Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 53
Hlutverk Veðurstofu Íslands er að stuðla að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart
öflum náttúrunnar, jafnframt því að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega
hagkvæmni. Því hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á
öflun, varðveislu og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Á Veðurstofunni starfa um 140 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg
fræðasvið. Auk þess starfar fjöldi fólks við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið.
Nánari upplýsingar um Veðurstofu Íslands má finna á vedur.isGildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki,
framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni
taka mið af þessum gildum.
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir leiðtogum í störf framkvæmdastjóra þriggja nýrra sviða
Sviðin þrjú eru hluti af breyttu skipulagi Veðurstofunnar þar sem til verða tvö ný kjarnasvið, annars vegar athugana- og upplýsingatæknisvið
og hins vegar þjónustu- og rannsóknarsvið. Að auki verður til stoðsvið fjármála og reksturs.
Allt ytra umhverfi Veðurstofunnar einkennist af vaxandi áskorunum, allt frá tækniþróun og kröfum samfélagsins um aukna þjónustu til
áskorana vegna loftslagsbreytinga. Með nýju skipulagi verður Veðurstofan betur í stakk búin til að takast á við þessar áskoranir.
Um er að ræða þrjár nýjar stöður framkvæmdastjóra sem bjóða upp á spennandi og krefjandi verkefni í að efla þjónustu við samfélagið og
byggja upp hátækniumhverfi þar sem viðfangsefnið er síbreytileg náttúra Íslands.
FRAMKVÆMDASTJÓRI ÞJÓNUSTU- OG RANNSÓKNARSVIÐS
Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi og er framhaldsmenntun
nauðsynleg. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka og farsæla stjórnunarreynslu og
reynslu af stefnumótun, áætlunargerð, verkstýringu og innleiðingu breytinga.
Gerð er krafa um framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að ná árangri í
samvinnu við stjórnvöld og hagaðila og þvert á starfseiningar stofununarinnar.
HLUTI AF MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUM
Á þjónustu- og rannsóknarsviði eru þekkingaröflun, rannsóknir, veðurþjónusta,
spár, náttúruvárvöktun og miðlun upplýsinga samþætt á einu sviði. Nýr
framkvæmdastjóri mun leiða vinnu við mótun þjónustustefnu Veðurstofunnar
og innleiðingu hennar. Framkvæmdastjórinn ber m.a. ábyrgð á forgangsröðun
verkefna og samþættingu verkefnavinnu sviðsins ásamt því að bera heildar
ábyrgð á því að Veðurstofan sinni lögbundinni og samningsbundinni þjónustu
og rannsóknum. Er jafnframt fulltrúi Veðurstofunnar í erlendu samstarfi og
samvinnu er víkur að þjónustu og rannsóknum.
FRAMKVÆMDASTJÓRI ATHUGANA- OG UPPLÝSINGATÆKNISVIÐS
Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi og er framhaldsmenntun
æskileg. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka og farsæla stjórnunarreynslu og
haldgóða reynslu af breytingarstjórnun. Gerð er krafa um farsæla reynslu af
stefnumótun, áætlunargerð, verkstýringu og innleiðingu breytinga. Viðkomandi
þarf að hafa haldgóða innsýn í tækniumhverfi og þau tækifæri og áskoranir sem
tengjast fjórðu iðnbyltingunni.
HLUTI AF MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUM
Á nýju sviði er verið að samþætta gagnasöfnun Veðurstofunnar, rekstur
á mælitækjum og búnaði sem staðsettur er víða um land, rekstur og
viðhald upplýsingatækniinnviða og rekstur og þróun á upplýsingatækni.
Hlutverk framkvæmdastjóra athugana- og upplýsingatæknisviðs er að leiða
uppbyggingu, þróun og rekstur tækniinnviða og ber hann ábyrgð á að tryggja
virkni og viðhald tækniinnviða þannig að þeir uppfylli innri og ytri þarfir og
kröfur um öryggi. Er jafnframt fulltrúi Veðurstofunnar í erlendu samstarfi og
samvinnu er víkur að innviðum.
FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLA- OG REKSTRARSVIÐS
Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi og er framhaldsmenntun
æskileg. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka og farsæla stjórnunarreynslu og
reynslu af stefnumótun, áætlunargerð, verkstýringu og innleiðingu breytinga.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af umsjón með fjármálum, ferli áætlanagerðar
og eftirfylgni. Gerð er krafa um framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til
að ná árangri í samvinnu við stjórnvöld og hagaðila og þvert á starfseiningar
stofununarinnar.
HLUTI AF MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUM
Fjármála- og rekstrarsvið er nýtt stoðsvið sem sinnir verkefnum á sviði fjármála,
reksturs fasteigna, notendaþjónustu tölvumála, skjalamála og margs konar innri
þjónustu fyrir starfsmenn. Nýr framkvæmdastjóri gegnir veigamiklu hlutverki
við að leiða stofnunina inn í nútímalegri umgjörð fyrir verkefna-, rekstrar- og
fjárfestingaráætlanir í stofnunarinnar og skapa skilvirkt umhverfi fyrir aðra
stjórnendur sem hafa rekstrarlega ábyrgð innan Veðurstofunnar.
ÖFLUGIR LEIÐTOGAR FYRIR ÞRJÚ NÝ SVIÐ
Umsóknir eru fylltar út á heimasíðu Hagvangs, hagvangur.is,
en þar eru jafnframt nánari upplýsingar um störfin. Tengiliðir
eru Inga S. Arnardóttir (inga@hagvangur)
og Geirlaug Jóhannsdóttir (geirlaug@hagvangur.is).
Umsóknarfrestur er til og með 3. október, nk.