Fréttablaðið - 24.09.2022, Side 2
Mér finnst stundum
eins og ég sé starfs-
maður með ofurkrafta
þegar ég er með hund-
inn.
Helga Helgadóttir, deildarstjóri í
Fossvogsskóla
Dansað í miðborginni
Hinn árlegi peysufatadagur kvennaskólans í Reykjavík var haldinn hátíðlegur í gær. líkt og hefðin segir til um klæddu nemendur í þriðja bekk skólans sig upp í
hefðbundna íslenska þjóðbúninga og héldu meðal annars á Ingólfstorg, þar sem þeir glöddu gesti með þjóðlegum dansi og söng. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Biðröð er fyrir utan vinnuver
Helgu Helgadóttur í Fossvogs-
skóla tvisvar í viku, þegar
hún kemur með sérþjálfaðan
skólahund í vinnu. Krakk-
arnir bíða í röðum eftir að
lesa og spjalla við Trausta sem
fær pepperóní að launum.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Helga Helgadóttir,
deildarstjóri stoðþjónustu í Foss-
vogsskóla, hefur fengið leyfi frá
heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til
að koma með hundinn Trausta í
skólann. Nú geta börn komið og
lesið fyrir hann, spjallað eða ein-
faldlega átt notalega stund. Trausti
kemur tvisvar sinnum í viku, á mið-
vikudögum og föstudögum, og er
yfirleitt biðröð af börnum til að líta
inn til Helgu og Trausta, sem er sér-
þjálfaður skólahundur.
„Ég og Gunnar Jarl, maðurinn
minn, fengum styrk bæði frá félags-
mála- og menntamálaráðuneytinu,
til að kaupa Trausta, sem þá var
hvolpur. Hann er hreinræktaður
Golden Retriever og er sérþjálfaður
skólahundur,“ segir Helga. Hún var
með annan hund í verkefni í Voga-
skóla og eftir að hafa fengið öll til-
skilin leyfi hefur Trausti komið í
Fossvogsskóla og glatt þar börnin.
„Við erum himinlifandi að hafa
Trausta í vinnu og hann er að gera
kraftaverk fyrir börnin okkar,“ segir
Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir skóla-
stjóri en Trausti fær gæða pepperóní
að launum.
Helga segir að börnin hafi tekið
Trausta vel og séu yfirleitt mjög
spennt yfir dögunum sem hann
birtist, en hann er staðsettur í
námsverinu í skólanum þar sem
krakkarnir koma og læra í róleg-
heitum. „Það að vera í samvistum
við hann hefur reynst mjög jákvætt
fyrir nemendur.
Sumir eru að koma gagngert til
að lesa fyrir hann eða spjalla um
daginn og veginn. Stundum þarf að
ræða alls konar hluti og þá er gott
að ræða það við hann. Trausti hefur
róandi áhrif,“ segir Helga.
Þetta verkefni heitir Hundur í
skóla – aukin vellíðan, sem er eitt-
hvað sem hún finnur vel fyrir.
„Það er auðveldara að nálgast
nemendur með því að tala um hund.
Það er frábær ísbrjótur. Af ýmsum
toga er þetta mjög gagnlegt,“ segir
hún og bætir við að svona úrræði
ætti að vera í f leiri skólum.
„Krakkar tengja við dýr. Börn
hafa langf lest áhuga á dýrum og
svo er mikið hægt að vinna með
dýr. Þau hafa til dæmis ekki málið
og nota annars konar tjáskipti til
að tjá líðan og tilfinningar sem við
lesum í. Börn eiga það sameiginlegt
með dýrunum að eiga stundum í
erfiðleikum með að tjá sig.
Mér finnst stundum eins og ég sé
starfsmaður með ofurkrafta þegar
ég er með hundinn. Þetta er svolítið
eins og að vera svindlkall með ofur-
krafta úti á fótboltavelli,“ segir hún
og hlær. n
Börn í Fossvogsskóla elska
að hitta hundinn Trausta
Það er yfir-
leitt biðröð af
börnum til að
líta inn til Helgu
og Trausta í
námsverinu.
MYND/
FOSSVOGSSKÓLI
það byrjar at með fjórum fræjum
ENN HOLLARI OLÍA
OMEGA 3 & 6
+ D - & E-VÍTAMÍN
erlamaria@frettabladid.is
VEÐUR Fyrsta haustlægðin er vænt-
anleg um helgina, en gular viðvar-
anir eru í gildi víða um land.
Að sögn Þorsteins V. Jónssonar,
veðurfræðings hjá Veðurstofunni,
kemur fyrsta haustlægðin alltaf svo-
lítið aftan að fólki.
„Við eigum það til að gleyma að
taka inn hluti sem eru úti í garði og
þarf að koma í skjól. Lausamunir á
borð við trampólín, grill og garðhús-
gögn, sem þurfa að fara í skjól fyrir
annað kvöld,“ segir Þorsteinn.
Þá sé mun verra veður væntanlegt
á sunnudaginn.
„Þá er spáð hríðarveðri á Norð-
austurlandi og vetrarfærð á fjall-
vegum. Stormur eða rok undir
Vatnajökli og víða á Austurlandi,
og getur orðið ofsaveður þarna
sums staðar og ekkert ferðaveður,“
segir Þorsteinn. Hann biðlar til
fólks, þá sérstaklega þeirra sem eru
á faraldsfæti, að fylgjast vel með við-
vörunum Veðurstofunnar og Vega-
gerðarinnar. n
Spáir ofsaveðri
á Austurlandi
Þorsteinn V.
Jónsson, veður-
fræðingur hjá
Veðurstofunni
erlamaria@frettabladid.is
LÖGREGLA Fjórir Íslendingar á þrí-
tugsaldri, sem sérsveit ríkislög-
reglustjóra handtók í viðamiklum
aðgerðum á þriðjudaginn, eru sagðir
hafa verið að undirbúa árásir sem til
stóð að framkvæma á næstu dögum.
Karl Steinar Valsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá embætti ríkislögreglu-
stjóra, hefur staðfest að mennirnir
hafi meðal annars beint sjónum
sínum að Alþingi og árshátíð lög-
reglumanna, sem til stendur að
halda í næstu viku.
Þeir eru grunaðir um undirbún-
ing hryðjuverka og ólöglegan inn-
flutning og framleiðslu skotvopna
með þrívíddarprenturum, en tugir
skotvopna og þúsundir skotfæra
voru haldlögð í aðgerð lögreglu og
sérsveitar.
Einn þeirra manna sem voru
handteknir í aðgerðunum losnaði
úr gæsluvarðhaldi einum sólarhring
áður, en hann var handtekinn síð-
astliðinn þriðjudag. Sá var grunaður
um vopnalagabrot, en hann var
úrskurðaður í vikulangt gæsluvarð-
hald á fimmtudaginn. Þá var annar
úrskurðaður í tveggja vikna gæslu-
varðhald sama dag. Hinum tveimur
var sleppt að lokinni skýrslutöku. n
Alþingi og lögregla voru skotmörkin
Karl Steinar Valsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra.
2 Fréttir 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