Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 26
við á móti þér? Viltu ekki bara
koma með okkur, og ekki endilega
lýsa yfir neyðarástandi heldur skora
á Norðurlönd að skoða þetta? Meira
þannig,“ segir Björk.
Hún segir að einmitt þá hafi
Írland verið nýbúið að lýsa yfir
neyðarástandi. „Þannig að þetta
kom ekki bara úr loftinu,“ segir
Björk. „En það sem ég var ósátt við,
var það sem Kata gerði. Hún hefði
þá átt að texta mér: Frábært hjá
ykkur en ég og ríkisstjórnin erum
ekki komin þangað. Haldið þið
ykkar striki og ég held mínu striki.
Af því að hún var með ræðu þarna
í Sameinuðu þjóðunum,“ útskýrir
Björk. „Það sem hún gerir, er að hún
segir í textanum til mín: Heyrðu
þið getið bara aflýst ykkar blaða-
mannafundi, gerið þið það bara.
Þið þurfið ekkert að gagnrýna mig
af því að ég ætla að lýsa þessu yfir
hjá Sameinuðu þjóðunum.“
Konur ekki stikkfríar
Björk segist hafa samþykkt það. „Ég
var búin að undirbúa … það er alveg
pakki að undirbúa blaðamanna-
fund í New York. Allar þjóðir heims
voru þarna. Allir voru að bíða eftir
að Greta kæmi yfir Atlantshafið,“
segir hún. „Ég treysti henni og segi:
Ókei, ekkert mál. En svo heldur hún
ræðuna sína og þá lýsir hún þessu
ekkert yfir. Þá var mitt augnablik
farið. Þannig að mér fannst þetta
óheiðarlegt af henni.“
Björk hefði ekki gert athugasemd
ef Katrín hefði ákveðið frá upphafi
að segja ekkert. „Ef hún var bara í
erfiðri stöðu með sínu samstarfs-
fólki í sinni ríkisstjórn. En mér
finnst hún bara síðan ekki hafa
gert neitt. Mér fannst bara gott að
það kæmu fram þessar upphæðir.
Að ríkisstjórn væri að setja 500
milljónir árlega í að hjálpa kjötiðn-
aðarfólki eða eitthvað svona fárán-
legt, en 50 milljónir í umhverfismál.
Þetta er náttúrulega bara algjörlega
hlægilegt,“ segir hún. Björk bætir við
að 97 þjóðir hafi nú þegar lýst yfir
neyðarástandi. Á Norðurlöndunum
séu Ísland og Noregur einu þjóð-
irnar sem ekki hafi tekið skrefið.
Hún segir aðgerðina setja af stað
fjárveitingar í ákveðin viðbragðs-
kerfi sem búið er að þróa, á sama
hátt og í tilfelli heimsfaraldurs
kórónaveiru eða náttúruhamfara.
„Þetta er eitthvað sem ég og Greta
vorum búnar að líta í, og búnar
að tala við fólk á Íslandi. Hópar
sem ég er búin að vera að vinna
með í gegnum árin. Þetta er f ljót-
legasta aðferðin til að sinna öllum
þessum málum,“ segir Björk. „Þetta
er neyðarástand. Mér fannst mjög
leiðinlegt að þurfa að ráðast á konu
í forsætisráðherrastól, en mér finnst
líka mjög mikilvægt að þær séu ekki
bara stikkfríar.“
Engir dívustælar
Björk ítrekar ánægju með umræð-
una sem fór af stað í kjölfarið. „Ég
vildi samt koma á framfæri að það
væri smá misskilningur þarna. Þetta
var ekki bara ég að senda henni
texta: Settu neyðarlög, Kata! Eins
og ég væri með dívustæla. Þetta
var ekki þannig. En ég kansellaði
þessum blaðamannafundi sem ég
hefði annars ekki gert.“
#MeToo sem bókhaldsatriði
Björk hefur rætt nokkuð um stöðu
kvenna í tónlistarbransanum og
lýsti karlrembu innan senunnar
í frægu viðtali við Pitchfork-tón-
listarmiðilinn árið 2015. Aðspurð
hvort hún finni fyrir breytingu eftir
#MeToo-hreyfinguna og hugsan-
legu bakslagi í umræðunni, svarar
Björk:
„Maður er svolítið umkringdur
fólki sem hugsar eins og maður sjálf-
ur, sem er smá hættulegt stundum.
