Fréttablaðið - 17.09.2022, Page 86
Á stað sem er jafn
einstakur og Ísland þá
er svo sannarlega rými
fyrir tónlistina að
þróast og vaxa og
verða eitthvað virki-
lega sérstakt.
TÓNLIST
Sinfóníutónleikar
Verk eftir Ives, Mozart, Bernstein
og Dvorák
Flutningur: Sinfóníuhljómsveit
Íslands.
Einsöngvari: Dísella Lárusdóttir.
Stjórnandi: David Danzmayr.
Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 14. september
Jónas Sen
Þetta er farið úr böndunum, hugsaði
ég á tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands á fimmtudagskvöldið.
Ætti ég að hringja á lögregluna? Til-
efnið var hin svokallaða Nýja-Eng-
landssinfónía eftir Charles Ives,
sem var fyrst á efnisskránni. Annar
kaflinn af þremur dró upp mynd af
ungum manni sem skemmtir sér við
hátíðahöld á fjórða júlí. Hann held-
ur svo út á akur og leggst til hvíldar,
sofnar og dreymir senur úr frelsis-
stríðinu. Hann veit ekki að einmitt
þarna höfðu hermenn úr þessu
stríði löngu áður dvalið veturlangt.
Tónlistin var ofsafengin, og
stundum með ólíkum þráðum
sem blönduðust saman í ærandi
ringulreið, svo að manni þótti nóg
um. Á góðan hátt þó. Flutningur
hljómsveitarinnar, undir sérlega
markvissri og líflegri stjórn Davids
Danzmayr, var dásamlega snarpur,
fjörugur og kraftmikill. Ives þótti
gaman að blanda saman mis-
munandi tónlist svo úr varð áhuga-
verður, en ómstríður hljómur. Þetta
mátti líka heyra í hinum köflunum,
sérstaklega hinum fyrsta. Það er því
skemmtilegt að geta þess að eigin-
kona Ives hét Harmony, sem þýðir
samhljómur.
Næst á dagskrá steig Dísella
Lárusdóttir sópran fram á sviðið
og söng fyrst aríu úr Brottnáminu
úr kvennabúrinu eftir Mozart. Hún
gerði það ákaflega fallega. Söngur-
inn var tilþrifamikill og áleitinn,
fullkomlega tær og fágaður, en samt
kröftugur. Trillurnar í söngnum á
tveimur lykilstöðum í aríunni voru
sérstaklega flottar.
Síðasta lagið fyrir hlé var Glitter
and be Gay úr óperunni Birtingi
eftir Leonard Bernstein. Þar lék
Dísella glansdrós sem má muna
sinn fífil fegri, en nýtur samt ennþá
lífsins lystisemda. Þetta er grínatriði
og Dísella fór á kostum. Svipbrigðin
hennar voru svo fyndin að ég skellti
upp úr aftur og aftur. Söngurinn
sjálfur var einstaklega spennandi og
glæsilegur, á köflum brjálæðislegur
og með stórfenglegum hápunktum.
Áheyrendur æptu bókstaflega þegar
flutningurinn var búinn. Aukalagið
var líka fagurt, eitt af Wesendonck
ljóðunum eftir Wagner.
Eftir hlé var níunda sinfónían
eftir Dvorák á dagskránni. Hún er
mjög stórbrotin og er innblásin af
veru tónskáldsins í Bandaríkjunum
um nokkurra ára skeið. Tónlistin
skartar afar grípandi melódíum,
og framvindan í henni er hröð
(nema í hæga kaflanum) og alltaf
áhugaverð. Skemmst er frá því að
segja að leikur hljómsveitarinnar
var í fremstu röð. Strengirnir voru
hnausþykkir og munúðarfullir,
málmblásararnir hnitmiðaðir;
svipaða sögu er að segja um aðra
hljóðfærahópa. Stjórn Danzmayr
var í senn tæknilega fullkomin og
svo lifandi og innblásin að varla
er hægt að gera betur. Þetta voru
magnaðir tónleikar og maður bók-
staflega sveif út í nóttina á eftir. n
NIÐURSTAÐA: Einstakur ein-
söngur og hljómsveitin var líka
með allt á hreinu.
Sinfóníutónleikar fóru
úr böndunum
Maria Schneider er ein
skærasta stjarna stórsveita-
heimsins í dag. Hún stjórnar
Stórsveit Reykjavíkur á 30 ára
afmælistónleikum hljóm-
sveitarinnar á sunnudag.
tsh@frettabladid.is
Tónskáldið og hljómsveitarstjór-
inn Maria Schneider stjórnar Stór-
sveit Reykjavíkur á 30 ára afmælis-
tónleikum sveitarinnar í Hörpu
á sunnudag. Maria er eitt stærsta
nafnið í stórsveitaheiminum um
þessar mundir, hefur hlotið sjö
Grammy verðlaun og unnið með
heimsþekktum listamönnum á
borð við David Bowie, Sting og
Wynton Marsalis.
Spurð um hvernig það hafi komið
til að hún var fengin til að stjórna
Stórsveitinni segir Maria:
„Fyrir mörgum árum var mér
boðið hingað til að stjórna. Ég varð
svo hrifin og það var svo gaman að
vinna með öllum tónlistarmönn-
unum að ég hef haft það í huga öll
þessi ár að það væri gaman að koma
aftur, þannig ég var mjög spennt
þegar þeir höfðu samband.“
Maria er búsett í New York en
ferðast víða um heim til að f lytja
tónlist sína og var nýkomin frá
Andalúsíu á Spáni þegar blaða-
maður hitti hana. Hún segir hverja
og eina hljómsveit sem hún vinnur
með hafa sinn einstaka karakter.
