Fréttablaðið - 24.09.2022, Page 12

Fréttablaðið - 24.09.2022, Page 12
Meloni, líkt og Marg- aret Thatcher mun, mun berjast og sigra. Steve Bannon Ef úrslitin verða í sam- ræmi við kannanir mun Meloni að öllum líkindum mynda stjórn með tveimur öðrum öfga hægri- flokkum. Heimildir: Quorum/Youtrend, European Data News Hub Myndir: Getty Images Stefnir í sigur ítalskra hægriöfga okka © GRAPHIC NEWS Kosningaáform Ítala (9. september Quorum/Youtrend fyrir Sky TG24). Hægri-samsteypustjórn: Útlit er fyrir að hægriŒokkarnir Bræður Ítalíu, Norðurbandalagið og Forza Italia fái meira en 46% atkvæða. Giorgia Meloni: Verði þetta niðurstaða kosninganna getur hún gert tilkall til forsætisráð- herrastólsins og markað stefnu samsteypustjórnar með Norður- bandalaginu og Forza Italia, Œokki Silvio Berlusconi. Matteo Salvini: Gæti verið til vandræða í nokkrum mála- Œokkum, einkum varðandi Úkraínustríðið, þar sem hann er á öndverðum meiði við Meloni. Bræður Ítalíu (Fdl) öfgahægri- Œokkur Forza Italia (FI) hægrimiðŒokkur Fimmstjörnu- hrey ngin (M5S) popúlistar Demókrata- ‚okkurinn (PD) vinstrimiðŒokkur Azione & Italia Viva (Az+IV) frjálslyndur Œokkur 25,3% 12,9% 7,9% 13,8% 21,2% 5,5% Norður- bandalagið (LN) öfgahægri- Œokkur Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum fyrir þingkosningarnar á Ítalíu er útlit fyrir að póst-fasískur Œokkur Giorgiu Meloni, Bræður Ítalíu, fái 25 prósent atkvæða – tvöfalt meira en Norðurbandalag Matteo Salvini, sem andsnúið er innŒytjendum. Ágúst: Azione og Italia Viva sameinast um „þriðja pól“ til að ná atkvæðum af Forza Italia. Kosið er til þings á Ítalíu á morgun og gangi spár eftir verður kona forsætisráðherra í fyrsta sinn í sögu landsins og leiðir hægrisinnuðustu stjórn landsins frá síðari heims- styrjöld. Efnahagurinn er kjósendum ofarlega í huga en gert er ráð fyrir að kosninga- þátttaka verði dræm. thp@frettabladid.is ÍTALÍA Ítalir ganga að kjörborðinu á morgun og útlit er fyrir að sú stjórn sem tekur við völdum verði langt til hægri og Giorgia Meloni, formaður flokksins Bræðra Ítalíu, verði næsti forsætisráðherra, fyrst kvenna. Hún lofar því að endurreisa „stolt“ þjóð- arinnar nái hún kjöri. Búist er við að niðurstöður liggi fyrir á mánudag. Ef úrslitin verða í samræmi við kannanir mun Meloni að öllum lík- indum mynda stjórn með tveimur öðrum öfgahægriflokkum. Það eru Norðurbandalagið undir stjórn Matteo Salvini og Forza Italia undir stjórn Silvio Berlusconi. Þeir hafa báðir gegnt embætti forsætisráð- herra. Þetta yrði fyrsta öfgahægristjórn Ítalíu frá falli fasistastjórnar Benito Mussolini við lok síðari heimsstyrj- aldar. Stjórn Meloni yrði sú sjötug- asta síðan lýðræði var komið á eftir stríðið. Ítalir eru orðnir langþreyttir á ótryggu stjórnmálaástandi og stöðugum stjórnarskiptum og er útlit fyrir að þátttaka í kosning- unum verði dræm. Ný ríkisstjórn stendur frammi fyrir mörgum erfiðum úrlausnar- efnum. Hækkandi orku- og vöru- verð er það sem kjósendur hafa mestar áhyggjur af en lítið hefur borið á lausnum í kosningabarátt- unni, hvort sem er