Fréttablaðið - 17.09.2022, Side 49
Laus störf á tæknisviði Skattsins
Á tæknisviði Skattsins er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem miða að liprum og öruggum
stafrænum samskiptum við almenning og öruggri og hagkvæmri úrvinnslu upplýsinga sem
Skattinum berast. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Hugbúnaðarsérfræðingur með
brennandi áhuga á stafrænum
lausnum
Helstu verkefni hugbúnaðarsérfræðings:
• Greining og hönnun á hugbúnaðarlausnum.
• Verkefnastjórnun á sviði stafrænna lausna og
þjónusta við notendur.
• Rekstur á upplýsingakerfum Skattsins.
• Samskipti við samstarfsaðila vegna daglegra verkefna
tengt tolla- og skattframkvæmd.
• Prófanir og þjálfun starfsmanna á hugbúnaðarlausnum
Skattsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði tölvunar-, verkfræði
eða annarra raungreina sem nýtast í starfi
(lágmarksmenntun er bakkalár gráða).
• Þekking og/eða reynsla C#, .NET og SQL.
• Færni í þarfagreiningu og hönnun lausna.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
• Sveigjanleiki, frumkvæði og metnaður.
• Fáguð framkoma og lipurð í samskiptum.
• Jákvæðni og rík þjónustulund.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Hreint sakavottorð.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð
á Laugavegi 166. Nánari upplýsingar um starf
hugbúnaðarsérfræðings veitir Einar Valur Kristinsson,
deildarstjóri, í síma 442-1000 eða með tölvupósti á netfangið
einar.v.kristinsson@skatturinn.is.
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is. Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem
inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist
fullnægjandi. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta,
heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra
og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 27. september 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Öryggisstjóri í upplýsingatækni
Helstu verkefni upplýsingaöryggisstjóra Skattsins:
• Hafa eftirlit með og stuðla að framkvæmd
upplýsingaöryggisstefnu embættisins í samræmi við
ISO 27001 staðalinn.
• Sinna öryggismálum er snúa að vörslu gagna, aðgengi
og öryggisreglum í samskiptum við þjónustuaðila o.fl.
• Yfirumsjón með innleiðingu og rekstri á stjórnkerfi
upplýsingaöryggis.
• Annast gerð verkferla og handbóka og sjá um innri
úttektir er varða upplýsingaöryggi.
• Framkvæmd áhættumats og þátttaka í neyðarstjórnun.
• Umsjón með þjálfun og fræðslu til starfsmanna um
m.a. upplýsingaöryggi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði,
tölvunarfræði, kerfisfræði o.fl. (lágmarksmenntun
er bakkalár gráða).
• Reynsla af stjórnun öryggismála í hugbúnaðar-
eða upplýsingatæknigeira.
• Þekking á ISO 27001 staðlinum er nauðsynleg.
• Reynsla af gæðastarfi og verkefnastjórnun er kostur.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
• Sveigjanleiki, frumkvæði og metnaður.
• Fáguð framkoma og lipurð í samskiptum.
• Jákvæðni og rík þjónustulund.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Hreint sakavottorð.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð á Laugavegi
166. Nánari upplýsingar um starf öryggisstjóra veitir Jens Þór
Svansson, sviðsstjóri tæknisviðs, í síma 442-1000 eða með
tölvupósti á netfangið jens.th.svansson@skatturinn.is