En ég held að þetta sé samt skref
áfram. Eftir #MeToo fór þetta í rosa
svart og hvítt. Annað hvort voru
menn skrímsli eða englar,“ segir
hún. „Önnur bylgjan var meira að
fara inn í þetta gráa svæði.“
Björk segist hafa rætt það með
vinkonum sínum hvernig #MeToo-
mál væru orðin að eins konar bók-
haldsatriði í dag. „Ef #MeToo-atriði
kemur upp á vinnustað þá er þetta
svona: Já, ókei. Hversu alvarlegt var
þetta? Einhver fjörutíu atriði sem
þarf að greina og vita hvernig á að
bregðast við. Ekki alltaf bregðast
eins við og ekki alltaf bara kansel
eða ekki kansel. Heldur er þetta
bara bókhaldsatriði,“ segir hún.
„Mér finnst mikilvægt að við
leyfum okkur að fara inn í þetta
gráa svæði af því að við getum ekki
sett alla karlmenn sem hafa gert
eitthvað á einhverja eyju og aldrei
talað við þá aftur,“ segir Björk. „Það
þarf að vera fyrirgefning og það
þarf að vera munur á brotunum.
En með aukinni ábyrgð erum við
öll að skilgreina þetta saman. Ég
vildi óska þess að ég gæti bara
hringt í #MeToo-lögguna og hún
myndi bara sjá um öll þessi mál. En
sá lúxus er ekki í boði. Við verðum
sjálf að setjast niður með kaffibolla
og leysa úr þessu, mál fyrir mál fyrir
mál. Og þannig þroskast saman
í rétta átt,“ segir hún. „Þannig að
stutta svarið er, í það heila er þetta
að fara í rétta átt. Það verður bakslag
þegar risaeðlan sveiflar halanum.
En á heildina séð er skipið að snúa
í rétta átt.“
Ekki sorgarplata um móðurmissi
Á nýju plötunni eru tvö lög sem
fjalla um móður Bjarkar, Hildi Rúnu
Hauksdóttur umhverfissinna og
aktívista, sem lést árið 2018.
„Ég fór í smá vörn þegar ég sá að
það hafði skolast til, þegar ég sá að
fólk heldur að þetta sé sorgarplata
um móðurmissi,“ segir Björk. „En
þetta eru bara tvö lög, það er ekki
öll platan. Þetta er eitthvað sem við
þurfum öll að gera í lífinu, að kveðja
foreldri. En mamma átti langt og
gott líf og mér finnst mikilvægt að
það sé í réttum ballans,“ segir hún.
Börn Bjarkar, Ísadóra Bjarkar-
dóttir Barney og Sindri Eldon, vinna
með móður sinni á plötunni, sitt í
hvoru laginu. „Sonur minn er búinn
að vera í hljómsveit síðan hann var
fjórtán ára og dóttir mín er alltaf að
syngja. Þau eru alltaf að bralla eitt-
hvað og skrifa,“ segir hún.
Hugsanlega haf i samstar f ið
með börnunum á plötunni orðið
til vegna Covid, og mikillar fjöl-
skyldusamveru í „jólakúlunni“.
Björk bætir við að það væri skrýtið
ef þau væru ekki á plötunni. „Þau
voru orðin hluti af þessum heimi.
Svo er þetta í fyrsta skipti sem þau
eru bæði orðin fullorðin. Ef ég spyr
þau, þá geta þau sagt já og þau vita
hvað það innifelur. Ekki bara tón-
listarlega séð, heldur mun fólk úti
á götu stoppa þau og þau þurfa að
tala um það. Það er svona pakki sem
fylgir því,“ segir hún. „Þegar fólk er
orðið tvítugt skilur það hvað kemur
með því. Þetta var ekkert útpælt en
kannski hef ég ómeðvitað gert þetta
svona, sem móðir.“
Björk bætir við að Sindri sonur
hennar hafi verið mjög tengdur
ömmu sinni. „Hann vildi líka gera
þetta sem greiða við hana og þakka
henni,“ segir hún.
