Fréttablaðið - 24.09.2022, Page 72
Sea Saver Karlsson ehf. er
sprotafyrirtæki í nýsköpun.
Það vinnur að hönnun og
þróun á ómönnuðu raf-
knúnu björgunarfari fyrir
sjófarendur, sem nýtist við
mjög erfiðar aðstæður og
finnur, sækir og skilar.
Sea Saver Karlsson ehf. er fjöl
skyldufyrirtæki og framkvæmda
stjóri þess er Ásta Karen Ágústs
dóttir. Hún útskýrir að um er að
ræða rafknúið hraðskeyti með
mikilli sjálfvirkni, svo sem sónar
og lidar, sem er stýrt með fjarstýri
búnaði eða sjálfstýringu:
„Með búnaðinum verður
hægt að bjarga mönnum úr sjó
á skemmri tíma og við verri
aðstæður en áður og í f lestum til
fellum án þess að þörf sé á að senda
aðra menn í sjóinn á eftir þeim.
(Undantekning er ef viðkomandi
er meðvitundarlaus eða mikið
slasaður en þá má senda mann
með). Sjálfvirkur sjósetningar
búnaður gerir það kleift að hægt
er að bregðast mjög hratt við
þegar menn falla frá borði og geta
björgunaraðgerðir hafist strax. Að
auki er á hraðskeytinu búnaður
sem ekki er hægt að fjalla um á
þessi stigi vegna einkaleyfissjónar
miða.“
Mikil sérþekking margra
„Margþætt verkefni sem þetta er
bæði dýrt í framkvæmd og kallar
á mikla sérþekkingu margra. Þar
hafa Tækniþróunarsjóður með
styrkveitingum og Háskólinn í
Reykjavík, með samstarfi úrvals
nemenda og leiðbeinenda, reynst
sterkir bakhjarlar. Áherslur liggja
í tæknilegum lausnum, miðað við
nýjustu mögulegu tækni, svo og
viðskiptaáætlanir og markaðs
könnun á fjölþjóðavettvangi. Þá
má bæta því við að Samgöngustofa
og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði
hafa veitt verkefninu stuðning.“
Tvær útfærslur
á björgunartækinu
Ásta Karen segir að kveikjan að
verkefninu hafi sennilega orðið til
við vangaveltur um hvernig hægt
hefði verið að komast hjá stór
slysum með hraðari björgunar
aðgerðum.
„Ýmis tilbrigði festust í huga
Ágústar, en í tímans rás fóru þessar
hugrenningar að verða áleitnari
og leiddu til þess að útfærslur að
hugmyndinni tóku að þróast og
hugmyndavinna og grunnteikn
ingar, ásamt smíði á frummódeli,
leiddu til þess að erfitt var að snúa
til baka.
Björgunartækið hefur þróast
í nokkur ár frá fyrstu hugmynd.
Það hefur breyst mjög mikið í
meðferð áhugasamra háskólanem
enda í Háskólanum í Reykjavík
og með tilliti til nýjustu framfara
í hátæknivísindum sem notaðar
hafa verið við gerð og þróun Sea
Saver.
Ferlið hefur verið langt og
stundum strangt, allt frá því að
hugmyndin fór fyrst á blað og
þar til núna nýverið, þegar fyrsta
prófun á prótótýpunni fór fram í
Skerjafirði þar sem niðurstöðurnar
uppfylltu ýtrustu kröfur.
Sennilega verður um tvær
útfærslur á björgunartækinu að
ræða. Annars vegar ætlað fyrir
skip og báta með nokkurra manna
áhöfn þar sem fleiri koma að
björgunarstarfi. Hins vegar er
önnur útfærsla ætluð fyrir smærri
báta, skemmtisnekkjur, með eins
til þriggja manna áhöfn, þar sem
einn aðili fellur fyrir borð og er
hægt með aðstoð sendibúnaðar,
sennilega festum við handlegg
mannsins, gerir mögulegt að
stöðva vél eða gera segl óvirkt og
maður í sjó getur látið tækið fara
sjálfkrafa af stað með boðum
frá handtæki, sent farið beint að
stöðvuðu farartæki eða að hann
getur stýrt sjálfur björgunar
tækinu með aðstoð handstýri
búnaðar.“
Stöðug þróun
„Sea Saver björgunarskeytið er
í stöðugri þróun. Búnaður allur
verður að vera eins öruggur og
völ er á og standast gæðavottanir.
