Fréttablaðið - 17.09.2022, Síða 87
Ég hef alltaf verið mikil
áhugamanneskja um
hatta, langamma mín
var hattagerðarkona
og ég hef gert hattaverk
og skúlptúra áður.
tsh@frettabladid.is
Í dag verður haldið málþing
um skáldið Þorstein frá Hamri í
Hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla
Íslands. Málþingið er á vegum Bók-
mennta- og listfræðastofnunar
Háskóla Íslands, Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum
og félagsins Arfur Þorsteins frá
Hamri.
Þorsteinn frá Hamri er álitinn
eitt merkasta ljóðskáld Íslands fyrr
og síðar og sendi frá sér á þriðja
tug ljóðabóka auk skáldsagna og
bóka með sagnaþáttum. Allt frá því
hann gaf út sína fyrstu ljóðabók,
Í svörtum kufli, árið 1958 mótaði
hann og fágaði ljóðstíl sinn af ein-
stakri natni, ástríðu og þekkingu
á sögu, tungu og samfélagi. Oft er
talið að honum hafi tekist einkar vel
að bræða saman hina gömlu ljóða-
hefð og stílbrögð nýrrar aldar, ljóð-
mál módernismans. Þorsteinn frá
Hamri lést árið 2018, 79 ára að aldri.
Ellefu fyrirlesarar, bæði rithöf-
undar og fræðimenn, fjalla um
framlag Þorsteins frá Hamri til
íslenskrar tungu, bókmennta og
þjóðlegra fræða. Flest erindin snúa
að ljóðlist Þorsteins en skáldsögur
hans og framlag til þjóðlegs fróð-
leiks verða einnig til umræðu.
Á meðal fyrirlesara eru Ástráður
Eysteinsson bókmenntafræðingur,
Sigurbjörg Þrastardóttir ljóðskáld,
Guðrún Nordal forstöðumaður
Árnastofnunar, Ármann Jakobsson
prófessor og rithöfundur og Haukur
Ingvarsson bókmenntafræðingur
og skáld. Með umsjón málþings-
ins fara Guðrún Nordal og Ást-
ráður Eysteinsson. Dagskráin hefst
klukkan 10 og henni lýkur rúm-
lega 17. Málþingið er öllum opið og
aðgangur ókeypis. n
Málþing um Þorstein frá Hamri
Þorsteinn frá
Hamri
MARK AÐURINN ER LÍK A Á NETINU: W W W.FORL AGID. IS
990 kr.
990 kr.
1.990 kr.
1.490 kr.
990 kr. 1.290 kr.
990 kr.
990 kr.
1.990 kr.
4.990 kr.
ÓTRÚLEGT
ÚRVAL! OPIÐ 10-19 ALLA DAGA
7. SEPT.- 3. OKT.
Á FISKISLÓÐ 39
PYLSU-
VAGNINN
Á STAÐNUM
FRÁ 14 - 16
ÍS FYRIR BÖRNIN
tsh@frettabladid.is
Auður Ómarsdóttir opnar sýn-
inguna Halda áfram í Gallery Port
klukkan 16 í dag. Sýningin saman-
stendur af óhlutbundnum mál-
verkum sem minna á hatta.
„Þetta er bara strangheiðarleg
málverkasýning sem byrjaði með því
að ég var að leita í einhverja svona
frumsköpun, öfugt við fyrri verk
mín. Mig langaði ekki að vera með
neinar fyrirmyndir þannig að ég
byrjaði að teikna með báðum hönd-
um í einu, svolítið eins og Rorschach
sálfræðiprófin,“ segir Auður.
Án þess að Auður ætlaði sér það
varð afraksturinn af þessu ferli mál-
verk af fígúrum sem minntu á hatta.
„Ég hef alltaf verið mikil áhuga-
manneskja um hatta, langamma
mín var hattagerðarkona og ég hef
gert hattaverk og skúlptúra áður.
Þannig að út frá því myndaðist
þema og það eru í rauninni bara
óræðar skuggamyndir eða útlínur
sem verða stundum eins og sjálf-
stæðar verur,“ segir hún.
Auður segist hafa lagt upp
með það að hana langaði að gera
abstraktverk.
„Af því að ég er búin að vera að
gera svolítið af realískum verkum og
ég þarf alltaf að gera eitthvað öfugt
við það sem ég gerði síðast. Ég þarf
alltaf að vera í einhverri uppreisn
gegn sjálfri mér,“ segir hún.
Í sýningartexta er hattinum lýst
sem efsta lagi mannbúningsins og
hann sagður vera útgangspunktur
verka sýningarinnar.
„Svo var ég líka að hugsa um að í
gamla daga þá voru allir með hatta
og þú sást alltaf einhvern veginn
á þeim hvað hver og einn starfaði
við eða hvaða stétt hann tilheyrði.
Í dag er enginn með hatta lengur en
allir eru samt með ógeðslega marga
hatta, maður er að spá í heilsua,
ástina, listina, maður er að reyna að
vera uppalandi og er alltaf með ein-
hverja hundrað hatta á sér en samt
aldrei eiginlegan hlutlægan hatt,“
segir Auður.
Ætlarðu að vera með hatt á opn-
uninni?
„Já, það er verkefni dagsins að
finna nýjan hatt. Ég er oft með
kúrekahattinn minn en mig langar
svolítið í einhvern annan. Svo var
ég líka að hvetja gesti í gríni til að
koma með hatta á opnunina, það
væri áhugaverður gjörningur.“ n
Er alltaf í uppreisn
gegn sjálfri sér
Auður Ómarsdóttir er kona margra
hatta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
LAUGARDAGUR 17. september 2022 Menning 47FRÉTTABLAÐIÐ