„Það er gaman að heyra þær fara
sínar eigin leiðir innan tónlistarinn-
ar. Það byrjar oftast þannig að allir
vinna saman að því að setja saman
tónlistina og síðan kemur augna-
blikið þegar þeir byrja að gera hana
að sinni eigin. Það er staðurinn sem
ég vil komast á því þá birtist tón-
listin allt í einu og sýnir á sér nýja
hlið sem ég hef aldrei upplifað áður.“
Ísland einstakur staður
Hvers konar tónlist verður f lutt á
tónleikunum á sunnudag?
„Þetta eru allt mínar eigin tón-
smíðar, allt frá tónlist sem er inn-
blásin af baráttu minni við stór
tæknifyrirtæki, tónlist sem er inn-
blásin af stöðum sem ég hef heim-
sótt, á borð við Brasilíu, til tónlistar
sem er innblásin af fuglum sem eru
eitt af mínum helstu áhugamálum.“
Eitt af því sem Maria segist elska
hvað mest við stórsveitatónlist og
það að ferðast um heiminn til að
leika hana, er að slík tónlist gefi
tónlistarmönnunum tækifæri til
að sýna hvað í þeim býr og tjá sig
persónulega í gegnum flutninginn.
„Fyrir mér þá er það fegurðin við
að koma á stað eins og Ísland, sem
er svo algjörlega einstakur. Eða
ég ætti kannski bara að segja ein-
stakur. Þegar ég vann með David
Bowie þá sagði hann nefnilega við
mig: „Maria, þú átt aldrei að segja að
eitthvað sé mjög einstakt, einstakt
er einstakt, það er ekkert til sem
heitir mjög einstakt.“ Þannig að ég
ætla að stíga skref til baka og segja
að Ísland sé einstakur staður sem á
engan sinn líka.“
Ekki margar konur
Það eru ekki margir kvenkyns
hljómsveitarstjórar í tónlistarheim-
inum. Af hverju heldurðu að það sé?
„Á síðustu árum hafa verið að
koma fram f leiri og f leiri konur
bæði í djassheiminum og hinum
klassíska. En af hverju það eru ekki
f leiri veit ég ekki. Ég held að hluti
af ástæðunni sé sá að þegar þú sérð
ekki marga eins og sjálfa þig þá
hvarflar það ekki eins mikið að þér
að gera þennan tiltekna hlut.“
Maria segir það hafa haft mikil
áhrif á sig þegar hún sá tónleika sem
japanski kvenkyns hljómsveitar-
stjórinn Toshiko Akiyoshi stýrði á
háskólaárum hennar í Minneapolis.
„Það var svo fallegt og ég man
eftir að hafa hugsað með mér: „Vá!
Get ég gert þetta?“ En það var ekki
af því hún var kona heldur af því að
þetta var hljómsveitardjass leik-
inn í tónleikasal. Ég hafði mikinn
áhuga á því að blanda saman djassi
og klassískri tónlist og sameina
öll þessi ólíku áhrif í tónlist fyrir
stórsveit. Og þarna var hún að gera
nákvæmlega það!“
Maria bætir því við að hún hafi
aldrei hugsað mikið um það að vera
sjálf kona umkringd karlmönnum í
tónlistarheiminum en viðurkennir
þó að undir niðri hafi það haft mót-
andi áhrif á hana að sjá konu eins og
Toshiko Akiyoshi gera það sem hún
vildi gera.
Spunatónlist mikilvæg
Að sögn Mariu er spunatónlist ein
mikilvægasta tónlistartegundin
í djassheiminum vegna þess að
hún gefur tónlistarmönnunum
tækifæri til að tjá séreinkenni síns
menningarheims og dragi fram per-
sónuleika tónlistarmannanna ólíkt
því þegar tónlist er leikin beint af
blaði.
„Á stað sem er jafn einstakur og
Ísland þá er svo sannarlega rými
fyrir tónlistina að þróast og vaxa
og verða eitthvað virkilega sérstakt.
Hún þarf bara smá stuðning til að
komast af stað og síðan gerist það af
sjálfsdáðum,“ segir hún.
Tónleikar Mariu Schneider og
Stórsveitar Reykjavíkur fara fram í
Eldborg í Hörpu á sunnudag kl. 20.
Aðgangur er ókeypis og miða má
nálgast á harpa.is. n
Stórsveitarstjarna stýrir
eigin tónlist í Eldborg
Maria Schneider er ein skærasta stjarna stórsveitaheimsins. Hún hefur hlotið sjö Grammy verðlaun og unnið með
heimsþekktum tónlistarmönnum á borð við David Bowie, Sting og Wynton Marsalis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dísella Lárusdóttir sópransöng-
kona fór á kostum á tónleikum
Sinfóníunnar. MYND/AÐSEND
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð
ve
rð
ge
tu
r b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
60+ TIL KANARÍ
14. NÓVEMBER Í 22 NÆTUR
með Bróa
595 1000 www.heimsferdir.is
316.350
Flug & hótel frá
22 nætur
Fararstjóri:
Brói
HÁLFT FÆÐI INNIFALIÐ
46 Menning 17. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 17. september 2022 LAUGARDAGUR