Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 28
Haukur Morthens var
skapmikill en ljúf-
menni í samstarfi, ég
kunni mjög vel við
hann.
Reynir Jónasson, harmon-
ikkuleikari og organisti,
fagnar níræðisafmæli á
morgun, sunnudag. Reynir er
ekki dæmigert gamalmenni
og þakkar daglegum sund-
ferðum og 10 daga viðkomu á
Vogi fyrir margt löngu, góða
heilsu sína.
Einn dáðasti hljóðfæraleik-
ari landsins fagnar níræð-
isafmæli. Hóf leik á orgel
og saxófón en harmon-
ikkan trompaði allt, jafn-
vel fyrirhugað dýralæknanám.
„Bara grænt te, takk,“ segir tón-
listarmaðurinn Reynir Jónasson og
brosir með visku hins aldna manns
þegar við hittumst á Mokka og spurt
er hvort höfðinginn vilji hressingu.
Hann þarf ekki drykk til að vera
hress. Afmælisfögnuður er fram
undan og þjóðin samfagnar með
tónlistarmanninum, enda hafa
Íslendingar notið hljóðfæraleiks
Reynis Jónassonar í um átta áratugi.
Reynir er ekki dæmigert gamal-
menni. „Gaurinn með taglið?“ sagði
ungur maður á Fréttablaðinu þegar
ég nefndi nafn Reynis á dögunum.
En Reynir er ekki bara gaur með tagl
heldur einnig virtúós í leðurjakka,
nýgenginn í f lokk sósíalista. Vinir
hans lýsa honum sem höfðingja og
ljúfmenni og sannarlega ögrar hann
staðalmyndum um eldri borgara.
Ekkert útvarp á æskuheimilinu
Reynir er Þingeyingur að uppruna.
Hann fæddist á Helgastöðum í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu,
faðir hans var kirkjuorganisti.
„Það var ekkert útvarp heima
þannig að aðalafþreyingin fólst í að
læra og spila á orgelið,“ segir Reynir
um fyrsta neistann.
Það leit út fyrir að Reynir færi
í dýralækningar að loknu stúd-
entsprófi. En listagyðjan sigraði
náttúruvísindin. Hann bjó utan
landsteinanna um skeið eftir stúd-
entspróf, sneri heim, bjó á Húsavík
í mörg ár og f lutti svo til Reykja-
víkur. Hann lék með danshljóm-
sveitum á Akureyri, Ingimar og
Finni Eydal, Hljómsveit Svavars
Gests í Sjálfstæðishúsinu við Aust-
urvöll, fór í langt tónleikaferðalag
með Hauki Morthens, vann plötu
með Bubba Morthens og hefur á
löngum köflum verið kórstjóri og
organisti í kirkjum.
„Ætli ég þakki það ekki dag-
legum sundferðum, ég syndi 400
metra hvern einasta morgun og
geng daglega úti,“ segir hann, þegar
ég nefni að hann komi vel undan
allri spilamennskunni.
„Svo skemmdi ekki fyrir þegar ég
fór inn á Vog árið 1990 í tíu daga,“
bætir hann við. „Hef ekki drukkið
dropa síðan.“
Reynir hefur spilað með svo
mörgum þekktum tónlistarmönn-
um í tímans rás að tæmandi listi
myndi þekja heila síðu. Svo nokkrir
séu nefndir erum við að tala um
Hauk Morthens, Ragga Bjarna,
Szymon Kuran og ótal f leiri snill-
inga. Með sumum spilaði hann ára-
tugum saman. Og oft hefur hann
verið fenginn út fyrir landsteinana
í hin og þessi gigg.
Orgelið næst hjartanu
Harmonikkan hefur borið tónlist-
argáfu Reynis merki í vel á sjöunda
áratug. Fyrsta hljóðfæranám hans
var þó á saxófón og Reynir segir
að sá skóli hafi nýst sér til að skilja
harmonikkuna síðar.
Hann blés ungur fyrst í lúðurinn
í Menntaskólanum á Akureyri eftir
að hafa spilað frá barnsaldri á orgel
heima hjá sér. Ferillinn síðan hefur
verið fjölbreyttur, blanda ólíkra
hljóðfæra, svo sem harmonikku,
píanós og orgels á böllum, tón-
leikum, við kennslu, skólastjórnun
og kirkjustarf, þar sem Reynir hefur
starfað bæði sem kórstjóri og organ-
isti.
„Ætli orgelið standi ekki næst
hjartanu,“ segir hann, þegar ég reyni
að fá hann til að gera upp á milli
barnanna sinna. Enda titlar Reynir
sig organista í skránni.
Og enn spilar hann opinberlega.
Sem dæmi er hann bókaður í gigg á
barnaskemmtun í jólaboði forseta-
embættisins eftir nokkra mánuði.
Þar hefur Reynir mætt með nikkuna
allar götur síðan 1984.
Eftir Reyni liggja margar hljóm-
plötur. Spurður um helstu áhrifa-
valda hvað nikkuna varðar nefnir
Reynir Braga Hlíðberg og Gretti
Björnsson. Þeir voru að hans sögn
á heimsmælikvarða. Við ræðum
ýmsar gengnar stjörnur sem enn
lifa þó í tónlist sinni.
„Haukur Morthens var skapmikill
en ljúfmenni í samstarfi, ég kunni
mjög vel við hann.“
Gert að hætta vegna aldurs
Reynir ber reyndar öllu samferða-
fólki sínu góða söguna. Hallar
ekki orði á nokkurn mann nema
kannski prestinn í Neskirkju, sem
sagði að vegna aldurs yrði hann að
hætta störfum á sama tíma og hann
hafði verið féflettur vegna óhappa-
tilviljunar, skrifaði upp á skulda-
bréf hjá óábyrgum einstaklingi.
Reynir nefnir sérstaklega náið
samband milli hans og Szymon
Kuran. Szymon var einleikari í Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og spilaði
um árabil með Reyni á veitinga-
stöðum. Hann svipti sig lífi eftir
langvinna baráttu við alvarlegt
þunglyndi.
„Við hittumst oft þegar honum
leið illa, sátum kannski lengi
saman og þögðum. Sögðum ekki
eitt einasta orð lengi. Stundum
þarf ekki annað en bara nærver-
una,“ segir Reynir, sem skilur kúnst
þagnarinnar í músíkinni.
Nú er hins vegar gleðistund fram
undan. Reynir er að fara að halda
afmælisveislu. Níræðisafmæli.
„Það verður opið hús á morgun,
25. september, í sal FíH frá klukkan
17-19. Allir eru velkomnir,“ segir
Reynir, hinn listræni öldungur. n
Níræður
virtúós með
tagl og nikku
Reynir hefur
marga fjöruna
sopið í tímans
rás og leikið
með mörgum af
þekktustu tón-
listarmönnum
sögunnar. Hann
þakkar sundi og
reglusemi hve
vel hann ber
aldurinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
28 Helgin 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