frá vinstri eða hægri. Öfgahægrif lokkarnir þrír vilja taka hart á ólöglegum inn- flytjendum, lækka skatta og standa vörð um sjálfsmynd Ítala. „Það er erfitt að koma á augu á aðgerðir í kosningabaráttunni,“ segir Lorenzo Pregliasco hjá skoðanakannana- fyrirtækinu YouTrend. Þrátt fyrir að allt stefni í að Mel- oni, Salvini og Berlusconi myndi samsteypustjórn eru þau ekki samstíga í öllu. Eitt helsta ágrein- ingsmálið er innrásin í Úkraínu. Berlusconi, sem lengi hefur átt í góðum samskiptum við Vladímír Pútín Rússlandsforseta, og Salvini vilja endurskoða þátttöku Ítalíu í refsiaðgerðum gegn Rússlandi sökum áhrifa þeirra á ítalskan efna- hag og almenning. Meloni er yfir- lýstur stuðningsmaður Úkraínu og refsiaðgerða. „Stríðið í Úkraínu er toppurinn á ísjakanum í átökum í þeirri viðleitni að endurmóta heimsmyndina. Því verðum við að taka slaginn,“ sagði Meloni fyrr í mánuðinum. Berlusc- oni sagði sjálfur fyrir skömmu að Pútín hefði verið „ýtt“ út í stríð af rússneskri þjóð, f lokki sínum og yfirmönnum hersins. Giorgia Meloni er 45 ára gömul og fædd í Róm þar sem hún var alin upp af einstæðri móður. Hún hóf feril sinn í stjórnmálum árið 1992 er hún gekk til liðs við ungliðahreyf- ingu nýfasistaflokksins Movimento Sociale Italiano (MSI). Meloni varð síðar formaður stúdentahreyfingar hins hægrisinnaða Þjóðarbanda- lags, sem átti rætur sínar að rekja til MSI. Meloni var kosin á þing fyrir Þjóðarbandalagið árið 2006 og tveimur árum síðar skipaði Silvio Berlusconi, sem þá var forsætisráð- herra, hana ráðherra málefna ung- menna og gegndi Meloni embætti til ársins 2011. Hún var einn stofnenda Bræðra Ítalíu árið 2012 og varð leið- togi f lokksins tveimur árum síðar. Hún bauð sig fram án árangurs í Evrópuþingskosningum árið 2014 og sem borgarstjóraefni í Róm árið 2016. Meloni er að eigin sögn þjóðernis- sinni og andsnúin þungunarrofi, hinsegin fólki og innf lytjendum. Áður hefur Meloni sagt að komist hún til valda vilji hún endurskoða löggjöf um óvígða sambúð samkyn- hneigðra og er ekki hlynnt því að samkynhneigð pör fái að ættleiða börn. Í héruðum og borgum Ítalíu, þar sem flokkur hennar hefur verið við völd hefur aðgengi að þungunar- rofi og getnaðarvarnarpillum verði skert, þvert á landslög. Sjálf hefur Meloni sagt að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Marg- aret Thatcher séu meðal fyrirmynda hennar á íhaldsvæng stjórnmála en hún sé þó fyrst og fremst sín eigin kona. Stjarna Meloni hefur risið hratt á síðustu árum og hún öðlast mikla frægð meðal hægrimanna á heimsvísu. „Meloni, líkt og Marg- aret Thatcher, mun berjast og sigra,“ sagði Steve Bannon, sem eitt sinn var einn nánasti aðstoðarmaður Donalds Trump, fyrrverandi Banda- ríkjaforseta, við CNN fyrir stuttu en þau hafa átt náið samstarf. „Við erum stolt af því sem við stöndum fyrir. Við lifum á tímum þar sem allt sem við stöndum fyrir sætir árásum, réttindi okkar sæta árásum, fullveldi ríkja okkar sætir árásum, velmegun og velferð fjölskyldna okkar sæta árásum, menntun barna okkar sætir árásum. Frammi fyrir þessu