Fréttablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 14
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Ef rýnt er í opinber gögn frá Fiskistofu virðist sem stofnunin réttlæti tilvist sína með því að elta uppi sjómenn á litlum bátum. Ég varð af tilviljun vitni að óform- legu spjalli starfsmanns Fiskistofu og sjómanns hjá stóru útgerðarfélagi á dögunum. Sjómaðurinn: „Þið vitið það alveg á Fiskistofu, vegna brottkastsins, að um leið og eftirlitsmaður frá ykkur er farinn af stóru skip- unum þá drögum við fram rörið og hendum fiski villevekk.“ Starfsmaður Fiskistofu: „Jájá, en ég fæ borgað fyrir mína stikkprufu og þið veiðið verðmæt- asta fiskinn. Er það ekki bara win-win?“ Sjómaðurinn. „Eina leiðin til að stöðva brott- kast er að það sé einn eftirlitsmaður frá Fiski- stofu um borð í öllum skipum 40 metrar að lengd eða stærri allan sólarhringinn.“ Starfsmaður Fiskistofu: „Nei, það gengur ekki. Við þurfum að sofa. Það yrðu þá að vera tveir og það yrði allt of dýrt.“ Sjómaðurinn: „Þetta verður alltaf svona á meðan kvótakerfið er við lýði.“ Starfsmaður Fiskistofu: „Jájá, við gerum bara gott úr þessu.“ Ekki er hægt að útiloka að ummæli starfs- mannsins hafi fallið í hálfkæringi. En starfsmenn ríkisins gagnast almanna- hagsmunum lítt án samfélagslegrar ábyrgðar. Fagleg fjarlægð ætti að vera keppikefli milli eftirlitsaðila og þeirra sem sæta eftirliti, jafnt í frítíma sem á vinnutíma. Að gera grín að lög- brotum styrkir ekki tiltrú okkar á að eftirliti sé best sinnt hjá ríkisstarfsmönnum. Ef rýnt er í opinber gögn frá Fiskistofu virðist sem stofnunin réttlæti tilvist sína með því að elta uppi sjómenn á litlum bátum. Smælingj- arnir fá kæru fyrir sín brot á sama tíma og alkunna er að hinir stóru og voldugu fremja miklu alvarlegri brot sem hefur nánast verið sameinast um að líta undan. Drónar Fiskistofu svífa yfir smáfiskunum. Stórfiskarnir sleppa á meðan. Saga Íslands í hnotskurn. Spurningar vakna um hvort áhafnir ríkis- rekinna eftirlitsstofnana hafi borið af leið. Hjá MAST hefur stjórnsýsla ítrekað skapað undrun og hneykslun. Hjá Umhverfisstofnun sagði yfirmaður eitt sinn að það væri pólitísk ákvörðun en ekki í verkahring starfsmanna að bjarga heiminum. Nú er Vegagerðin til umræðu og villur í opin- berri rannsókn eftir alvarlegt slys. Makindaleg hugsun þar sem störfin fara að snúast um hag starfsfólksins en ekki almenn- ing er aumingjaskapur og hefur leitt til van- trúar á kerfin okkar þótt sumt sé vel gert. Sérhygli of margra opinberra starfsmanna er mein sem þarf að ræða og uppræta. n Aumingjaskapur Björn Þorláksson bth @frettabladid.is Málefni Laugardalsins hafa verið til umræðu lengi. Árið 2013 var Laugarnesskóli kominn í hámarks- afkastagetu og lét borgaryfirvöld vita að að nú væri kominn tími til að skipuleggja til framtíðar. Lauga- lækjarskóli er eini grunnskólinn í borginni með 7.