Tækið má ekki bregðast á ögur
stundu. Að því er stefnt með frek
ari prófunum og tekið er tillit til
árangurs. Samstarf við Háskólann
í Reykjavík hefur verið árangurs
ríkt og er nú haldið áfram. Næstu
verkefni í þessu samstarfi er gerð
og útfærsla á prótótýpu nr. 2,
ásamt hönnun og smíði sjálfvirks
sjósetningarbúnaðar.
Framtíðarsýn Sea Saver er að
hanna, þróa og framleiða hátækni
björgunarbúnað sem notast við
erfiðar aðstæður við björgun fólks
úr sjávarháska. Markmiðið með
framleiðslu búnaðarins er að efla
íslenska hátæknivöru og hugvit, til
að skapa verðmæti á mörkuðum
innan lands og utan. Þá eru ótalin
verðmæti lífsbjargar sem ekki
verða metin til fjár.“ n
Verðmæti lífsbjargar verða ekki metin til fjár
Ágúst Karlsson, verkfræðingur og frumkvöðull. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Framlag Listaháskólans
til Vísindavöku Rannís er
kynning á sex rannsóknar-
verkefnum akademískra
starfsmanna skólans, verk-
efnum sem ýmist er nýlokið
eða standa enn yfir.
Hulda Stefánsdóttir er sviðsforseti
akademískrar þróunar í Listahá
skóla Íslands. Hún segir að nefna
megi t.d. viðamikið fimm ára
rannsóknarverkefni dr. Þórhalls
Magnússonar, rannsóknarprófess
ors, og hans teymis:
„INTENT snjallhljóðfæri: Að
skilgreina gervigreind 21. aldar
gegnum skapandi tónlistartækni.
Verkefnið hlaut stærsta styrk sem
veittur er einstökum rannsakanda
frá Evrópska rannsóknarráðinu
árið 2020. Um er að ræða fimm
ára þverfaglegt verkefni sem hýst
er við Listaháskólann þar sem
skoðuð eru áhrif gervigreindar á
skapandi vinnu í gegnum smíði
hljóðfæra og tónlistarflutnings.
Þátttakendur í verkefninu verða
á staðnum í Laugardalshöll með
fjölda hljóðfæra sem verkefnið
hefur þegar leitt af sér og gefst
gestum færi á að upplifa og kynna
sér nánar þær áleitnu spurningar
sem verkefnið vekur um þátt og
vægi gervigreindar í daglegu lífi
okkar. Brýnar áskoranir sam
tímans eru þannig í brennipunkti
rannsókna í listum, eins og á
öðrum rannsóknasviðum.“
Ísbirnir á villigötum og FishSkin
„Útgáfan Óræð lönd fjallar um
listrannsóknir Bryndísar Snæ
björnsdóttur, prófessors í mynd
list, og samstarfsmanns hennar
Marks Wilson. Rannsóknarverk
efni þeirra, Ísbirnir á villigötum,
hlaut styrk úr Rannsóknasjóði
Vísinda og tækniráðs árið 2019. Í
verkefninu beina þau sjónum að
misvísandi hegðun innan vist
kerfisins sem birtist í einstöku
samspili manna, dýra og annarra
lífvera. Alþjóðlega samstarfs
verkefnið Baráttan gegn örplast
mengun (Plastic Justice) fól í sér
rannsókn á því hvernig nýta megi
aðferðir grafískrar hönnunar
og sjónrænnar miðlunar til að
vekja athygli samfélaga á lang
tíma heilsuáhrifum mengunar
sem stafar af ofgnótt örplasts í
umhverfinu. Lóa Auðunsdóttir og
Hrefna Sigurðardóttir, lektorar í
grafískri hönnun, leiddu verk
efnið fyrir hönd skólans og hlaut
það styrk úr Horizon 2020 áætlun
Evrópusambandsins. Annað
verkefni innan hönnunardeildar
sem kynnt verður, FishSkin, fjallar
um möguleika sjávarleðurs sem
umhverfisvæns valkosts við fram
leiðslu lúxusefna í fatahönnun.
