Fréttablaðið - 24.09.2022, Page 58
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna
Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7 / 105 Reykjavík
Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is
Í samræmi við reglur um ráðstöfun greiðslna frá Inn-
heimtumiðstöð rétthafa – IHM auglýsir Hagþenkir, félag
höfunda fræðirita og kennslugagna eftir umsóknum
handritshöfunda fræðslu- og heimildamynda, óháð
félagsaðild. Umsóknar- og skráningarfrestur er til
12. október kl. 15:00.
Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og
heimildarmynda fyrir árið 2021
Handritshöfundar að fræðslu- og heimildamyndum,
sem sýndar hafa verið í línulegri dagskrá ber að skrá sig
og sýnd verk sín í rétthafagátt á heimasíðu Hagþenkis.
Skráning í rétthafagáttina er ótímabundin en rétthöfum
ber að tilkynna skrifstofu Hagþenkis um ný verk og þau
sem voru endursýnd árið 2021. Rétthöfum ber einnig
að tilkynna breytingar á heimilisfangi, netfangi, banka-
reikningi og hlutfallsskiptingu í nýjum verkum ef það á
við. Greitt skal eftir flutningstíma í mínútum á grundvelli
upplýsinga frá viðkomandi ljósvakamiðlum / stofnunum.
Til úthlutunar eru 4.500.000 kr.
Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og
heimildamynda fyrir árið 2020
Þeir handritshöfundar sem sannarlega áttu sýnt eða
sýnd verk árið 2020 en fengu ekki rétthafagreiðslu frá
Hagþenki, er bent á að hafa samband við skrifstofu
Hagþenkis og sækja um í svokallaðan 3 % - sjóð.
Handritsstyrkir til höfunda fræðslu- og heimildamynda *
Til úthlutunar eru 1.500.000 kr.
Ferða- og menntunarstyrkir fyrir handritshöfunda
fræðslu- og heimildamynda farnar á árinu 2021*
Til úthlutunar eru 500.000 kr.
* Þar sem ómerkt fé barst frá IHM
Nánari upplýsingar, úthlutunarreglur og umsóknareyðu-
blöð eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is
Umsækjendur sækja um á vef Hagþenkis - Mínar síður,
sem eru efst til hægri.
GEÐHEILSUTEYMI HSS
Í REYKJANESBÆ – LEIGUHÚSNÆÐI
220920 Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs
óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir Geðheilsuteymi
HSS. Miðað er við skammtímaleigu til 5 ára, fullbúið til
notkunar, án lauss búnaðar.
Staðsetning húsnæðis skiptir miklu máli, þ.e. að húsnæðið
sé miðlægt í þjónustusvæði og í nálægð við helstu stofn-
brautir og almenningssamgöngur.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 460 fermetrar.
Æskilegt er að það sé á einni hæð.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður
að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is
mánudaginn, 26. september 2022.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit
til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá
fyrirhugaðri starfsemi, öryggi, afhendingatíma, staðsetn-
ingu, aðkomu og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefnið Geðheilsuteymi HSS
skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 30. september 2022
en svarfrestur er til og með 5. október 2022.
Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is,
eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 27. október 2022.
Merkja skal tilboðin; nr. 220920 – Geðheilsuteymi
- Leiguhúsnæði.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin
lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr. a. lið 1. mgr.
11. gr.
kopavogur.is
Auglýsing um breytt aðalskipulag.
Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.
Í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með vakin athygli á afgreiðslu bæjarstjórnar
Kópavogs á tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir leikskólalóð við Skólatröð
(S-6).
Bæjarstjórn samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 13. september 2022 með tilvísun í 2. mgr. 36. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010.
Í breytingunni felst minniháttar lagfæring á afmörkun á landnotkunarreitum þ.e. reitur fyrir leikskóla/samfélags-
þjónustu, S-6, verður stækkaður til samræmis við lóðamörk enda hefur lóðin verið nýtt þannig um langa hríð.
Breytingin verður send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Nánari upplýsingar um ofangreinda breytingu er hægt að nálgast hjá skipulagsdeild Umhverfissviðs Kópavogs-
bæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl.
8:00 til 13:00.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
Auglýsing í skipulagstillagna
vegna fiskeldis í Vestmannaeyjum
Viðlagafjara, tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035, tillaga að deiliskipulagi
og umhverfismat áætlana.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi
Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti þann 27. júlí 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja
2015-2035 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan felur í sér að skilgreina nýtt iðnaðarsvæði í Viðlagafjöru með auðkenni I3, sem fellur að mestu innan núverandi
efnistöku- og efnislosunarsvæðis (E1).
Breytingin styður við meginmarkmið aðalskipulags Vestmannaeyja um öflugt atvinnusvæði þar sem sjávarútvegur er
meginstoðin og er í samræmi við markmið um svæði fyrir fiskeldi á landi.
Tillaga að nýju deiliskipulagi vegna fiskeldis í Viðlagafjöru.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 15. september 2022 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir fiskeldi
í Viðlagafjöru í samræmi við 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir tveimur lóðum fyrir fiskeldi og svæði þar sem áfram verður sandvinnsla og efnis-
tökusvæði. Gerð er grein fyrir aðkomuleiðum og helstu mannvirkjum ofanjarðar svo sem fiskeldistönkum, þjónustuhúsum,
frágangi lóðar og ásýnd mannvirkja.
Skipulagsgögn
Skipulagsgögn, þ.á.m. umhverfismatsskýrsla skv. lögum um umhverfismat áætlana og framkvæmda nr. 111/2021,
sem er sameiginleg fyrir báðar tillögurnar, liggja frammi í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5,
frá og með 21. september til og með 1. nóvember 2022 og þau má einnig finna í skipulagsgátt á vef sveitarfélagsins
(http://vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/skipulagsmal-i-kynningarferli).
Aðilar sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér gögnin. Athugasemdum við tillöguna þarf að skila
skriflega eigi síðar en 1. nóvember 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5 eða á netfangið
dagny@vestmannaeyjar.is.
22 ATVINNUBLAÐIÐ 24. september 2022 LAUGARDAGUR