Fréttablaðið - 22.09.2022, Side 22

Fréttablaðið - 22.09.2022, Side 22
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg @frettabladid.is Léttari lund, alla daga MAG-YOUR-MIND® er öflug blanda af magnesíum, B6 & B9 ásamt burnirót og adaptógenum. Vinnur gegn streitu og skerpir hugsun. Prjónahönnuðirnir Védís Kara Reykdal Ólafsdóttir og Telma Sif Guðmundsdóttir eiga sameiginlegt að hafa eignast sitt fyrsta barn 16 ára. Þær opnuðu nýlega vef- síðu með eigin prjónaupp- skriftum. „Í mínu tilfelli var það þrjóskan ein sem kenndi mér að prjóna, þegar ég ákvað upp á mitt einsdæmi að byrja að prjóna þar sem ég sat ein heima ófrísk þegar við bjuggum í Noregi þar sem maðurinn minn var í námi. Það var hins vegar amma Telmu sem kenndi henni hvernig unnið er með spottann, og svo auðvitað YouTube,“ segir Védís Kara sem er 29 ára fjögurra barna móðir og prjónahönnuður. Védís setti nýlega upp prjóna­ uppskriftasíðuna Slip Slip Knit í samstarfi við Telmu Sif Guð­ mundsdóttur, sem býr í Svíþjóð. „Nafnið vísar í prjónaaðferð sem kallast „slip slip knit“ á ensku. Þegar við vorum komnar með sirka þúsund uppástungur um nafn á vefinn fannst okkur þessi passa best því við vildum hafa nafn sem fangaði athyglina,“ útskýrir Védís. Bland af brjóstaþoku og hvatvísi Védís er úr Þorlákshöfn og Telma úr Mosfellsbæ. „Við erum bara ósköp ofvirkar margra barna mæður sem eignuð­ umst fyrstu börnin okkar of fljótt, eða þegar við vorum 16 ára. Við þekkjumst þó ekki þaðan, en Telma á þrjú börn,“ upplýsir Védís um til­ urð þess að þær stöllur náðu saman og fóru að hanna prjónaflíkur. „Okkur fannst allir á Íslandi vera að gera það sama í prjónaflíkum og erum báðar með þannig haus að hann vinnur á borð við svona sjö manns. Þannig fæddist hver hug­ myndin á fætur annarri þar til við ákváðum að vinna bara saman og gera prjónauppskriftir. Við óðum því út í þann hafsjó án þess að hafa kúta né kork, svo það má segja að þarna hafi verið í gangi bland af brjóstaþoku, hvatvísi og svefnleysi,“ segir Védís og skellir upp úr. Þær reyna að fara í aðra átt en aðrir prjónahönnuðir. „En eins og flestir vita þá er enginn að finna upp hjólið í prjóna­ bransanum. Við reynum bara að hanna okkar flíkur eftir því sem okkur sjálfum þykir fallegt.“ Peysan varð eins og flothringur Fyrsta prjónaminning Védísar er frá því á sautjánda árinu. „Þá ætlaði ég að vera svo gal­ vösk að prjóna mér lopapeysu. Ég notaði náttúrlega prjóna sem áttu að henta í prjónaskapinn, en funk­ eruðu alls ekki fyrir mig þar sem ég prjóna mjög fast og þarf alltaf að stækka um prjónastærð. Ég gat svo með engu móti skilið hvernig ég átti að taka lykkjurnar í handar­ krikanum og geyma til að lykkja þær saman seinna, svo peysan varð hálfgerður flothringur á mér,“ segir Védís og skellihlær. „Telma náði hins vegar mun fyrr tökum á lopapeysuprjóni því hennar fyrsta minning er einmitt lopapeysa sem hún prjónaði á pabba sinn og tókst svona ljóm­ andi vel þrátt fyrir ýmsar villur í munstrinu.“ Þær Védís og Telma njóta þess að sitja með prjónana: Telma í ungbarnaprjóninu á meðan Védís er sáttust við að klára bara beru­ stykki og bolinn. „Það er leyndarmál heimsins hversu margar peysur eru erma­ lausar heima,“ segir hún kímin. Prjón veitir hugarró og slökun Vinkonurnar segjast báðar háðar því að kíkja á Pinterest og að þar verði oft til kveikja að prjóna­ flíkum þeirra. „Börnin okkar veita auðvitað líka innblástur upp að vissu marki, sem og gjafir sem við nostrum við og hönnum hverju sinni. Það er svo sniðugt að skella í eitt vettlingapar eða húfu og gefa, til að vera bæði persónulegur og með peninga­ vitið á hreinu. Svo verður maður vitaskuld að fylgja aðeins tískunni og hafa flíkina einlita, sem er mjög móðins núna, þótt litir séu að koma sterkar inn og við erum svolítið á þeim vagninum akkúrat núna,“ greinir Védís frá. Það fer svo eftir flíkunum og hversu langt prjónafólk er komið hvort uppskriftirnar séu flóknar. „Sjálfar viljum við meina að uppskriftirnar séu vel útskýrðar en það er alltaf persónubundið hvort prjón er flókið eða ekki. Við látum fylgja með fleiri en færri útskýringar, ef fólk skyldi ákveða að taka stökkið áfram og skora á sjálft sig í prjónaskapnum.“ Spurð hverju hún sé stoltust af í prjónaskapnum svarar Védís: „Ég er stolt af því að geta verið með úrval af prjónauppskriftum sem fólk langar að spreyta sig á. Það er rosalega skemmtileg til­ finning að vera úti að labba, eða að sækja börnin í skólann, og sjá barn hlaupa fram hjá í prjónaflík sem eitt sinn var hugmynd sem maður setti niður á blað. Það er miklu per­ sónulegra að klæðast og gefa flík sem maður hefur sjálfur búið til. Prjón veitir líka mörgum hugarró og slökun – nema kannski Telmu því hún þarf svo ansi oft að rekja upp því ég er alltaf að breyta,“ segir Védís stríðnislega og hlær. n Skoðið prjónauppskriftir Védísar og Telmu á slipslipknit.is Bara ósköp ofvirkar margra barna mæður Védís Kara með þremur yngstu börnum sínum sem hér eru öll klædd í prjónahönnun mömmu sinnar, peysur og húfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Elsta dóttir Védísar í sægrænni peysu með rauðbleikum bekk. Telma Sif Guðmunds- dóttir er þriggja barna móðir sem elskar að hanna og prjóna ungbarnaföt. MYND/AÐSEND Töff og blá rúllukragapeysa með vasa, en einlitt er mikið í tísku nú. 6 kynningarblað A L LT 22. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.