Katrín María Káradóttir, dósent
í fatahönnun, er fulltrúi Listahá
skólans í þessu stóra alþjóðlega
verkefni sem styrkt var af Marie
Curieáætlun Evrópusambands
ins.“
Þýðing birkis í menningu
og listum
Hulda nefnir að þverfaglegt sam
starf milli háskóla, stofnana og
ólíkra fagsviða hér á landi hafi
færst mjög í aukana á síðustu árum
og Listaháskólinn sé áfram um
að nýta krafta sína og sérþekk
ingu sem framlag til slíks sam
starfs. „BirkiVist er þverfræðilegt
rannsókna og þróunarverkefni
sem miðar að þróun skilvirkra
leiða við endurheimt birkiskóga
á landsvísu. Auk þess að greina
helstu hindranir og tækifæri fyrir
náttúrulegt landnám birkis eru
samfélagslegir þættir skoðaðir, þar
með talið þýðing birkis í listum og
menningu. Fulltrúar LHÍ eru þær
Rúna Thors, lektor í vöruhönnun,
og Guðbjörg R. Jóhannesdóttir,
dósent í umhverfisheimspeki við
listkennsludeild.“
Á mörkum dans og myndlistar
„Loks er það verkið ALDA sem er
innsetning á mörkum dans og
myndlistar, innblásin af sögu og
líkamlegri vinnu kvenna. Höfund
ur þess er Katrín Gunnarsdóttir,
dósent í samtímadansi, en verkið
var sett upp á sýningu í Gerðar
safni í Kópavogi síðasta sumar.
Verkefnið er eitt dæmi um hvernig
félagssögulegir þættir eru virkj
aðir með nýstárlegum hætti með
aðferðum listanna. Það felst sögn
í því hvernig við hreyfum okkur í
umhverfinu, rétt eins og hvernig
við hugsum.
Við val á framlagi Listahá
skólans til Vísindavöku horfðum
við til þess að kynna nýleg
rannsóknarverkefni sem unnin
eru innan vébanda skólans fyrir
tilstilli styrkja úr ytri styrktar
sjóðum, bæði innlendum sjóðum
og Evrópusjóðum, og leitumst við
að draga fram mikilvægi slíkra
styrkja fyrir framgang og þróun
rannsóknarverkefna í listum, rétt
eins og í öðrum greinum. Um er
að ræða fjölbreytt verkefni og
markmið okkar var að draga fram
breidd þeirra rannsókna sem
listirnar spanna og samvirkni
þeirra, ef ekki oft á tíðum skörun,
við önnur fræðasvið.
Sýn okkar til nánustu fram
tíðar er að halda áfram að styrkja
aðkomu lista, hönnunar og arki
tektúrs að rannsóknarumhverfinu
og brýnum málefnum samtímans.
Við erum sannfærð um að enginn
einn einstaklingur eða eitt sér
fræðisvið þekkingar geti leitt fram
lausnir eða umbreytt nálgun okkar
og sýn á þær áskoranir sem við
stöndum frammi fyrir. Til þess
að skapa nýja haldbæra þekk
ingu þurfi að leiða saman ólík
þekkingarsvið, ólíkar nálganir og
raddir, til samtals og greininga.
Það er engin tilviljun að yfirskrift
nýafstaðinnar ráðstefnu Listahá
skólans bar yfirskriftina Enginn er
eyland.“ n
Sex rannsóknarverkefni Listaháskóla Íslands
Hulda er sviðsforseti akademískrar þróunar í LHÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kynntu þér
spennandi verkefni
á Vísindavöku
þér
di verkefni
ísindavöku
tu þér
an i verkefni
á V v ku
8 kynningarblað 24. september 2022 LAUGARDAGURVÍSindaVak a r annÍS