Tíunda stúdíóplatan
Lögin tvö sem Björk samdi um
móður sína voru fyrstu lögin sem
hún samdi á plötunni. „Ég var við-
búin því að gefa þetta út sér,“ segir
hún. „Að þetta ætti kannski ekkert
heima inni á minni plötu. Svo inni
á milli, þegar ég var að gefa út hin
lögin, fór ég aftur að þessu. Með
laginu Sorrowful soil var þetta
svona meira blátt áfram, einfaldara,
það var eins og ljóð og auðveldara
að útsetja það,“ segir hún. „Með
Anchest ress vildi ég bæði setja öll
hljóðfæri í heiminum inn í það en
svo var ég alltaf að taka allt út aftur
af því að ég vildi hafa einfaldleika.
Ég er búin að henda rosalega miklu
út úr því lagi. Ég er rosalega ánægð
með hvar það endaði,“ segir Björk.
Hún minnist á verklag í fram-
haldinu. „Ég held að þar hafi ég bara
grætt á því hvað leið langur tími.
Maður vinnur í einhverju lagi og svo
gleymir maður því í nokkra mánuði
og fer að vinna í einhverjum öðrum
lögum,“ segir hún. „Svo kemur
maður að því aftur og vonandi fer að
vinna eitthvað aðeins í því, gleymir
því svo aftur í nokkra mánuði, skil-
urðu,“ segir Björk. Hún hefur í dag
sent frá sér níu stúdíóplötur og er
Fossora hin tíunda. Auk þess á hún
að baki þrjár samstarfsplötur og sjö
tónleikaplötur, auk tónlistarvinnu
fyrir kvikmyndir.
„Maður er alltaf með nokkra hluti
sem maður er að setja í salt og eftir
því sem maður verður eldri verður
maður betri í því að vita: já, þetta
þarf að vera í salti í einn mánuð,“
útskýrir Björk. „Þetta í eina viku.
Þetta í sex mánuði. Svo getur maður
tekið það aftur, þarf svo að láta það
í friði í þrjá mánuði. Þetta er svo að
maður sé með fersk eyru. Maður má
líka ekki ofvinna hugmyndir.“
Með stuðningi bróður síns
Bróðir Bjarkar heitir Arnar Sævars-
son, og eru systkinin sammæðra.
Björk segist hafa verið í samráði við
hann þegar hún vann að tónlistar-
myndbandi lagsins sem fjallaði um
móður þeirra. Myndband sem Björk
lýsir sem lítilli kvikmynd. Andrew
Thomas Huang leikstýrir mynd-
bandinu. Hann hefur unnið mikið
með Björk síðasta áratuginn og
segist Björk hafa treyst honum vel
fyrir verkefninu.
„Við fórum og tókum upp kvik-
mynd úti, í dal þar sem mamma
tíndi mikið plöntur og þurrkaði
síðan. Við horfðum síðan á þetta, ég
og bróðir minn. Við höfum vandað
okkur rosalega varðandi hverju
við viljum deila með heiminum og
hverju ekki. Ég reyndi að gefa bróð-
ur mínum alltaf tækifæri til að geta
sagt við mig: Nei, þetta er of mikið.
Að það væri alltaf tækifæri til þess,“
segir Björk.
„Hann studdi mig í þessu. Hann
sagði að mamma hefði örugglega
orðið mjög ánægð með þetta og
þakklát. Hún gerði líka plötu með
mér þegar ég var 11 ára og var drif-
fjöðrin í því,“ segir hún. „Þess vegna
var maður ekki eins feiminn. Það
var eitthvað sem byrjaði þar og
endaði, einhvers staðar þarna. Hún
var stílistinn á plötukóverinu mínu
þegar ég var ellefu ára. Hún bjó til
settið og fann búninginn. Þannig
að sú hlið á mér sem er opinber var
hliðin á mér sem mamma var mjög
sátt við,“ segir Björk.
Hún bendir á að ef móðir hennar
hefði verið mikill intróvert og ekki
líkað við þá hlið, þá hefði útkoman
orðið allt öðruvísi. „En bróðir minn
er búinn að sjá myndbandið og við
erum mjög ánægð með þetta.“ n
Björk segist
ekki hafa beðið
forsætisráð-
herra að setja
neyðarlög upp
úr þurru, og vill
skýra mál sitt í
því samhengi.
MYNDIR/
VIÐAR LOGi
Ég reyndi að gefa
bróður mínum alltaf
tækifæri til að geta sagt
við mig: Nei, þetta er of
mikið. Að það væri
alltaf tækifæri til þess.
Við getum
ekki sett
alla karl-
menn sem
hafa gert
eitthvað á
einhverja
eyju og
aldrei talað
við þá
aftur.
26 Helgin 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