Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 4
176 fermetra fjölbýli
og 92 fermetra sérbýli
er með hæsta fermetra-
verðið, ríflega 1,5
milljónir.
6
úr róðra-
deild
Nökkva á
Akureyri
réru í kringum Hrísey.
n Tölur vikunnar
27
friðuð hús
hafa verið
rifin eða flutt með
leyfi Minjastofnunar
frá árinu 2017.
50
prósent
íbúa í Mýr-
dalshreppi
eru nú af erlendu bergi
brotin.
86
störf munu flytjast með
Útlendingastofnun frá
Reykjavík til Reykja-
nesbæjar gangi tillaga
fjögurra þingmanna eftir.
300
þúsund
Rússar geta
nú átt von á
því að verða kvaddir í
herinn.
Erla
Bolladóttir
sakborningur í
Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu
fékk dóms
mál sitt ekki
endurupptekið.
„Niðurstaða endurupptökudóm
stóls er í rauninni óforsvaranleg,“
sagði Erla á blaðamannafundi.
Erla er sú eina af þeim sex sem
hlutu dóma í tengslum við málið
sem hefur ekki fengið mál sitt
endurupptekið. Á fundinum sagði
Erla frá því að rannsóknarlög
reglumaður hefði nauðgað henni í
gæsluvarðhaldi.
Hjörleifur H.
Herbertsson
kosningastjóri hjá
Flokki fólksins á
Akureyri
hafnar ásök
unum þriggja
flokkssystra
sinna um að hafa beitt þær kyn
ferðislegu ofbeldi. „Þetta er tóm
lygi, þessar konur eru svika
kvendi, en aftur á móti hef ég haft
í f limtingum oftar en einu sinni að
ég hafi aldrei tekið á konu nema
undir sæng við eðlilegar aðstæður,“
sagði Hjörleifur.
Hildur
Sverrisdóttir
alþingismaður
Sjálfstæðisflokks
mælti fyrir
frumvarpi um
tæknifrjóvganir.
„Frumvarpið
miðar að því að auka möguleika
fólks til að verða foreldrar með
hjálp tækninnar í krafti eigin
ákvörðunarréttar,“ sagði Hildur
sem segir að breyta þurfi núver
andi stöðu. „Reglur eru fyrir fólk
og löggjafinn má ekki að vera
hræddur við að endurskoða þær
í takt við tímann,“ bætti Hildur
við. n
n Þrjú í fréttum
JEEP.IS • ISBAND.IS
PLUG-IN HYBRID
FÆRÐIN ER
ALLTAF GÓÐ
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Leyfðu Jeep® Wrangler Rubicon
Plug-In Hybrid að spreyta sig á krefjandi
slóðum. Leiðin verður rafmögnuð.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
Minni íbúðir í fjölbýlishúsum
lækkuðu nokkuð í verði á
höfuðborgarsvæðinu í ágúst
og nemur hækkun síðustu tólf
mánaða nú 18 prósentum en
var 22 prósent í júlí.
olafur@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Þetta er viðsnún
ingur frá síðasta mánuði. Sérbýli
yfir 200 fermetrum, sem lækkaði í
verði í júlí, hækkaði á ný í ágúst og
nemur tólf mánaða hækkun sérbýlis
á höfuðborgarsvæðinu nú 37 pró
sentum, en 39 prósentum ef aðeins
er horft til eigna sem eru meira en
200 fermetrar. Þetta kemur fram í
fasteignamælaborði Deloitte.
Í júlí var meðalfermetraverð
seldra íbúða undir 80 fermetrum
826 þúsund krónur. Í ágúst er fer
metrinn kominn niður í 793 þúsund
krónur. Verðið er þó mjög misjafnt
eftir hverfum. Hæst er það í Smára,
Linda og Salahverfi í Kópavogi, 905
þúsund, en lægst í Breiðholtinu, 576
þúsund.
Í fjölbýli yfir 120 fermetrum er
verðið hæst í miðborg Reykjavíkur,
843 þúsund fermetrinn. Lægst er
það í Breiðholti, í hverfi 109. Meðal
fermetraverð alls fjölbýlis er lægst í
Breiðholti.
Á landsbyggðinni hækkaði fer
metraverð í fjölbýli milli júlí og
ágúst og mest hefur hækkunin á
landsbyggðinni síðustu tólf mánuði
verið á Austurlandi, 48 prósent.
Hæsta fermetraverðið í f jöl
býli á höfuðborgarsvæðinu í ágúst
var þegar 176 fermetra íbúð við
Bryggjugötu við Austurbakka
gömlu hafnarinnar í Reykjavík
var seld á 270 milljónir. Fermetra
verð í þeirri sölu var 1,53 milljónir.
Almennt er óalgengt að fermetra
verð íbúða yfir 80 fermetrum sé yfir
einni milljón.
Í heildina nam söluverðmæti
íbúða í f jölbýli á höfuðborgar
svæðinu 25,8 milljörðum króna og
meðalfermetraverð var rösklega 717
þúsund krónur. Nokkuð algengt var
að fermetraverð smærri íbúða væri
yfir einni milljón.
Minni íbúðir lækka og sérbýli hækkar
Verð á smærri íbúðum í fjölbýli lækkaði í ágúst og meðalverð á fermetra fór undir 800 þúsund krónur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hæsta verðið á fermetra í sérbýli
á höfuðborgarsvæðinu í ágúst var
þegar 92 fermetra hús í Fossvogi var
selt á 140 milljónir. Fermetraverðið
nam 1,52 milljónum. Þetta virðist
raunar ekki vera stórt sérbýli.
Annað sérbýli í Fossvogi, 219 fer
metra hús við Haðarland, seldist á
245 milljónir, sem gefur fermetra
verð upp á ríf lega 1,1 milljón. Fer
metraverð var undir milljón í öllum
öðrum viðskiptum með sérbýli.
Meðalverð minni sérbýla á höf
uðborgarsvæðinu rauf 700 þúsund
króna markið í ágúst. Hæst meðal
verð fermetra í sérbýli á höfuð
borgarsvæðinu var í Garðabæ, 749
þúsund. Lægst var meðalverðið í
Mosfellsbæ, 612 þúsund.
Heildarverðmæti í viðskiptum
með sérbýli á höfuðborgarsvæð
inu í ágúst nam rösklega 8,5 millj
örðum og meðalfermetraverðið var
672 þúsund krónur. n
4 Fréttir 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