Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 10
Í fyrsta skipti áttum
við leiðtoga sem við
treystum – og það
skiptir máli, Þórólfur.
Kári Stefánsson
Stjórn Sýnar hf. boðar til hluthafafundar
Stjórn Sýnar hf. boðar til hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 20. október 2022
klukkan 10.00 árdegis í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108, Reykjavík.
Til fundarins er boðað að kröfu þriggja hluthafa sem hafa að baki sér rúmlega 10% hlutafjár félagsins, sbr. fyrri tilkynning félagsins til kauphallar, dags. 19. september 2022. Krefjast hluthafarnir að á fundinum
verði tekin fyrir tillaga þeirra um stjórnarkjör. Tillagan felur í sér tvennt að mati stjórnar Sýnar hf.; að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður, og að kjörinn verði ný stjórn ef fyrri tillagan verður samþykkt.
Með vísan til framangreinds boðar stjórn Sýnar ehf. til hluthafafundar samkvæmt ofangreindu með eftirgreindri dagskrá:
Aðrar upplýsingar
Öll skjöl, svo sem framboðseyðublað, og tillögur sem lögð
verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins
syn.is/fjarfestatengsl/hluthafafundur. Hluthöfum stendur
einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að
Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, virka daga milli klukkan 9:00-16:00.
Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á
íslensku.
Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir
sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á
fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um
mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka
atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið
hluthafar@syn.is eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e.
fyrir kl. 10.00 laugardaginn 15. október 2022.
Dagskrá fundarins:
1. Tillaga um að bundinn verði endir á kjörtímabil sitjandi stjórnar félagsins.
2. Með fyrirvara um að tillaga undir tölulið 1. hér að framan verði samþykkt, fer fram stjórnarkjör.
3. Önnur mál.
Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík Sími 599 9000 Kennitala: 470905-1740
Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á
hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski
hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundarins
skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið
hluthafar@syn.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn, þ.e.
fyrir kl. 10.00 fimmtudaginn 6. október 2022.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.
Með fyrirvara um að tillaga samkvæmt 1. tölulið dagskrár verði
samþykkt, er auglýst eftir framboðum til stjórnar. Með vísan til
þess hve skammur tími er liðinn frá síðasta hluthafafundi þar sem
stjórnarkjör var á dagskrá hefur stjórn ákveðið í þetta sinn að víkja til
hliðar reglum um Tilnefningarnefnd og að reglur hlutafélagalaga
og samþykkta félagsins skuli einar gilda um stjórnarkjörið ef það
fer fram.
Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna
um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa
fyrirvara fyrir hluthafafund, eða fyrir kl. 10.00 laugardaginn 15.
október 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Sýnar hf.,
Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, eða á netfangið hluthafar@syn.is.
Allt er þetta gert með fyrirvara um að raunverulegt stjórnarkjör fari
fram á fundinum. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða
birtar eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir hluthafafundinn.
Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða
margfeldiskosningar við stjórnarkjör ef beiðnin berst a.m.k. fimm
sólarhringum fyrir fundinn, ef þeir hafa til þess afl samkvæmt
samþykktum, ef ekki er sjálfkjörið.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent frá klukkan 9.30 á fundardegi.
Stjórn Sýnar hf.
Þórólfi Guðnasyni, fyrr-
verandi sóttvarnalækni,
var þakkað fyrir vel unnin
störf í gær á málþingi í húsi
Íslenskrar erfðagreiningar. Á
málþinginu voru flutt fjöl-
breytt erindi, bæði vísindaleg
og persónuleg.
jonthor@frettabladid.is
SAMFÉLAG Málþing Embættis land-
læknis til heiðurs Þórólfi Guðna-
syni, fyrrverandi sóttvarnalækni,
fór fram í gær í tilefni starfsloka
hans. Alma D. Möller var fundar-
stjóri, en hún átti hugmyndina að
viðburðinum sem innihélt fjöl-
breytt erindi, bæði hávísindaleg
sem og persónuleg.
