Fréttablaðið - 24.09.2022, Síða 8
Ánægjulegt að finna
meðal annars jákvæð-
an hljómgrunn frá
þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins.
Þorgerður
Katrín Gunnars
dóttir, formaður
Viðreisnar
8:30 Mæting / skráning
9:00 Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra
Gerard Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi
Ávarp frá umhverfis- og loftlagsráðuneyti Póllands
KeyGeotermal - Beata Kepinska, Baldur Pétursson
Þróun jarðhita á Íslandi, Marta Rós Karlsdóttir, Orkustofnun
Þróun jarðhita í Póllandi, Beata Kepinska, MEERI PAAS
Kynning á hitaveitum á Íslandi
10:20 Kynning frá sveitarfélögum og fyrirtækjum í Póllandi
11:10 Kynning frá fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi
12:00 Hádegishlé og samstarfsfundir
13:00 Kynning frá fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi
14:00 Samstarfsfundir fyrirtækja frá Póllandi og Íslandi
16:00 Fundarlok
Þátttaka tilkynnist til Orkustofnunar á os@os.is upplýsingar á os.is
Kynningarfundur
Möguleikar á samstarfi í
uppbyggingu hitaveitna og
endurnýjanlegrar orku í Póllandi
27. september kl. 8:30 – 16:00 á Reykjavík Natura
Dagskrá
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Innviðasjóður
Umsóknarfrestur 1. nóvember
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði.
Hlutverk sjóðsins er að byggja upp rannsóknainnviði á Íslandi.
Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum
og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir
framfarir í rannsóknum.
Sérstaklega verður tekið tillit til innviðaverkefna á vegvísi sem
njóta, að öðru jöfnu, forgangs við úthlutun styrkja.
Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu
Innviðasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:
l Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum
á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda
l Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna
og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður,
markáætlun eða aðrir opinberir samkeppnissjóðir styrkja.
l Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli
stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti
l Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar
l Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun
á viðkomandi fræðasviði
l Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu
vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem
svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig
aðgengi verður háttað
Umsækjendur skulu kynna sér vel reglur sjóðsins
áður en umsókn er gerð.
Nánari upplýsingar og aðgangur að
rafrænu umsóknarkerfi er að finna á
www.rannis.is.
Í nýlegu frumvarpi frá for-
manni Viðreisnar eru lagðar
til breytingar á kosningalög-
um til að jafna vægi atkvæða
á milli landshluta. Málið
hefur lengi verið til umræðu á
Alþingi, en núna virðist vera
samstaða meðal þingmanna
um málið.
benediktarnar@frettabladid.is
ALÞINGI Nýtt frumvarp um breyt-
ingu á kosningalögum til að jafna
vægi atkvæða milli kjördæma var
lagt fram af þingmönnum fjögurra
þingflokka stjórnarandstöðunnar.
Málið hefur lengi verið til umræðu
og hafa margar lagfæringar verið
gerðar í gegnum tíðina. Þrátt fyrir
að jafnvægi á milli atkvæða og
þingsæta flokka hafi að miklu leyti
jafnast er misvægi á milli fjölmenn-
asta og fámennasta kjördæmisins
enn tvöfalt.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, hefur lengi
barist fyrir jöfnu vægi atkvæða.
Hún lagði fram frumvarpið ásamt
þingmönnum þriggja annara flokka
úr stjórnarandstöðunni. Þorgerður
segir þetta vera eitt af kjarnamálum
Viðreisnar og skynjar jákvæðni til
frumvarpsins frá öðrum þing-
flokkum.
„Það var fín umræða um þetta
á þinginu og ánægjulegt að finna
meðal annars jákvæðan hljóm-
grunn frá þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins. Það er vísbending um að
það sé vilji til þess að ræða þetta
mikilvæga mál. Ég vona að það verði
gert og þetta er skýr tillaga um að
þingið geti lagað þetta hrópandi
óréttlæti sjálft. En þetta er fyrst og
síðast til að reyna að leiðrétta órétt-
lætið sem er búið að viðgangast allt
of lengi,“ segir Þorgerður.
„Við förum þessa leið sem er að
fækka kjördæmaþingsætum niður
í sex fyrir hvert kjördæmi, en fjölga
jöfnunarsætum. Þannig að jöfnun-
arþingmenn verða fleiri og þá fara
þeir þangað sem atkvæðagreiðslan
segir til um. Jöfnunarmennirnir
verða þá væntanlega f leiri á suð-
vestur-horninu heldur en áður. Þá
endurspeglar niðurstaða þingkosn-
inganna miklu frekar lýðræðislegan
vilja fólksins,“ segir Þorgerður.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar og með-
flutningsmaður frumvarpsins, segir
að jafnt vægi atkvæða sé mannrétt-
indamál.
