Fréttablaðið - 24.09.2022, Síða 36
Fyrirtækið hefur
það að leiðarljósi
að fullnýta auðlinda-
strauma úr iðrum jarðar
frá nærliggjandi jarð-
varmaveri til að skapa
verðmæti sem koma
fram í upplifun gesta
Bláa Lónsins sem og í
framleiðslu á húðvörum.
Fannar Jónsson
Bláa Lónið á 30 ára sögu sem
nýsköpunarfyrirtæki og
byggir á vísindum og sjálf-
bærni. Markmið Bláa Lóns-
ins er að geta boðið upp á
einstakar vörur og þjónustu
með því að fullnýta náttúru-
lega auðlindastrauma á sjálf-
bæran hátt, viðskiptavinum
og samfélaginu til hagsbóta.
„Fyrirtækið hefur það að leiðar-
ljósi að fullnýta auðlindastrauma
úr iðrum jarðar frá nærliggjandi
jarðvarmaveri til að skapa verð-
mæti sem koma fram í upplifun
gesta Bláa Lónsins sem og í fram-
leiðslu á húðvörum. Allur rekstur
fyrirtækisins er þannig samofinn
fjölnýtingu þessara dýrmætu
strauma og er einstakt dæmi um
fjölnýtingu endurnýjanlegrar
jarðvarmaauðlindar og sjálfbæra
þróun,“ segir Fannar Jónsson,
umhverfis- og gæðastjóri Bláa
Lónsins.
Bláa Lónið hefur byggt upp
rannsókna- og þróunarsetur á
athafnasvæði sínu í Svartsengi
þar sem fram fer framleiðsla á líf-
virkum efnum úr jarðsjónum til
notkunar í húðvörur fyrirtækisins.
Sjálfbær nýting auðlindarinnar
byggist á hringrásarhagkerfi,
svokölluðum visthring jarðsjávar,
(geothermal ecocycle), þar sem
Bláa Lónið nýtir jarðsjó, gufu og
koltvísýring (CO2) sem fellur til
við framleiðslu á grænni jarð-
varmaorku, sem er einnig nýtt í
reksturinn.
Nýjar uppgötvanir og einkaleyfi
„Áhersla á öflugt rannsóknastarf
hefur einkennt starfsemi Bláa
Lónsins allt frá upphafi, eða í 30
ár og er fjöldi vísindagreina, sem
birtar hafa verið í viðurkenndum
vísindatímaritum, sem og einka-
leyfi fyrirtækisins, góður vitnis-
burður um það. Bláa Lónið hefur
átt í samstarfi við vísindamenn
hérlendis og erlendis, og farsælt
samstarf við háskólasamfélagið á
sviði rannsókna og þróunar. Sem
dæmi um rannsóknir má nefna
rannsóknir á lækningamætti
jarðsjávarins á psoriasis, áhrif
innihaldsefna jarðsjávar-
ins á húð og rannsóknir á
vistkerfi lónsins,“ segir Ása
Brynjólfsdóttir rannsókna-
og þróunarstjóri Bláa
Lónsins.
„Klínískar rann-
sóknir á áhrifum
þess að baða sig í
lóninu á psoriasis leiddu í
ljós að jarðsjór Bláa Lónsins
hefur einstaka virkni á húðina.
Niðurstöður þessara rannsókna
voru grunnurinn að því að Bláa
Lónið hóf rekstur Lækningalindar
árið 1994 en þar er enn í dag boðið
upp á náttúrulega meðferð fyrir
psoriasissjúklinga. Í kjölfarið voru
gerðar ýtarlegar rannsóknir á
vistkerfi lónsins og lífvirkni kísils
og örþörunga á húð. Niðurstöður
þessara rannsókna leiddu í ljós að
jarðsjór Bláa Lónsins er einstakur
á heimsvísu hvað varðar efnasam-
setningu og lífkerfi örþörunga og
var jarðsjórinn útnefndur sem eitt
af 25 undrum veraldar af National
Geographic árið 2012,“ segir Ása.
Húðvörur byggðar á virkum
efnum úr jarðsjó Bláa Lónsins
„Húðvörur Bláa Lónsins byggja á
jarðsjónum og virkum innihalds-
efnum hans og eru rannsóknir
á þeim forsenda vöruþróunar,“
segir Ása. BL+ húðvörulínan kom
á markað 2021 og inniheldur BL+
COMPLEX sem er afrakstur 30 ára
rannsóknarvinnu á jarðsjónum og
nýtir einkaleyfi þess á lífvirkum
örþörungum og kísil sem finnast
í honum. BL+ COMPLEX vinnur
gegn öldrun húðarinnar með
því að vernda kollagenbirgðir,
örva nýmyndun kollagens og
styrkja náttúrulegt varnarlag
hennar.
