyðilagðist. Íþróttamiðstöð
barna hverfisins hefur verið lokað um
ófyrirsjáanlega framtíð.
Þegar upptök flóðsins urðu ljós greip
um sig reiði. Orsökin var sprungin vatns
leiðsla. Árið 1989 var vatnsveita á Englandi
einkavædd. Var þeirri ákvörðun ætlað að
auka skilvirkni og fjárfestingar í innviðum.
Raunin varð önnur.
Nokkrum dögum eftir flóðið í Islington
bað vatnsveitan í London viðskiptavini um
að minnka vatnsnotkun sína; ekki fara í bað,
bara sturtu; ekki vökva garðinn. Vatns
skortur blasti við, að sögn vegna þurrka yfir
sumarmánuðina. Bónin féll í grýttan jarð
veg; málið var ekki svo klippt og skorið.
Frá árinu 1989 hafa fjárfestingar í við
haldi vatnsleiðslna á Englandi verið af
svo skornum skammti að tuttugu prósent
alls neysluvatns fara til spillis vegna leka.
Ástæðan sést í efnahagsreikningum. Á
árunum 20072016 voru níutíu og fimm pró
sent hagnaðar vatnsveitufyrirtækja greidd
út sem arður. Meira að segja dagblaðið
Financial Time, Pravda frjálshyggjunnar,
boðaði á dögunum að „tími væri kominn til
að viðurkenna að það hefðu verið mistök að
einkavæða vatnsveituna.“
Í óþökk almennings
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
steig fram á völlinn í vikunni og kynnti
fjárlagafrumvarp næsta árs. Þar gaf hann
hluta liðs síns langt nef og einspilaði í átt að
markinu – eða takmarkinu sem virtist vera
aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu.
„Ég tel að við munum ná mun meiri árangri
ef við aukum samstarf opinberra aðila við
einkaaðila,“ sagði Bjarni.
Stefnubreytingin kom samstarfsflokki
Bjarna, Vinstri grænum, í opna skjöldu.
„Sterkt opinbert heilbrigðiskerfi hefur verið
kjarni íslenskrar heilbrigðisþjónustu allar
götur,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, matvæla
ráðherra og fyrrverandi heilbrigðisráðherra.
„Ekkert er að finna í stjórnarsáttmála um að
það kunni að vera til endurskoðunar.“
Einkavæðing vatnsveitunnar á Englandi
var gerð í óþökk almennings. Jonathan
Portes er hagfræðiprófessor við einn virtasta
háskóla Bretlands. Hann vann við að útfæra
einkavæðinguna árið 1989. Hann segir skatt
greiðendur hafa stórtapað þegar ríkiseignir
voru seldar á undirverði og neytendur hafa
verið ofrukkaða fyrir grunnþjónustuna allar
götur síðan.
Það er hvimleið bókstafstrú að halda að allt
farist einkaaðilum sjálfkrafa betur úr hendi.
Fátt kemur að auki jafnmiklu óorði á kapítal
ismann og illa ígrunduð einkavæðing.
Stendur aukinn einkarekstur innan heil
brigðiskerfisins fyrir dyrum? Bjarni segir já.
Svandís segir nei. En hvert er svarið? Sam
ræðu er þörf. Heilsa þjóðar – og kapítalism
ans – er í húfi. n
Að flóði loknu
Námskeið fyrir matsmenn
19. og 20. október 2022
Lögmannafélag Íslands og dómstólasýslan standa fyrir námskeiði fyrir dóm-
kvadda matsmenn. Farið verður yfir hlutverk matsmanna og starf þeirra frá dóm-
kvaðningu og þar til þeir skila matsgerð og/eða mæta fyrir dóm. Þá verður farið
yfir ákvæði einkamálalaga sem varða störf matsmanna og samningu matsgerða,
undirbúning matsfunda, uppsetningu matsgerða og störf á vettvangi.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á
sér sem matsmenn fyrir dómi.
Handbók með ítarlegum leiðbeiningum fyrir dómkvadda matsmenn er innifalin í
námskeiðsgjaldi.
Kennarar: Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum og Ragnar Ómarsson
byggingafræðingur á Verkfræðistofunni Verkís, formaður Matsmannafélags
Íslands.
Staður: Fundarsalur Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23, 3. hæð,
108 Reykjavík. og Héraðsdómur Reykjavíkur.
Tími: Alls 7 klst. Miðvikudagur 19. október kl. 13.00-16.00 og
fimmtudagur 20. október kl. 12.30-16.30
Verð: kr. 47.000,-
Nánari upplýsingar og skráning á www.lmfi.is
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 17. september 2022 LAUGARDAGUR