Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 58
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7 / 105 Reykjavík Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is Í samræmi við reglur um ráðstöfun greiðslna frá Inn- heimtumiðstöð rétthafa – IHM auglýsir Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna eftir umsóknum handritshöfunda fræðslu- og heimildamynda, óháð félagsaðild. Umsóknar- og skráningarfrestur er til 12. október kl. 15:00. Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og heimildarmynda fyrir árið 2021 Handritshöfundar að fræðslu- og heimildamyndum, sem sýndar hafa verið í línulegri dagskrá ber að skrá sig og sýnd verk sín í rétthafagátt á heimasíðu Hagþenkis. Skráning í rétthafagáttina er ótímabundin en rétthöfum ber að tilkynna skrifstofu Hagþenkis um ný verk og þau sem voru endursýnd árið 2021. Rétthöfum ber einnig að tilkynna breytingar á heimilisfangi, netfangi, banka- reikningi og hlutfallsskiptingu í nýjum verkum ef það á við. Greitt skal eftir flutningstíma í mínútum á grundvelli upplýsinga frá viðkomandi ljósvakamiðlum / stofnunum. Til úthlutunar eru 4.500.000 kr. Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og heimildamynda fyrir árið 2020 Þeir handritshöfundar sem sannarlega áttu sýnt eða sýnd verk árið 2020 en fengu ekki rétthafagreiðslu frá Hagþenki, er bent á að hafa samband við skrifstofu Hagþenkis og sækja um í svokallaðan 3 % - sjóð. Handritsstyrkir til höfunda fræðslu- og heimildamynda * Til úthlutunar eru 1.500.000 kr. Ferða- og menntunarstyrkir fyrir handritshöfunda fræðslu- og heimildamynda farnar á árinu 2021* Til úthlutunar eru 500.000 kr. * Þar sem ómerkt fé barst frá IHM Nánari upplýsingar, úthlutunarreglur og umsóknareyðu- blöð eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is Umsækjendur sækja um á vef Hagþenkis - Mínar síður, sem eru efst til hægri. GEÐHEILSUTEYMI HSS Í REYKJANESBÆ – LEIGUHÚSNÆÐI 220920 Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir Geðheilsuteymi HSS. Miðað er við skammtímaleigu til 5 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Staðsetning húsnæðis skiptir miklu máli, þ.e. að húsnæðið sé miðlægt í þjónustusvæði og í nálægð við helstu stofn- brautir og almenningssamgöngur. Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 460 fermetrar. Æskilegt er að það sé á einni hæð. Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is mánudaginn, 26. september 2022. Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggi, afhendingatíma, staðsetn- ingu, aðkomu og bílastæðum. Fyrirspurnir varðandi verkefnið Geðheilsuteymi HSS skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is. Fyrirspurnarfrestur rennur út 30. september 2022 en svarfrestur er til og með 5. október 2022. Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 27. október 2022. Merkja skal tilboðin; nr. 220920 – Geðheilsuteymi - Leiguhúsnæði. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr. kopavogur.is Auglýsing um breytt aðalskipulag. Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með vakin athygli á afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs á tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir leikskólalóð við Skólatröð (S-6). Bæjarstjórn samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 13. september 2022 með tilvísun í 2. mgr. 36. gr. skipulags- laga nr. 123/2010. Í breytingunni felst minniháttar lagfæring á afmörkun á landnotkunarreitum þ.e. reitur fyrir leikskóla/samfélags- þjónustu, S-6, verður stækkaður til samræmis við lóðamörk enda hefur lóðin verið nýtt þannig um langa hríð. Breytingin verður send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Nánari upplýsingar um ofangreinda breytingu er hægt að nálgast hjá skipulagsdeild Umhverfissviðs Kópavogs- bæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl. 8:00 til 13:00. Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi. Auglýsing í skipulagstillagna vegna fiskeldis í Vestmannaeyjum Viðlagafjara, tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035, tillaga að deiliskipulagi og umhverfismat áætlana. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti þann 27. júlí 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan felur í sér að skilgreina nýtt iðnaðarsvæði í Viðlagafjöru með auðkenni I3, sem fellur að mestu innan núverandi efnistöku- og efnislosunarsvæðis (E1). Breytingin styður við meginmarkmið aðalskipulags Vestmannaeyja um öflugt atvinnusvæði þar sem sjávarútvegur er meginstoðin og er í samræmi við markmið um svæði fyrir fiskeldi á landi. Tillaga að nýju deiliskipulagi vegna fiskeldis í Viðlagafjöru. Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 15. september 2022 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir fiskeldi í Viðlagafjöru í samræmi við 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir tveimur lóðum fyrir fiskeldi og svæði þar sem áfram verður sandvinnsla og efnis- tökusvæði. Gerð er grein fyrir aðkomuleiðum og helstu mannvirkjum ofanjarðar svo sem fiskeldistönkum, þjónustuhúsum, frágangi lóðar og ásýnd mannvirkja. Skipulagsgögn Skipulagsgögn, þ.á.m. umhverfismatsskýrsla skv. lögum um umhverfismat áætlana og framkvæmda nr. 111/2021, sem er sameiginleg fyrir báðar tillögurnar, liggja frammi í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5, frá og með 21. september til og með 1. nóvember 2022 og þau má einnig finna í skipulagsgátt á vef sveitarfélagsins (http://vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/skipulagsmal-i-kynningarferli). Aðilar sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér gögnin. Athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 1. nóvember 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5 eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is. 22 ATVINNUBLAÐIÐ 24. september 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.