Willum Þór Þórsson heilbrigðis-
ráðherra setti málþingið með því að
þakka Þórólfi fyrir hönd þjóðarinn-
ar fyrir vel unnin störf. Hann lagði
áherslu á hversu góður hann væri
í samskiptum og vitnaði í gamla
Eyjasöngva eftir Ása í Bæ.
Forstjóri Íslenskrar erfðagrein-
ingar, Kári Stefánsson, var næstur
og fór út um víðan völl í erindi sínu,
frá þróun mannsins yfir í sjálfan
Þórólf, sem hann sagði að væri
sannur leiðtogi sem hefði sameinað
þjóðina á erfiðum tímum. „Í fyrsta
skipti áttum við leiðtoga sem við
treystum – og það skiptir máli, Þór-
ólfur,“ sagði Kári og kallaði Þórólf
vin sinn, félaga og fóstbróður.
Vísindin voru næst á dagskrá.
Prófessorarnir Unnur Anna Valdi-
marsdóttir og Thor Aspelund fjöll-
uðu meðal annars um notkun spá-
líkana og langtímaáhrif Covid-19. Þá
kom Jón Steinar Jónsson, yfirlæknir
á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsu-
gæslu, og hélt erindi. Unnur, Thor og
Jón höfðu öll orð á því hversu gott
samstarfið með Þórólfi hefði verið,
og lýsti Thor því sem „once in a life-
time“-reynslu.
Næst kom Víðir Reynisson, sviðs-
stjóri almannavarna, og fjallaði um
notkun vísindagagna við sviðs-
myndagerð almannavarna. Hann
fór einnig bak við tjöldin og sagði
sögur af því þegar þeir félagarnir
voru bugaðir eftir mikla og erfiða
vinnu, en að alltaf hefði verið stutt í
jákvæðnina hjá Þórólfi. „Takk fyrir
samstarfið og takk fyrir vináttuna,“
sagði Víðir.
Runólfur Pálsson, prófessor og
forstjóri Landspítalans, greindi
frá því hvernig spítalinn brást við
heimsfaraldrinum, með áherslu á
nýsköpun. Þá var skipt um gír, en
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir
fékkst við spurninguna: Hver er
Þórólfur? Hún fór fögrum orðum
um forvera sinn, sem hún lýsti sem
duglegum manni sem gæfist aldrei
upp, en væri jafnframt hrókur alls
fagnaðar.
Þá var komið að sjálfum Þór-
ólfi að líta yfir farinn veg. Nú væri
komið að tímamótum hjá honum,
og því upplifði hann blendnar til-
finningar, en sagði að jákvæðar
minningar stæðu upp úr. Hann
benti þó á að hann væri ekki á leið-
inni í gröfina og að það væri mikið
langlífi í föðurfjölskyldunni. Þór-
ólfur hélt mikla þakkarræðu, þar
sem hann minntist á samstarfsfólk,
stjórnvöld, þjóðina og fjölskyldu
sína. Hann hlaut mikið lófaklapp
að ræðu sinni lokinni.
Svandís Svavarsdóttir, landbún-
aðarráðherra og fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, sló á létta strengi
og benti á hversu mikill húmoristi
Þórólfur væri. Hún greindi til að
mynda frá því að hann hefði sent sér
aprílgabb í staðinn fyrir smittölur,
eitt kvöldið þegar faraldurinn stóð
sem hæst.
Að lokum kom leynigestur. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra tók
undir með flokkssystur sinni um
að Þórólfur væri mikill húmoristi.
„Hann skiptir aldrei skapi þó allir
aðrir séu að skipta skapi,“ sagði
Katrín, og að það hlyti að hafa verið
að erfitt að glíma við faraldurinn,
stjórnvöld og þjóðina á sama tíma. n
Þökkuðu Þórólfi fyrir vel unnin störf
Gestirnir
fögnuðu Þórólfi
ákaft þegar
þeir þökkuðu
honum fyrir
góð störf í þágu
þjóðarinnar og
uppskar hann
mikið lófatak.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
10 Fréttir 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