Fréttablaðið - 24.09.2022, Side 35

Fréttablaðið - 24.09.2022, Side 35
Við viljum sjá fjölbreytileika í umhverfinu og að það sé tenging við sögu, menn- ingu og náttúru. Þetta eru atriði sem vísindin hafa sýnt með nokkuð skýrum hætti að virka. Páll Jakob Líndal Fyrsta Vísindakaffi vetrar- ins verður haldið næsta þriðjudag í Bókasamlaginu í Reykjavík. Markmið með Vísindakaffinu er að færa vísindin nær fólkinu og segja frá rannsóknum sem skipta máli fyrir daglegt líf. Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi þann 1. október en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðustu helgina í septem- ber, undir heitinu Researchers' Night. Dagana á undan og á eftir verður boðið til Vísindakaffis, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á lands- byggðinni, þar sem vísindafólk mun kynna viðfangsefni sín á óformlegan hátt í þægilegri kaffi- húsastemningu þar sem má spyrja vísindafólk spjörunum úr. Fyrsta Vísindakaffið verður haldið þriðjudaginn 27. september en þar mun Þórarinn Guðjónsson, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands, fjalla um stofn- frumur og krabbamein undir yfirskriftinni „Hvað viltu vita um frumurnar þínar?“. „Í spjallinu mínu ætla ég að ræða um frumur líkamans með áherslu á stofnfrumur ýmissa vefja og tengsl þeirra við sjúkdóma á borð við krabbamein. Stofnfrumu- rannsóknir verða æ mikilvægari í leitinni að lausnum við margvís- legum sjúkdómum. Stofnfrumur eru ósérhæfðar en hafa hæfni til að þroskast yfir í frumur með sér- staka virkni.“ Hann segir stofnfrumur geta fræðilega orðið að hvaða frumum sem er og endurnýjað sig án þess að sýna merki öldrunar. „Slíkar frumur eru því ákaflega mikil- vægur efniviður í rannsóknum en ekki síður í meðferð við hinum ýmsu sjúkdómum.“ Skoðaði hlutverk stofnfruma Þórarinn er með doktorsgráðu frá læknadeild Kaupmannahafnar- háskóla. „Í doktorsnáminu rann- sakaði ég hlutverk stofnfruma í formgerð eðlilegs brjóstkirtils og tengsl þessara fruma við brjósta- krabbamein. Ég byggði síðan upp rann- sóknahóp við læknadeild Háskóla Íslands þar sem ég hélt áfram að skoða hlutverk stofnfruma í vefjum líkamans með áherslu á brjóstkirtilinn og lungu. Við höfum þróað ýmis þrívíð frumu- ræktunarkerfi sem nýtast til rannsókna á vefjum líkamans og einnig á tilurð og þróun krabba- meina. Einnig notum við þessi frumuræktunarkerfi til að prófa ný krabbameinslyf.“ Fólk er þakklátt og spennt Hann segir Vísindakaffið og Vísindavökuna hafa mikið gildi fyrir bæði almenning og háskóla- samfélagið. „Við vísindamenn framkvæmum rannsóknir okkar fyrir opinbert fé sem við fáum í gegnum samkeppnissjóði. Okkur ber skylda til að segja almenningi frá rannsóknum okkar og gera það á þann hátt að almenningur skilji hvað við erum að tala um. Það er ótrúlega margt spennandi að ger- ast í rannsóknum sem almenningi finnst áhugavert að heyra um. Um leið er mjög mikilvægt að háskóla- samfélagið miðli vísindum sem unnin eru innan veggja skólanna. Þegar við gerum það þá finnur maður fljótt hvað fólk er þakklátt og spennt yfir því sem er að gerast í rannsóknum hérlendis.“ Vísindakaffi einnig á landsbyggðinni Boðið verður upp á þrjú Vísinda- kaffi í Bókasamlaginu í Reykjavík og á sex stöðum á landsbyggðinni. Fyrsta Vísindakaffið verður þriðju- daginn 27. september í Bókasam- laginu, Skipholti 19 í Reykjavík, og stendur yfir frá kl. 20-21.30. Kaffi- stjóri er Sævar Helgi Bragason. n Nánari upplýsingar á visindavaka. is/visindakaffi Fróðleikur um frumurnar Þórarinn Guð- jónsson, pró- fessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands, flytur erindi á fyrsta Vísinda- kaffi vetrarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Það ríkir notaleg kaffihúsastemning á Vísindakaffinu. Mynd/RAnnís Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, ætlar að stíga á stokk í Vísindakaffi miðvikudaginn 28. septem- ber klukkan 20. Þar ætlar