„Málið er núna í umsagnarferli
og það verður fróðlegt að sjá hvað
kemur út úr því. Stefna Samfylk-
ingarinnar hefur verið að atkvæða-
vægi eigi að vera jafnt. Ég veit að það
kunna að vera önnur sjónarmið á
landsbyggðinni, en þetta er mann-
réttindamál. Við þurfum að koma
því þannig fyrir í okkar landi að
vægi atkvæða sé jafnt,“ segir Þórunn.
Óli Björn Kárason, þingflokksfor-
maður Sjálfstæðisf lokksins, segir
að markmið frumvarpsins sé gott,
en hann er ekki sannfærður um að
aðferðafræði frumvarpsins sé sú
rétta.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla
tíð lagt áherslu á að vægi atkvæða sé
sem jafnast. Sjálfur er ég sannfærður
um að í frjálsu samfélagi gangi ekki
að fólk hafi misjafnt vægi þegar
það mætir í kjörklefa. Eitt atkvæði
er auðvitað það sem við eigum að
stefna að. Það er ekki í þessu frum-
varpi Viðreisnar, þau ganga ekki
það langt, en það hefði raunveru-
lega ekki verið hægt að ganga mikið
lengra án þess að breyta stjórnar-
skrá. Þau eru að reyna að vinna
innan kosningalaganna og það
setur þeim auðvitað þröngan stakk.
Ég held að menn þurfi almennt að
huga að því að breyta ákvæðum
stjórnarskrár. Ég er orðinn sann-
færður um að það þurfi að fjölga
kjördæmum og gera þau minni,
en hafa það í huga að jafna vægi
atkvæða,“ segir Óli.
„Ég er ekki sannfærður um að sú
aðferðafræði sem þau boða í frum-
varpinu sínu sé sú rétta, en það er
bara einhver tæknileg útfærsla.
Markmið frumvarpsins er gott, en
vandinn er auðvitað sá að svigrúm-
ið sem er til staðar án þess að breyta
stjórnarskrá er mjög lítið og þau eru
að reyna að vinna innan þessa litla
svigrúms og það er virðingarvert,“
segir Óli. n
Stuðningur við jafnt vægi
atkvæða milli landshluta
Þórunn Svein
bjarnardóttir,
þingmaður
Samfylkingar
innar
Óli Björn Kára
son, þingflokks
formaður Sjálf
stæðisflokksins
Frumvarpið var lagt fram af þingmönnum fjögurra þingflokka stjórnarand
stöðunnar og hefur lengi verið til umræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ser@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Neytendastofa
hef ur bannað f y rirtækjunum
Norðanfiski og Fisherman að nota
villandi fullyrðingar í markaðssetn-
ingu þar sem látið er að því liggja
að afurðir þeirra komi úr „vistvænu
sjóeldi“.
Forsaga málsins er sú að Neyt-
endasamtökin fengu ábendingu um
villandi merkingar hjá umræddum
fyrirtækjum og var álits leitað hjá
viðkomandi stofnun, sem nú liggur
fyrir.
Forvígismenn Neytendasamtak-
anna segja á heimasíðu sinni að orð-
notkunin „vistvænt sjóeldi“ sé afar
villandi og í raun ólíðandi með öllu.
Sjókvíaeldi sé beinlínis flokkað sem
mengandi iðnaður á vef Umhverfis-
stofnunar, enda fari skólpið sem
verði til við framleiðsluna beint í
sjóinn.
Á síðunni er bent á að norska
umhverfisstofnunin hafi metið
mengunina af hverju tonni í sjókví á
við skólp frá 16 manneskjum. Laxar
séu til dæmis með leyfi fyrir 16.000
tonnum í Reyðarfirði, sem framleiði
þannig skólp á við 256.000 manns.
Það geti ekki talist vistvænt.
Á umbúðum Norðanfisks var
fullyrt að um vistvænt sjóeldi væri
að ræða. Neytendasamtökin hafi
óskað eftir upplýsingum frá fyrir-
tækinu um hvað átt væri við með
orðalaginu „vistvænt sjóeldi“ og
hvort einhver vottun lægi þar að
baki. Í svörum fyrirtækisins komi
fram að birgjar þeirra skilgreindu
sjálfir sitt eldi sem vistvænt, en
hefðu enn ekki hlotið neinar vott-
anir í þá veru. n
Bannað að nota villandi fullyrðingar
Úr sjókvíaeldi við Íslandsstrendur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
8 Fréttir 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