–10. bekk. Nemendum Laugarnesskóla hefur fjölgað um 167 frá 2008 og stefnir í fjölgun um 115 út áratuginn. Ástandið er slæmt. Íþróttahúsið er barn síns tíma. Nú eru 7 færanlegar stofur og eiga 2 að bætast við. Allt annað er löngu sprungið, mötuneyti, smíða-, myndmennta- og tónmenntaaðstaða og aðstaða fyrir kennara og starfsfólk. Skólahljómsveitinni hefur verið úthýst. Hljóðvist er erfið og loftræstingu vantar í gamla skólahúsinu. Úttekt á rakaskemmdum stendur yfir. Frístund er langt í burtu. Ekkert af þessu hefði þurft að koma á óvart. Samhliða þéttingarstefnunni kom skýr ábending um nauðsyn aðgerða til að styrkja innviði skólastarfsins, en núna 9 árum seinna hafa borgaryfirvöld ekkert aðhafst. Börnunum hefur hins vegar haldið áfram að fjölga jafnt og þétt og fyrirséð er að sú þróun haldi áfram. Borgaryfirvöld hafa brugðist foreldrum og börnum þessa hverfis. Upplýsingagjöf til foreldra hefur verið stórlega ábótavant. Ekki kæmi á óvart þótt djúp- stæður trúnaðarbrestur væri orðinn eftir samskipta- og afskiptaleysi sem skóla- og frístundasvið, undir verndarvæng síðasta meirihluta, hefur sýnt íbúum hverfisins. Sviðsmyndir liggja fyrir en beðið er stað- festingar um að sviðsmynd 1 sem langflestir aðhyllast verði valin, en hún felur í sér að stækka hvern skóla fyrir sig og vernda þannig skólagerð þeirra, skóla- hverfin og hverfamenningu. Það vantar einnig tíma- linu framkvæmda, forgagnsröðun, kostnað, rekstrar- kostnað, hvernig á að bæta íþróttaaðstöðu og fleira. Búið er að lofa og lofa, þar er reyndar átt við gamla meirihlutann aðallega – enda varla hægt að kenna Framsókn um þessi klúður síðustu ára, alla vega ekki enn. Foreldrar og börn hafa fengið nóg. Flokkur fólksins segir áfram gakk nú! n Illa farið með íbúa Laugardals Kolbrún Baldursdóttir oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Foreldrar og börn hafa fengið nóg. Flokk- ur fólksins segir áfram gakk nú! Veitingastaður golfklúbbsins Keilis býður upp á jólamatseðil alla föstudaga og laugardaga frá 11. nóvember til 10. desember 2022. Tilvalið fyrir vinahópa og fyrirtæki frá 8 til 70 manns. Lifandi tónlist og jólastemming. Matseðill, sjá nánar á keilir.is Borðapantanir á hafsteinn@betristofan.com og í síma 7792416 GK veitinga GK veitingar, Golfklúbburinn Keilir Steinholti 1 Hvaleyri, 220 Hafnarfirði Jólagleði arnartomas@frettabladid.is Bullutröll Gestir og starfsfólk Stúdenta- kjallarans hafa upp á síðkastið orðið fyrir barðinu á ölvuðum fótboltabullum sem, eins og svo mörg starfssystkini þeirra, láta illa í glasi. Í tárvotri færslu öldur- hússins kemur fram að hópurinn eyðileggi fyrir öðrum með hrotta- legum dónaskap og ógnandi hegðun. Að lokum eru téðar bullur beðnar um að hegða sér eins og fullorðið fólk – skilaboð sem falla eflaust í frjóan jarðveg. Vesturbæingar geta þó sjálfum sér um kennt því að í hverfinu er allt of langt á milli öldurhúsa þar sem hægt er að fylgjast með boltanum og fávitarnir eiga langt að fara til að finna sér samastað. Svangur skolli Hættuástandið teygir sig út fyrir Vesturbæinn. Útidyr í austan- verðri Reykjavík eru harðlæstar þar sem ferfættur glæpon leikur lausum hala. Umræddur bófi er refur sem hefur uppskorið geðs- hræringu íbúa sem hafa komið auga á hann í Árbæ og Breið- holti. Nemendur við Ártúnsskóla sluppu með skrekkinn þegar rebbi var mættur á lóðina til alls vís en lét sér nægja að væta þurran góm sinn með hálfkláraðri túnfisks- samloku. Dýraþjónusta Reykja- víkur mælist til að fólk forðist við að klappa refnum þótt hann virðist gæfur. Þau ráð má eflaust yfirfæra á fleiri glæpamenn. n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 22. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.