Fréttablaðið - 24.09.2022, Síða 6

Fréttablaðið - 24.09.2022, Síða 6
Það þurfti einbeittan brotavilja til að komast þarna upp. Kolbeinn Hreinsson, verktaki Fífldirfska krakka sem nýttu vinnupalla til að klífa upp Hallgrímskirkju þvingaði verktaka til að breyta vinnu- lagi. Einbeittur brotavilji, að hans sögn. bth@frettabladid.is REYKJAVÍK Kolbeinn Hreinsson, framkvæmdastjóri M1 sem vinnur að múr- og steypuviðgerðum á Hallgrímskirkju, hefur neyðst til að breyta verklagi með þeim afleið- ingum að verkið verður erfiðara og tafsamara að hans sögn. Ástæðan er að krakkar nýttu veggstillansa til að klifra upp í mikla hæð. Einn þeirra birti TikTok- myndband af athæfinu. Um leið og Hallgrímskirkju bár- ust fregnir af málinu var haft sam- band við verktakann. „Við töldum áður en þetta kom upp að við hefðum gert allar örygg- isráðstafanir sem þurfti,“ segir Kol- beinn. Hann segir að svæðið hafi áður verið girt af. Enginn hafi átt von á að ungmenni færu án öryggis- búnaðar líkt og kóngulær upp veggi kirkjunnar. „Nú eru engir pallar til að klifra eftir þegar við erum ekki að störf- um. Við þurfum að rífa pallana niður og reisum þá í hvert skipti sem við þurfum að vinna þarna uppi,“ segir Kolbeinn. Hann segir að fyrir vikið verði verkið erfiðara og tafsamara. „Það þurfti einbeittan brotavilja til að komast þarna upp,“ segir Kol- beinn. Sigríður Hjálmarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hallgrímskirkju, segir að fólk hafi gripið andann á lofti og að hún hafi strax rætt við verktakana þegar heyrðist af Tik- Tok-myndbandinu. Verktakinn hafi brugðist leiftursnöggt við. „Það er mjög leitt að þetta hafi gerst. Svæðið var lokað af og það átti ekki að vera hægt að fara upp með stillönsunum. En við tókum þessu öll alvarlega og vonandi er þetta mál úr sögunni,“ segir Sigríður. Saga Hallgrímskirkju, einkennis- tákns Reykjavíkur, hefur verið saga verkpallanna í tímans rás. Bæði Sigríður og Kolbeinn óska þess að störf geti nú haldið áfram án trufl- unar. Framkvæmdir munu standa yfir við þennan verkþátt í allan vetur. Ekki þarf að hafa mörg orð um hve heppnir krakkarnir voru að skaða sig ekki, enda fóru þeir upp í 15–20 metra hæð. „Þetta er stórhættulegt,“ segir Sig- ríður. n Hætta skapaðist í kirkjunni Eftir að atvikið varð eru vinnu- pallarnir settir upp í upphafi hvers vinnudags og teknir niður í lok dags. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Sigríður Hjálmarsdóttir, framkvæmda- stjóri Hallgríms- kirkju Veitingastaður golfklúbbsins Keilis býður upp á jólamatseðil alla föstudaga og laugardaga frá 11. nóvember til 10. desember 2022. Tilvalið fyrir vinahópa og fyrirtæki frá 8 til 70 manns. Lifandi tónlist og jólastemming. Matseðill, sjá nánar á keilir.is Borðapantanir á hafsteinn@betristofan.com og í síma 7792416 GK veitinga GK veitingar, Golfklúbburinn Keilir Steinholti 1 Hvaleyri, 220 Hafnarfirði Jólagleði 100% náttúruleg hvannarrót 60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI hvannarrót Leyndarmál hvannarrótar Loft í maga? Glímir þú við meltingartruflanir? Næturbrölt Eru tíð þvaglát að trufla þig? Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru- verslun, Hagkaupum og Nettó. Sjósunds-zumbapartí það var mikið fjör á Ylströndinni í Nauthólsvík þar sem hópur kvenna kom saman í sjósunds-zumbapartíi á ströndinni. Nú styttist í að hiti sjávarins fari undir frostmark en í gær var hann 8,8 gráður á Celsíus. Sundmenn sem skelltu sér í sjóinn í gærmorgun hittu sel í sundferð sinni. FRÉTTABLAÐIÐI/SIGTRYGGUR ARI erlamaria@frettabladid.is ALÞINGI Sjö þingmenn, fimm úr Flokki fólksins og tveir úr Sam- fylkingunni, lögðu fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi í gær um tekjutengingu sekta fyrir umferð- arlagabrot. Guðmundur Ingi Kristinsson er fyrsti f lutningsmaður tillög- unnar, hann og hinir þingmenn- irnir vilja að dómsmálaráðherra skipi starfshóp sem taki til endur- skoðunar ákvæði umferðarlaga og reglugerða sem kveða á um sektir, með það markmið að tekjutengja sektarfjárhæðir. Lagt er til að starfshópurinn skili af sér skýrslu með tillögum í síðasta lagi þann 30. september 2023 og að ráðherra leggi skýrsluna fyrir Alþingi mánuði síðar. Hugmyndir að tekjutengingu sekta vegna umferðarlagabrota eru ekki nýjar af nálinni hér á landi, auk þess sem fordæmi eru fyrir slíkri tekjutengingu í öðrum löndum svo sem í Danmörku. n Vilja tekjutengja umferðarsektir Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrsti flutningsmaður tillögunnar 6 Fréttir 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.