skilur fólk að á þessum tímum er eina leiðin til að spyrna á móti sú að varðveita hver við erum, eina leiðin til að spyrna á móti er íhaldssemi,“ sagði Meloni á ráðstefnu hægrimanna í Bandaríkj- unum fyrr á árinu. n Allt stefnir í öfgahægristjórn á Ítalíu Matteo Salvini, Silvio Berlusconi og Giorgia Meloni vígreif á kosningafundi á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY bth@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGUR Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks, og Helgi Seljan blaðamaður á Stundinni, sem átti einn stærsta þáttinn í að afhjúpa mútumál Samherja í Namibíu, segja að Samherji hafi með kerfisbundn- um hætti reynt að brjóta blaða- menn niður til að þeir hætti við að fjalla með gagnrýnum hætti um störf fyrirtækisins. Hvorki Panama-skjölin, Water- gate né mörg önnur stærstu frétta- mál sögunnar hefðu komið fram ef blaðamenn og uppljóstrarar hefðu ekki haft það hugrekki sem þurfti til að fjalla um málin, að sögn Þóru. Einnig virðist sem lögreglan á Norðurlandi eystra sé með Samherja í liði. Þóra er einn fjögurra sakborn- inga í máli þar sem til rannsóknar er hvort blaðamennirnir hafi framið brot með umfjöllun um skæruliða- deild Samherja. Þóra segir að erfitt hafi verið að fá upplýsingar um sakarefnið, spurn- ingar lögreglu hafi í raun ekki snúist um brot á friðhelgi einkalífs, heldur hafi henni verið sýndar allar fréttir um skæruliðadeildina og hún spurð hvort hún hefði séð þær. Einnig hefði verið lesið upp úr tölvupóstum. „Mér fannst þetta hálfsúrrealískt,“ segir Þóra. „Ég var ekkert spurð hvort ég hefði séð einhver kynlífsmynd- bönd, eins og ég hélt að málið snerist um.“ Helgi segir sorglegt að „ógeðs- legar“ aðferðir Samherja til að brjóta niður trúverðugleika aðalvitnisins, Jóhannesar Stefánssonar, í mútumál- inu og fleiri atlögur gegn öðru fólki virðist hafa skilað nokkrum árangri. Eitt dæmi um það sé að umfjöllun um mál fyrirtækisins sé í engu sam- Skýrslutaka hjá lögreglu hálfsúrrealísk að sögn Þóru Helgi Seljan og Þóra Arnórsdóttir ræddu málin á Fréttavaktinni í gærkvöld á Hringbraut. Þau gagnrýna lögregluna á Akureyri og stjórnmálamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ræmi við alvöru málsins. Fólk sé fælt frá því að fjalla um risastórt spill- ingarmál sem tengist fyrirtækinu. Þá sé sorglegt að Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra standi í þrætum við blaðamenn á sama tíma og ráðherrar láti óáreitta rógsher- ferð fyrirtækisins, ekki síst gagnvart Jóhannesi. Stjórnmálamenn beri því við að ekki megi ræða málið þar sem það sé í höndum lögreglu. „Þegar hér er verið að reyna að koma í veg fyrir að uppljóstrarar beri vitni þá heyrist hvorki hósti né stuna frá þessu fólki. Það er alvarlegt,“ segir Helgi Seljan. Bæði Helgi og Þóra segja viðbrögð Samherja eftir spillingarmálið hafa komið þeim á óvart og að viðnámið við viðbrögðum Samherja virðist lítið sem ekkert hér á landi. „Það sem er sjokkerandi er við- bragðsleysið,“ segir Helgi. n 12 Fréttir 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.