Fyrstu BL+ vörurnar, BL+
The Serum og BL+ Eye Serum
eru vottaðar COS-
MOS NATURAL
af hinum virta
alþjóðlega
úttektaraðila
ECOCERT. COSMOS
(COSMetic Organic
and natural Standard) er
snyrtivörustaðall með ríka
áherslu á umhverfisvernd í fram-
leiðsluháttum snyrtivara með
áherslu á ábyrga nýtingu auð-
linda m.t.t. fjölbreytileika lífs (e.
biodiversity) og gæði hráefna með
velferð neytenda og umhverfis
að leiðarljósi. Bláa Lónið fram-
leiðir COSMOS APPROVED hrá-
efni í allar sínar húðvörulínur sem
seldar eru um allan heim.
Vörurnar hafa hlotið frábærar
viðtökur bæði innanlands og á
erlendum mörkuðum. Fyrstu
vörurnar, BL+ The Serum og BL+
Eye Serum, hafa þegar hlotið
fjölda viðurkenninga og nýverið
var BL+ Eye Serum valið sem besta
augnvaran 2022 hjá Allure í f lokki
„CLEAN BEAUTY“. Nú á dögunum
var kynnt til leiks þriðja varan í
línunni, BL+ The Cream, sem þegar
hefur hlotið góðar viðtökur. n
Rannsóknir og nýsköpun
í þrjátíu ár
Ása og Fannar hafa í mörg horn að líta hjá Bláa Lóninu sem á 30 ára sögu sem nýsköpunarfyrirtæki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 kynningarblað 24. september 2022 LAUGARDAGURVÍSINDAVAK A R ANNÍS
öll
velkomin!
Þriðjudag 27. september
Hvað viltu vita um frumurnar þínar?
Þórarinn Guðjónsson prófessor og forseti læknadeildar
Háskóla Íslands fjallar um stofnfrumur og krabbamein.
Stofnfrumurannsóknir verða æ mikilvægari í leitinni að lausnum
við margvíslegum sjúkdómum. Stofnfrumur eru ósérhæfðar
en hafa hæfni til að þroskast yfir í frumur með sérstaka virkni.
Þær geta því fræðilega orðið að hvaða frumum sem er og
endurnýjað sig án þess að sýna merki öldrunar. Slíkar frumur
eru því ákaflega mikilvægur efniviður í rannsóknum en ekki
síður í meðferð við hinum ýmsu sjúkdómun.
Miðvikudag 28. september
Orkan og gleðin í umhverfinu okkar - hvers
konar þéttbýli viljum við?
Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði fjallar um
sálfræðileg áhrif umhverfis á heilsu og vellíðan.
Hvernig er samspil umhverfis og fólks og hvaða áhrif hefur
náttúra og byggt umhverfi á heilsu og líðan almennings? Hvernig
getum við notað vísindalega nálgun á sviði sálfræði við skipulag,
hönnun húsa og hverfa til að tryggja að þetta samspil virki?
Fimmtudag 29. september
Viltu smakka? Hvernig bragðast?
Aðalheiður Ólafsdóttir skynmatsstjóri hjá Matís fjallar um
skynfærin, skynmat, matarupplifun og gæðamat.
Gestir á Vísindakaffi geta fræðst um hvernig skynmat virkar,
en í skynmati eru skynfæri mannsins, þ.e. sjón-, lyktar-, bragð-,
heyrnar- og snertiskyn notuð til að meta gæði matvæla.
Skynmat í íslenskum matvælaiðnaði er stór þáttur í gæðaeftirliti
í fiskiðnaði, kjötvinnslu og mjólkuriðnaði.
l Hólmavík
Gömlu húsin á Hólmavík og heildarmynd þorpsins
Fimmtudagur 29. september kl. 18:00
l Þingeyjarsveit
Svartárkot menning - náttúra og Stofnun
rannsóknasetra HÍ
Málþing. Föstudag 30. september kl. 10:00
og laugardag 1. október kl. 09:30
l Höfn
Fræðsludagskrá í tilefni Vísindavöku 2022
Laugardag 1. október kl. 14:00-16:00
l Þingeyri
Ferðir fiskanna – rannsóknir í Dýrafirði
Mánudag 3. október kl. 17:00-18:00
l Vestmannaeyjar
Whales of Vestmannaeyjar
Mánudag 3. október kl. 16:30-19:00
l Breiðdalsvík
Borkjarnar – Skyggnst undir yfirborðið
Þriðjudag 4. október kl. 20:00-21:30
Rannís býður upp á Vísindakaffi þar sem vísindafólk
kynnir viðfangsefni sín á óformlegan hátt í þægilegri
kaffihúsastemningu. Markmiðið er að færa vísindin nær fólki
og segja frá rannsóknum sem skipta máli fyrir daglegt líf.
Vísindakaffi Rannís
Bókasamlaginu
skipholti 19
vísindakaffi
Á landsbyggðinni:
27.-29. september
kl. 20:00-21:30