hann að fjalla um sálfræði- leg áhrif umhverfis á heilsu og vellíðan. Páll Jakob skoðar hvernig samspil umhverfis og fólks er og hvaða áhrif byggt umhverfi hefur á heilsu og líðan almennings, en sam- kvæmt Páli vantar vísindalega nálgun á sviði sálfræði við hönnun og skipulag húsa og hverfa. „Yfirskriftin er: Hvers konar þéttbýli viljum við? Ég ætla að fara í stuttu máli yfir hvers konar þétt umhverfi virkar hvað best fyrir okkur. Þótt ég sé ekki mikill aðdáandi þess að gefa einhverjar þumalputtareglur í þessum efnum að þá er það nú samt þannig að þegar við erum að horfa á þéttbýli þá sýna niðurstöður rannsókna að manneskjulegur skali er það sem við viljum sjá. Við viljum sjá fjölbreytileika í umhverfinu og að það sé tenging við sögu, menningu og náttúru. Þetta eru atriði sem vísindin hafa sýnt með nokkuð skýrum hætti að virka. Þetta eru útgangspunktarnir sem ég tala út frá í þessu tilviki,“ segir Páll Jakob. Vísindaleg nálgun á samspil fólks og umhverfis „Mín orðræða almennt er sú að við tökum vísindalega nálgun á þetta samspil fólks og umhverfis. Hvern- ig við erum að upplifa umhverfið og hvaða áhrif umhverfið hefur á okkur. Við eigum að hætta að tala um þessi mál á þeim grunni að þetta sé bara smekkur, að þinn smekkur sé ekkert merkilegri Viljum sjá fjölbreytileika í umhverfinu Páll Jakob Líndal ætlar að fjalla um sálfræðileg áhrif umhverfis á heilsu og vel- líðan. FRÉTTABLAÐId/ VALLI en minn eða öfugt. Vissulega er smekkurinn ólíkur. Ég er ekki að gera lítið úr því en málið er að það er svo miklu meira sem sam- einar okkur en sundrar þegar við erum að horfa á upplifun okkar á umhverfinu. Við erum miklu líkari en við höldum að við séum. Niður- stöður rannsókna sýna ákveðnar tilhneigingar í hinar og þessar áttir og við þurfum að sigta þær út úr vísindalegum gögnum sem hefur verið safnað upp með kerfis- bundnum hætti. Á því stigi sem ég er að tala um er það nánast óþekkt á Íslandi og niðurstaðan er að við fáum umhverfi sem mætir ekki þörfum okkar sem manneskjum. Við erum með mjög umdeild verkefni í gangi, umdeilda stefnu, umdeilda uppbyggingu og við erum með umhverfi sem er ekki að virka. Ég tek Hjartagarðinn oft sem dæmi. Í sumar stígur borgar- fulltrúinn Hjálmar Sveinsson fram og segir að Hjartagarðurinn sé ekki að virka, en í upphafi þeirrar veg- ferðar var sagt að hann ætti að vera á barmi suðupunkts mannlífs,“ segir Páll. Páll segir að fulltrúar náttúr- unnar, svo sem blóm, tré, vatn og gras, séu mjög mikilvægur hluti af okkar byggða umhverfi. „Það er svo mikilvægt að hafa þetta. Alveg frá upphafi borgar- menningar fyrir tíu þúsund árum þá hafa þessi „element“ alltaf verið tekin með inn vegna þess að við höfum svo sterka þörf fyrir tengsl við náttúruna. Sumir ganga svo langt að segja að þörfin sé meðfædd og því harð- víruð í okkur. Þess vegna megum við ekki taka þetta út úr hinu byggða umhverfi og líta á þetta sem ein- hverjar afgangsstærðir eins og oft er gert. Þetta eru hlutirnir sem eru fyrstir að hverfa í upp- byggingunni. Náttúran og fulltrúar hennar hafa góð áhrif á líðan fólks. Fjöl- margar rannsóknir sem byggjast á mati fólks á eigin líðan, mælingum á hugrænni hæfni þess og líf- eðlisfræðilegum viðbrögðum, svo eitthvað sé nefnt, styðja það,“ segir Páll Jakob og bætir við að veður sé klárlega hlutur sem verður að taka miklu alvarlegar. „Við þurfum ekki annað en að horfa á Höfðaborgarturninn og Hafnartorgið. Á þessum stöðum er næðingur og getur orðið mjög vindasamt. Svo er búið að vera að tala um birtuna og mikilvægi hennar. Við þurfum að horfa miklu betur á góðu svæðin og læra af þeim. Sem dæmi er Austurvöllur gott svæði en það er líka vegna þess að þar er skjólríkt, sól- ríkt, þar er saga og menning, góð hlutföll og að mörgu leyti ágætur arkitektúr.“ n kynningarblað 3LAUGARDAGUR 24. september 2022 VísindaVak a r annís
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.